Áhrifavaldar birta myndir af börnunum í auglýsingaskyni

Áhrifa­valdar á sam­fé­lags­miðlum birta myndir af börn­unum sínum, merktar fyr­ir­tækjum sem fram­leiða vörur eða fatnað sem barnið notar. Dæmi eru um að börn séu notuð í kost­aðar færslur, en varað er við því að veita of miklar upp­lýs­ingar um börn og einka­líf þeirra.

Áhrifavaldar birta myndir af börnunum í auglýsingaskyni

Við lifum á tímum tækni og miðl­unar. Við lifum á tímum þar sem stór hluti miðl­unar fer fram á net­inu og sam­fé­lags­miðlum. Við lifum á tímum þar sem sam­fé­lags­miðlar geta þjónað mekka og miðju í lífi hvers ein­stak­lings, og við lifum á tímum þar sem áhrifa­valdar hafa sumir hverjir meiri áhrif en stjórn­mála­menn. 

Duldar auglýsingar

Samkvæmt könnun MMR frá árinu 2018 nota til að mynda 91 pró­sent íslensku þjóð­ar­innar Facebook og tæp­lega helm­ingur, eða 47 pró­sent, eru á Instagram. Það er þó aðeins lít­ill hluti þeirra sem nota slíka miðla sem telj­ast vera áhrifa­valdar, orðið nær yfir þá ein­stak­linga sem sinna mark­aðs­setn­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Hlut­fallið minnkar svo enn frekar þegar taldir eru til þeir aðilar sem ná að lifa á þeim tekjum hér á landi. Þeir sem ná því eru gjarnan með umboðs­menn á sínum snærum, ein­hvern sem verður áhrifa­vald­inum úti um samn­inga við fyr­ir­tæki. Lifi­brauð áhrifa­valda felst …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár