Sterkjum verkjalyfjum smyglað til landsins af íslenskum fíkniefnasölum

Í áhættu­mats­skýrslu grein­ing­ar­deildar Rík­is­lög­reglu­stjóra er fjallað und­ir­heim­ana á Íslandi og vax­andi ógn af skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.

Í nýrri áhættu­mats­skýrslu grein­ing­ar­deildar Rík­is­lög­reglu­stjóra segir að vitað sé til þess að íslenskir fíkni­efna­salar stundi það sér­stak­lega að smygla inn sterkum verkja­lyfjum frá Spáni til að selja fíklum.

Meg­in­nið­ur­staða skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra er sú að áhætta vegna helstu brota­flokka skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi á Íslandi fari enn vax­andi. Samkvæmt áhættu­lík­ani
lög­gæslu­á­ætl­unar er nið­ur­staðan „gíf­ur­leg áhætta“ við mat á skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, en það er efsta stig áhættu sam­kvæmt skil­grein­ingu.

Í skýrsl­unni segir að fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar bendi ekki til þess, að vand­inn hvað varðar neyslu á sterkum verkja­lyfjum, fari minnk­andi. „Fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar benda ekki til þess að umfang vand­ans fari minnk­andi á Íslandi, þvert á móti líkt og fram kemur í upp­lýs­ingum emb­ættis land­læknis. Lögreglu er kunn­ugt um að umfangs­miklir íslenskir fíkni­efna­salar komi að inn­flutn­ingi á sterkum verkja­lyfjum sem flutt eru til lands­ins oft frá Spáni og með lög­legum hætti þ.e. ein­stak­lingur er feng­inn til að halda til útlanda í þeim til­gangi einum að kaupa sterk verkja­lyf, sem við­kom­andi má síðan hafa með sér í til­teknu magni til Íslands. Þegar heim er komið afhendir „ferða­mað­ur­inn“ lyfin sem síðan eru seld á svörtum mark­aði,“ segir í skýrsl­unni.

Fjallað var ítar­lega um hvernig fíkni­vandi hefur verið að breiða úr sér af ógn­ar­hraða í Banda­ríkj­unum og Kanada, og víðar á Vest­ur­löndum, í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans á föstu­dag­inn.

Þróunin á Íslandi hefur um margt verið svipuð, þar sem dauðs­föll ung­menna, vegna neyslu á sterkum verkja­lyfjum, hafa verið tíð.

Í skýrsl­unni segir að sala á efn­unum fari ekki síst fram á Facebook. „Neysla sterkra verkja­lyfja sem inni­halda ópíuma­fleiður hefur kostað tugi manna lífið hér á landi á síð­ustu árum. Borið hefur á miklu fram­boði á sterkum verkja­lyfjum á síð­ustu miss­erum. Í lok­uðum hópum á Facebook fer fram sala og dreif­ing á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum sem í hluta til­vika hefur verið ávísað af íslenskum læknum. Sumir hópanna telja þús­undir ein­stak­linga. Sterk verkja­lyf finn­ast í póst­send­ingum. Toll­stjóri leggur reglu­lega hald á sterk verkja­lyf sem reynt er að smygla til lands­ins. Aukin neysla sterkra verkja­lyfja er sam­fé­lagsógn sem valdið hefur hörm­ungum og dauða víða á Vest­ur­löndum. Í Banda­ríkj­unum og Kanada er talað um „far­aldur“ í þessu sam­hengi og algengt er að neyt­endur taki að nota heróín í stað verkja­lyfja sökum kostn­aðar og aðgengi­leika. Aðgerðir og inn­grip stjórn­valda til skaða­minnk­unar eru stöðugt til umræðu í þessum tveimur löndum. Viðbrögð stjórn­valda á Íslandi hafa falist í tak­mörk­unum á aðgengi og hertu eft­ir­liti með ávís­unum lyfja, skipun starfs­hópa og breyt­ingum á reglu­gerðum,“ segir í skýrslu grein­ing­ar­deildar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár