Karolina Fund: Fyrsta mjaðargerð Íslands

Félag­arnir Helgi Þórir Sveins­son og Sigurjón Friðrik Garð­ars­son settu mjöð á markað í byrjun júlí á þessu ári undir for­merk­inu Öldur.

Öldur bruggar hand­verk­s­mjöð (craft mjöð) sem hefur hlotið frá­bærar við­tökur og hlutu miðir frá Öldri annað og þriðja sætið á Bjór­há­tíð­inni að Hólum í sumar. Aðstaðan sem þeir höfðu varð fljótt of lítil svo það þurfti að ráð­ast í það verk­efni að finna stærra og hent­ugra hús­næði. Félag­arnir Helgi Þórir Sveins­son og Sigurjón Friðrik Garð­ars­son standa að verk­efn­inu.

Hvernig vaknaði hugmyndin að því að stofna mjaðargerð?

Okkur hafði lengi langað til þess að vinna saman að ein­hverju brugg­tengdu. Það var svo í kút­ap­artýi Fágunar (Félags Áhuga­fólks um Gerjun) á Menn­ing­arnótt í fyrra að hjólin fóru fyrst almenni­lega að snú­ast. Við höfðum bruggað kirsu­berja­mjöð sem fólk gat smakkað og fannst mjög góður, en þarna voru líka yfir­kokkur og einn af eig­endum Nostra Restaur­ant. Þeim fannst mjöð­ur­inn frá­bær og spurðu hvort það væri hægt að kaupa hann.

[adspot]Í fram­hald­inu fórum við að þróa upp­skriftir og betrumbæta kirsu­berja­mjöð­inn sem hafði verið í boði þennan dag.

Um hvað snýst verkefnið?

Verk­efnið er fyrst og fremst til þess að hjálpa okkur að koma okkur fyrir í stærra hús­næði. Fram­leiðslan á gamla staðnum var afar smá og nán­ast á barmi þess að hún borg­aði sig ekki. Í stærra hús­næði getum við aukið fram­leiðsl­una og stefnan er sett á að koma vör­unum okkar í ÁTVR og seinna meir í frí­höfn­ina. Á nýja staðnum verður líka aðstaða til vöru­þró­unnar sem er okkur mjög mik­il­væg því fyr­ir­tæki í nýsköpun þarf jú að geta boðið upp á eitt­hvað nýtt.

Af hverju mjöður, og er mjöður ekki annað orð yfir bjór?

Mjöður og bjór eru eins ólíkir drykkir og vín og bjór og gerðir úr mis­mun­andi hrá­efnum. Mjöður og bjór hafa líka ólíka sögu en það er einmitt sagan sem heillar okkur hvað mest við mjöð­inn. Þetta er talið vera einn elsti áfengi drykkur sög­unnar og var aðeins ætl­aður kon­ungum og guðum. Vík­ing­arnir drukku jú líka mjöð og okkur fannst tíma­bært að kynna Ísland fyrir mið­inum aftur.

Hér er hægt að skoða verk­efnið og taka þátt í að fram­leiða mjöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár