Íslendingar gefa hálfa milljón bóluefnaskammta

Ísland hefur gefið alla umfram­skammta sína af bóluefnum AstraZeneca og Janssen inn í COVAX-samstarfið. Um 15 prósent eru þegar komin til viðtöku­ríkja. „Allt kapp er lagt á að umfram­skammtar renni inn í COVAX eins fljótt og kostur er á.“

Tæplega 130 þúsund umframskammtar af AstraZeneca sem Ísland hafði tryggt sér með samningum við framleiðandann hafa verið gefnir inn í COVAX-samstarfið.
Tæplega 130 þús­und umfram­skammtar af AstraZeneca sem Ísland hafði tryggt sér með samn­ingum við fram­leið­and­ann hafa verið gefnir inn í COVAX-sam­starfið. Mynd: EPA

Heilbrigðis­ráðuneytið og utan­ríkis­ráðuneytið hafa á undan­förnum misserum unnið að því að gefa umfram­skammta af COVID-19 bóluefnum til efnaminni ríkja í gegnum COVAX-bóluefna­samstarfið. Ísland hefur gefið alla umfram­skammta sína af AstraZeneca, eða 125.726 skammta, til COVAX og einnig alla umfram­skammta af Janssen-bólu­efninu eða 171 þúsund skammt.

Þá mun Ísland einnig gefa ríflega 45.000 skammta af Moderna-bólu­efninu til COVAX og unnið er að áfram­haldandi áætlun um gjöf af Moderna skömmtum í samræmi við áætlun sóttvarna­læknis um örvunar­bólu­setningu næstu misserin. Það sama er uppi á teningnum hvað varðar gjöf á Pfizer-skömmtum, sú áætlun er unnin í samræmi við áætlun sóttvarna­læknis um örvunar­bólu­setningu hér á landi. Sú herferð er hafin og býðst öllum lands­mönnum sextán ára og eldri örvunar­skammtur.

„Við notum enn töluvert af Janssen en Astra er ekki lengur flutt inn,” segir Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir við Kjarnann. Hann segir það bóluefni nýtast betur í öðrum löndum út af þeim takmörkunum sem við settum á notkun þess með tilliti til aldurs og kyns. Þeir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem eru til í landinu eru notaðir í seinni skammta þeirra sem hafa ekki klárað tímanlega sína bólu­setningu eða hófu hana erlendis og vilja klára með sama bóluefni.

Í svari utan­ríkis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans um gjafa­skammta Íslands og aðra aðstoð við efnaminni ríki í heims­faraldrinum kemur fram að umfram­skammtar Íslands fari þangað sem þörfin er talin mest hverju sinni samkvæmt mati bólu­setningar­banda­lagsins GAVI sem hefur umsjón með COVAX. Nú þegar hafa í heildina 47.220 skammtar af AstraZeneca bólu­efninu lent í viðtöku­ríkjum, þar af hafa 35.700 skammtar farið til Fílabeins­strandarinnar, 1.920 til Gana, 2.400 til Síerra Leóne og 7.200 skammtar til Egypta­lands. „Allt kapp er lagt á að umfram­skammtar renni inn í COVAX eins fljótt og kostur er á,“ segir í svari ráðuneytisins. „Íslensk stjórn­völd hafa frá upphafi lagt áherslu á að styðja við COVAX-samstarfið og hefur Ísland, með framlagi upp á ríflega 1 milljarð íslenskra króna, skipað sér í hóp ríkja sem umtals­vert hafa lagt af mörkum til dreifingar bóluefna á heimsvísu.“

144 ríki taka þátt í COVAX-samstarfinu. Í gegnum það hefur um hálfum milljarði bóluefna­skammta verið dreift til efna­minnstu ríkja heims.

Gjafir í samstarfi við ESB

Auk COVAX-samstarfsins hefur íslenska heilbrigðis­ráðuneytið í samvinnu við Evrópu­sambandið ákveðið að gefa umfram­skammta af Pfizer-bólu­efninu sem nú þegar er hér á landi til Taílands í gegnum tvíhliða samning, þar sem ekki er heimilt að gefa bóluefna­skammta sem þegar hafa borist til landsins í COVAX. Það eru í heildina 100.620 skammtar. Ekki liggur fyrir nákvæm dagsetning á flutningi skammt­anna til Taílands. Þá vinnur heilbrigðis­ráðuneytið einnig að því að gefa umfram­skammta af Moderna-bóluefni, um 50.000 skammta, í gegnum tvíhliða samning í samvinnu við ESB. Um er að ræða skammta sem þegar hafa borist til landsins og því ekki hægt að gefa í COVAX. Ekki liggur endanlega fyrir hvert verður viðtöku­ríkið.

Samtals hefur Ísland því þegar ákveðið að gefa um hálfa milljón skammta til annarra ríkja, ýmist í gegnum COVAX eða í samvinnu við ESB. Tæplega 600 þúsund skammtar af bóluefni hafa verið gefnir fólki hér á landi. Um 80 þúsund þeirra eru örvunar- eða viðbótar­skammtar. 89 prósent lands­manna tólf ára og eldri eru full­bólusett (hafa fengið tvo skammta).

Skammtarnir fæstir þar sem neyðin er mest

Bóluefna­samstarfið Gavi vinnur nú að sérstöku átaki í því að koma bóluefnum sem fást í gegnum COVAX til þeirra jarðarbúa sem búa við viðkvæmustu aðstæður allra, m.a. vegna fátæktar og átaka. Í nýrri tilkynningu frá Gavi segir að um helmingur þeirra landa þar sem neyðin er mest hafi ekki enn fengið bóluefni til að bólusetja 10 prósent íbúa. Fimm fátækustu ríki heims (Tjad, Austur-Kongó, Haítí, Suður-Súdan og Jemen) hafa ekki nægt bóluefni til að bólusetja tvö prósent íbúanna. Átök og annað ofbeldi er útbreitt í flestum þeirra ríkja sem fæsta bóluefna­skammta hafa fengið.

Í tilkynningu Gavi segir að á síðustu vikum og mánuðum hafi smám saman tekist að flytja meira af bóluefna til þeirra jarðarbúa sem búa við hvað mesta neyð og vonir standi til að sú þróun haldi áfram næstu mánuði. Stofnanir á sviði mannúðar, m.a. UNICEF og UN Women, vinna einnig með Gavi að því að koma lífs­nauðsynlegri aðstoð, svo sem mat, hreinu drykkjar­vatni og skjóli, til fólks sem býr við neyð. Gavi fagnar því í tilkynningu sinni að í þessari viku hafi tekist að koma fyrstu bóluefna­skömmtunum til fólks sem er á flótta undan átökum í Íran og til fólks í áhættu­hópum vegna COVID-19 í Taílandi.

Gera ríkar kröfur til viðtakenda bóluefna

Ýmsar hindranir standa í vegi fyrir því að hægt hefur gengið að dreifa bóluefnum. Ekki aðeins seinagangur vestrænna ríkja við að gefa skammta leikur þar hlutverk. Við venjulegar aðstæður taka fram­leiðendur bóluefna og lyfja mögulegar skaða­bótakröfur vegna notkunar efnanna á sig. En í heims­faraldri COVID-19 hafa lyfja­fyrirtækin gert þær kröfur að allir kaupendur og viðtak­endur skammt­anna, hvort sem um er að ræða einstök lönd eða mannúðar­stofnanir, taki þessa áhættu.

Fjórir bóluefna­fram­leiðendur (Clover, Johnson & Johnson, Sinopharm og Sinovac) hafa aflétt þessum vátrygginga­kröfum og hvetur Gavi fleiri til að gera slíkt hið sama svo mannúðar­stofnanir og samtök geti dreift bóluefnum hraðar um alla heims­byggðina. Ríkis­stjórnir eru hvattar til að beita sér í þessu sambandi en eru einnig minntar á viðkvæma hópa innan sinna samfélaga s.s. flótta­fólk, hælis­leitendur og í einhverjum tilfellum innflytjendur sem gætu vegna lítilla tengsla í nýju samfélagi orðið útundan í bólu­setningum gegn COVID-19.

Stutt við efnaminni ríki með ýmsum hætti

Utan stuðnings við COVAX hefur Ísland stutt við ýmsar aðgerðir til að bregðast við áhrifum COVID-19 á heimsvísu og stuðla að bættri getu efnaminni ríkja til að takast á við faraldurinn, þar með talið í tvíhliða samstarfs­löndum okkar, segir í svari utan­ríkis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans.

Í Malaví hefur 125 milljónum króna verið veitt til COVID-tengdra verkefna árin 2020-2021. Þar af var 45 milljónum til að styrkja COVID-19 viðbragðs­áætlun Mangochi-héraðs í heil­brigðis- og mennta­málum. Framlagið nýttist í samhæfingu, þjálfun heilbrigðis­starfsfólks og kaup á heilbrigðis­vörum. Þá var 27 milljónum króna veitt til Jafnréttis­stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UN Women), með áherslu á að draga úr áhrifum faraldursins á stúlkur, t.d. með baráttu gegn barna­hjónaböndum. Alls hafa 53 milljónir króna farið til Matvæla­aðstoðar SÞ (WFP) sem hefur aðstoðað stjórn­völd í viðbrögðum vegna faraldursins m.a. með því að setja upp skimunar- og greiningar­aðstöðu við landamæra­stöðvar Malaví og bráðabirgða­byggingar við sjúkrahús sem munu nýtast sem rannsóknar­stofur og legu­deildir fyrir COVID-smitaða.

Í Úganda hefur 118 milljónum króna verið veitt til COVID-tengdra verkefna árin 2020-2021. Þar af var um 65 milljónum til skóla­máltíða fyrir 23 þúsund börn í Buikwe-héraði. Þá fóru 15 milljónir til að styrkja COVID-19 viðbragðs­áætlun héraðs­yfirvalda í Buikwe, með áherslu á heilsu og menntun.

Nú nýverið var samþykkt að bæta við stuðningi við bæði samstarfs­héruð Íslands í Úganda fyrir árið 2021, að upphæð 38 milljónir, sem mun styrkja viðbragðs­getu héraðanna, m.a. með þjálfun starfs­fólks, vitundar­vakningu í samfélögum og kaupum á heilbrigðis­búnaði.

Þá var 84 milljónum króna varið í verkefni í Síerra Leóne árið 2020. Þar af var 41 milljón veitt til Barna­hjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) til vatns- og hreinlætis­viðbragða til varnar faraldrinum. Þá var 41 milljón veitt til UNFPA til að viðhalda kynheilbrigðisþjónustu á tímum COVID-19. Að auki var tveimur milljónum króna bætt við fjár­mögnun fyrir Aberdeen Womens Centre til að reka miðstöð fyrir aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár