Theresa May: Breska þingið mun kjósa um Brexit

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir að breska þingið muni kjósa um Brexit-sam­komu­lagið áður en það öðl­ast gildi. Þetta kom fram í ræðu hennar í dag þar sem May fór yfir helstu áherslur Breta varð­andi útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu. Gengi breska punds­ins hækk­aði sam­stundis við fréttir um að Brexit-sam­komu­lagið verði borið undir þingið áður en frá því verður gengið. Í ræð­unni sagði May enn fremur að stuðst verði við tólf meg­in­reglur í við­ræð­unum og að hún vilji að Bretland hafa áfram toll­frjálsan aðgang að evr­ópskum mörk­uðum. Samt sem áður mun Bretland yfir­gefa innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins sam­kvæmt útgöngu­á­ætl­un­inni. Greint er frá mál­inu á vef the Guardian.

Dómstóll í London komst að þeirri nið­ur­stöðu í nóv­em­ber að ekki væri hægt að virkja 50. grein Lissabon-sátt­mál­ans og hefja útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu án þess að vera það undir breska þingið fyrst. Þeim úrskurði var áfrýjað til Hæsta­réttar. May hefur áður sagt að hún vilji hefja útgöngu­ferlið í lok mars 2017 og það er gert með því að virkja 50. grein­ina, með bréfi til leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins. Verka­manna­flokk­ur­inn, sem er í stjórn­ar­and­stöðu í breska þing­inu, hefur þegar sagt að hann muni ekki reyna að stöðva eða tefja fyrir útgöng­unni ef svo fer að þingið þurfi að kjósa um mál­ið. Skugga­ráð­herra Skotlands og Skoska þjóð­ern­is­flokks­ins, Mich­ael Russell, sagði hins vegar í byrjun nóv­em­ber að hann sjái ekki fyrir sér neinar kring­um­stæður þar sem þing­menn flokks­ins kjósi með því að virkja 50. grein­ina. Skotar kusu gegn útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Yfir­lýs­ing May um að þingið fái að kjósa um Brexit breytir engu um hvað þarf til að virkja 50. grein­ina. En í henni felst að breska þingið mun fá að kjósa um hvaða Evr­ópu­lög­gjöf það vill breyta og hvaða lög­gjöf á að hald­ast eftir útgöngu Breta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár