Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgar verulega

Skýrsla ríkis­lögreglu­stjóra sýnir aukningu í tilkynningum um kynferðis­brot árið 2025, einkum gegn börnum, á sama tíma og rann­sóknir benda til þess að hlutfall brota geti verið á niðurleið.

Tilkynningum til lögreglu um kynferðis­brot fjölgaði á síðasta ári, samkvæmt nýrri skýrslu ríkis­lögreglu­stjóra. Alls voru 629 kynferðis­brot tilkynnt árið 2025, sem er 13 prósenta aukning frá árinu á undan. Sérstak­lega hefur orðið mikil fjölgun tilkynninga um kynferðis­brot gegn börnum og barnaníð.

Í skýrslu ríkis­lögreglu­stjóra kemur fram að lögregla skráir bæði hvenær brot átti sér stað og hvenær það var tilkynnt, þar sem í mörgum málum líður langur tími á milli. Á árinu 2025 var tilkynnt um 194 nauðganir, þar af áttu 142 sér stað sama ár. Tilkynningum um nauðganir fjölgaði um 5 prósent frá árinu 2024, en miðað við meðaltal þriggja ára þar á undan fækkaði þeim um 6 prósent.

Alls var tilkynnt um 133 kynferðis­brot gegn börnum, sem er 18 prósenta aukning miðað við meðaltal síðustu þriggja ára. Þá voru tilkynningar um barnaníð 51 talsins, sem jafn­gildir 53 prósenta fjölgun frá sama samanburðar­tímabili.

Konur voru í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár