„Mun berjast fyrir frelsi okkar“

Grænlenski forsætis­ráðherrann segist „dapur“ yfir stig­mögnun í ásælni Bandaríkja­forseta í innlimun Grænlands í Banda­ríkin.

Jens-Frederik Nielsen
Jens-Frederik Nielsen For­sæt­is­ráð­herra Græn­lands hefur ítrekað þurft að banda frá sér ágengni Banda­ríkja­for­seta.

 „Ég mun ávallt berjast fyrir frelsi okkar og rétti til að ákveða sjálf og móta framtíð okkar,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, forsætis­ráðherra Grænlands, í jóla­kveðju í skugga ásælni Donalds Trump Bandaríkja­forseta, sem ítrekaði í gær áform sín um að innlima Grænland í Banda­ríkin.

„Við þurfum á því að halda vegna þjóðar­öryggis. Við verðum að fá það,“ sagði Trump og bætti við að nýskipaður sendi­fulltrúi gagnvart Grænlandi, Jeff Landry, ríkis­stjóri Louisiana, „vildi leiða áhlaupið“.

Evrópu­sambandið lýsti strax stuðningi við Danmörk og Grænlendinga. Og Jens-Frederik Nielsen gaf frá sér enn eina yfir­lýsinguna gegn ásælni Trumps.

„Forseti Banda­ríkjanna lýsti aftur yfir á blaðamanna­fundi í nótt ósk sinni um að yfirtaka Grænland. Með slíkum orðum er landið okkar smættað niður í spurningu um völd og öryggismál. Þannig sjáum við okkur ekki og þannig getum við á Grænlandi ekki né eigum að láta tala um okkur. Við erum þjóð með langa sögu, sterka menningu og lifandi lýðræði. Við erum land sem ber ábyrgð á eigin landsvæði og eigin framtíð. Landhelgi okkar og sjálfs­ákvörðunar­réttur er tryggður í þjóða­rétti og ekki er hægt að hunsa hann,“ sagði Nielsen í Facebook-færslu í morgun.

„Aftur: Grænland er landið okkar. Ákvarðanir okkar eru teknar hér,“ bætti hann við.

Nielsen sagði tregann blandast þakklæti.

„Takk til ykkar hér heima fyrir skýran stuðning og samstöðu sem hefur verið sýnd. Sú ró og virðing sem þið hafið mætt aðstæðunum með sendir skýr skilaboð um þjóð sem stendur föst á gildum sínum og ábyrgð,“ sagði Nielsen.

„Ég vil einnig þakka ríkis­stjórnar­leiðtogum og samstarfs­aðilum um allan heim sem hafa skýrt og afdráttar­laust lýst yfir virðingu sinni fyrir Grænlandi, lýðræðis­legum stofnunum okkar og grundvallar­reglum þjóða­réttar. Sá stuðningur stað­festir að við hér heima stöndum ekki ein.“

Evrópu­sambandið lýsti í gær yfir „fullri samstöðu“ með Danmörku, sem er aðildar­ríki, eftir að Banda­ríkin útnefndu Landry sendi­fulltrúa fyrir Grænland, samhliða yfir­lýsingu hans um að bæta Grænlandi í Banda­ríkin.

„Landhelgi og fullveldi eru grundvallar­reglur þjóða­réttar,“ sögðu Ursula von der Leyen, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, og Antonio Costa, forseti leiðtoga­ráðsins, á X.

„Þessar reglur eru ekki aðeins nauðsynlegar fyrir Evrópu­sambandið, heldur fyrir þjóðir um allan heim. Við stöndum í fullri samstöðu með Danmörku og grænlensku þjóðinni,“ sögðu þau.

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra lýsti sömuleiðis almennum stuðningi við rétt Grænlands og Danmerkur til full­veldis. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Spurningin er þessi: Er einhver munur á Trump 2026 og Hitler 1939?
    0
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Þetta er meira skrípið þessi Trump, lítið betri en Pútín, hótar hervaldi til að sölsa undir sig land, sem hefur engan áhuga á honum. Þyrfti að spirða þessa tvo saman og setja á eyðieyju
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það þyrfti einhver að benda Trump á að til þess að bæta öryggi heimsins þyrfti Danmörk að yfirtaka Bandaríkin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár