Blaðamenn Stundarinnar samþykktu kjarasamninga

Samn­ing­arnir sam­þykktir sam­hljóða. Fram­kvæmda­stjóri Stund­ar­innar hvetur önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki til að hag­ræða í rekstri með öðru en launum.

Samningar undirritaðir
Samn­ingar und­ir­rit­aðir Kjara­samn­ingur hefur verið sam­þykktur. Mynd: Davíð Þór

Blaða­menn Stund­ar­innar sam­þykktu 22. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kjara­samn­inga þá sem Blaða­manna­fé­lag Íslands og Útgáfu­fé­lagið Stundin höfðu skrifað undir 7. nóv­em­ber. Sam­þykktu blaða­menn samn­ing­ana sam­hljóða.

Samn­ing­ur­inn er sam­bæri­legur kjara­samn­ingum sem Blaða­manna­fé­lagið hefur gert við Birting og Kjarnann í öllum meg­in­at­riðum. Breyt­ingar verða á launa­töflum og laun og kjara­tengdir liðir hækka auk þess sem greidd er ein­greiðsla vegna þess hversu lengi blaða­menn hafa verið samn­ings­lausir.

Jón Trausti Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri Stund­ar­innar, hvatti við und­ir­ritun samn­ing­anna stjórn­völd til að tryggja að starfs­að­stæður íslenskra fjöl­miðla færð­ust nær því sem tíðk­að­ist hjá nágranna­þjóðum okkar á Norð­ur­lönd­unum, bæði þegar kæmi að fjár­hag, rétt­ar­vernd og stuðn­ingi hins opin­bera.

 „Við sem stýrum Stund­inni skorum á önnur fjöl­miðla­fyr­ir­tæki að freista þess að hag­ræða með öðrum hætti en launum starf­andi blaða­manna,“ sagði Jón Trausti enn fremur og bætti við: „Þó svo að fjöl­miðla­fyr­ir­tæki eigi erfitt með að borga há laun er ýmis­legt hægt að gera til þess að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár