Mynd: Davíð Þór

Fékk háa rukkun frá Tryggingastofnun niðurfellda viku fyrir jól

Um 500 manns sem leigðu hjá Brynju, hús­sjóði ÖBÍ, fengu greiddar sér­stakar húsa­leigu­bætur aft­ur­virkt til fjög­urra ára í fyrra. Í sumar fengu margir, eins og Andri Val­geirs­son, ráð­gjafi NPA-mið­stöðv­ar­innar, rukkun frá TR vegna vaxta­bóta þess­arar leið­rétt­ingar. Eftir að hafa lagt inn kvörtun fékk hann þessa rukkun nið­ur­fellda með öllu.

Flestir sem fengju óvænt rétt­ar­bót með rúm­lega hálfri milljón í vaxta­bætur myndu fagna því, en Andri Val­geirs­son lýsir því að það hafi verið honum mikið áhyggju­efni í fyrra og ár. „Maður fær alltaf áhyggjur þegar maður fær tekjur sem maður býst ekki við,“ segir hann. „Sér­stak­lega tekjur sem maður er ekki búinn að gera ráð fyrir hjá Trygg­inga­stofnun.“

Ástæða áhyggna hans er að Andri er 75 pró­sent öryrki, en örorku­líf­eyr­is­þegar búa við flókið kerfi af ógagn­sæjum skerð­ingum sem hafa víxl­verk­andi áhrif sem gera ekki vart við sig fyrr en ári síðar. „Þegar maður sá hvað þetta var há upp­hæð þá hugs­aði maður; „þetta á eftir að vera alveg því­líkur haus­verkur“, sem það hefur verið.“

Eftir að leggja fram umsókn um nið­ur­fell­ingu á þess­ari kröfu og margra mán­aða bar­áttu við TR, sem Andri líkir við viður­eign við vind­millur, hafði hann að ofan og fékk þessa skuld nið­ur­fellda viku fyrir jóla­dag.

Sterk …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár