Fíknivandinn breiðir úr sér

Lítið hefur gengið að vinna gegn útbreiðslu fíkni­efna. Það er óhætt að segja að það sé ekki íslenskt vanda­mál, því stríðið gegn fíkni­efnum virð­ist með öllu óvinn­andi. Á Íslandi hefur fjöldi ungs fólks fallið frá úr of stórum skammti á skömmum tíma.

Stríð gegn fíkni­efnum er póli­tískt hug­tak. Það varð fyrst til - í það minnsta í stjórn­mála­um­ræðu í Banda­ríkj­unum - á tíma Richard Nixon, sem var for­seti Banda­ríkj­anna frá 1968 til 1974, þegar hann sagði af sér eftir Watergate hneykslið. Stjórn hans lagði mikla áherslu á að fíkni­efni væru sam­fé­lags­legt böl. Flestir geta tekið undir það, en hvar rót vand­ans liggur og hvernig á að takast á við hann, er síðan annað mál. 

Á Íslandi eins og ann­ars staðar er háð stríð gegn fíkni­vanda alla daga. Fjöl­skyldur standa eftir örmagna á sál og lík­ama. Ótímabær dauðs­föll vegna of stórs skammts fíkni­efna eru alþjóð­legt vanda­mál þessi miss­erin og hefur aukn­ingin í Banda­ríkj­unum ekki síst vakið óhug.

Frá árinu 2012 hefur aukn­ing dauðs­falla vegna of stórs skammts lyfja - bæði ópíóða og sterkra ann­arra efna - verið bein­línis slá­andi. Í fyrra lét­ust tæp­lega 80 þús­und manns úr of stórum skammti, en fyrir ára­tug var með­al­talið á ári í Banda­ríkj­unum innan við 15 þús­und dauðs­föll. Verst er staðan á ákveðnum svæðum í mið­ríkj­unum.

Faraldur

Á árunum 2013 til og með 2018 hafa tæp­lega 500 þús­und manns dáið úr of stórum skammti af fíkni­efnum í Banda­ríkj­unum. Þessi tala er orðin svo ískyggi­lega há, að hún er farin að draga niður með­al­tals­lífs­tíma Banda­ríkja­manna, en með­al­lífs­tími hefur lækkað und­an­farin tvö ár.

Í Ohio hefur neyð­ar­á­standi verið lýst yfir vegna tíðra dauðs­falla og veik­inda fíkla. Hertar lög­reglu­að­gerðir gegn fíkni­efna­sölum virð­ast ekki vera að bera neinn árangur og þungir dómar og mikið eft­ir­lit lög­reglu, nær ekki að vinna gegn þess­ari ógn­væn­legu þróun.

Borgir Banda­ríkj­anna hafa snúið bökum saman og reynt að miðla upp­lýs­ingum og sam­stilla for­varnar- og hjálp­ar­starf, til að reyna að sporna gegn slá­andi aukn­ingu.

Hér má sjá yfirlit yfir haldlögð efni, hjá lögreglu og tollgæslu. Hvað sem því líður, þá hefur eftirspurn eftir læknadópi og sterkum verkjalyfjum, stórlega aukist á undanförnum árum.
Hér má sjá yfir­lit yfir hald­lögð efni, hjá lög­reglu og toll­gæslu. Hvað sem því líður, þá hefur eft­ir­spurn eftir lækna­dópi og sterkum verkja­lyfjum, stór­lega auk­ist á und­an­förnum árum.

Meðal ann­ars hefur neyð­ar­skýlum verið komið upp þar sem fíklar geta fengið lækn­is­að­stoð, en lög­reglan fær að hafa aðgang að þeim skýlum, ekki síst til að reyna að koma hættu­leg­ustu efn­unum úr umferð. Notkun á neysl­um­rýmum hefur færst í auk­ana, en það er ekki þannig ennþá að notkun á slíkum rýmum sé almenn. Notkun á slíkum rýmum hefur gef­ist vel í Seattle, þar sem fyrstu neyslu­rýmin voru opnuð meðal borga Banda­ríkj­anna. 

Málsóknir

Um þessar mundir eru stjórn­völd í Banda­ríkj­unum að láta kné fylgja kviði þegar kemur að einum anga ópíóða­vand­ans. For­stjórar og for­svars­menn lyfja­fyr­ir­tækja eru nú til rann­sóknar, og hafa sumir hverjir verið sak­sóttir. Þar á meðal er for­stjóri Purdue Pharma sem fram­leiðir verkja­lyfið OxyContin, en stór hluti þeirra sem hefur látið lífið úr of stórum skammti hefur sótt í það lyf.

Þróun dauðsfalla vegna ofneyslu lyfja í Bandaríkjunum
Þróun dauðs­falla vegna ofneyslu lyfja í Banda­ríkj­unum

For­stjór­inn Craig Landau ját­aði það í vik­unni, í við­tali við Washington Post, að Purdue Pharma væri nú alvar­lega að íhuga að gefa fyr­ir­tækið upp til skipta og hætta allri starf­semi. Ástæðan er meðal ann­ars meira en þús­und mál­sóknir á hendur fyr­ir­tæk­inu, frá borgum og sýslum Banda­ríkj­anna, sem hafa þurft að glíma við afleið­ingar af far­aldr­inum. Landau sagði það ekki ljóst enn, hvernig fyr­ir­tækið myndi koma út úr þeim mál­sóknum sem væru fram undan. En það segir sína sögu að þessi lyfj­arisi í Banda­ríkj­unum sé að hugsa um að hætta allri starf­semi.

Í ofaná­lag bæt­ast síðan mál­sóknir aðstand­enda fíkla og lát­inna, en í mörgum til­vikum áttu þeir sem lét­ust ekki mikla sögu af óreglu áður en fíknin heltók þau. Í sumum til­vikum er um að ræða verkja­lyf sem eru meira en 50 sinnum sterk­ari en mor­fín og heróín. Eftir einn skammt er ein­fald­lega ekki aftur snúið.

Dreifing þess­ara sterku verkja­lyfja er nú orðin að miklu alþjóð­legu vanda­máli, þó mis­mun­andi miklu eftir svæðum. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) hefur sagt að leita þurfi leiða til að hjálpa fíklum að takast á við vanda­mál sín og hefur stofn­unin talað fyrir því að lýð­heilsa sé höfð í fyr­ir­rúmi þegar stefna fyrir mála­flokk­inn er mótuð.

Stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem tekst á við skipu­lagða glæp­a­starf­semi, UNDOC, hefur ítrekað talað fyrir því að nálgun á vand­ann sé gjör­breytt. Minna fari fyrir hörku og þungum refs­ingum, og meira fyrir því að byggja upp heil­brigð­is­þjón­ustu til að hindra dauðs­föll og koma veikum fíklum undir lækn­is­hendur.

Ákveðin vit­und­ar­vakn­ing hefur átt sér stað und­an­farin miss­eri á alþjóða­vísu, ekki síst vegna hörm­ung­anna í Banda­ríkj­unum.

Þar eru meira en tvær millj­ónir manna í fang­elsum - hæsta hlut­fall af íbúum meðal vest­rænna þjóða - og meira en 60 pró­sent þeirra hafa gerst brot­legir við fíkni­efna­lög­gjöf­ina. Þrátt fyrir allt þá verða vanda­málin dýpri og ill­við­ráð­an­legri, ár frá ári, og hið svarta hag­kerfi fíkni­efna stækkar stöðugt. Ekki sést glitta í árangur af þeirri stefnu sem rekin hefur verið - undir póli­tískum áhrifum frá Nixon forðum.

Hvernig er vandinn á Íslandi?

Þó Ísland sé lítið eyríki og búi að því að vera með landa­mæri sem eru auð­veld­ari viður­eignar en mörg önnur ríki - þar sem sjór umlykur landið - þá er vel hægt að halda því fram að vandi sem teng­ist fíkni­efnum á Íslandi sé ógn­væn­legur þessi miss­erin.

Tíð dauðs­föll, ekki síst vegna of stórra skammta af verkja­lyfjum og við­líka efnum, hafa skilið eftir sig sár sem gróa aldrei í fjöl­mörgum fjöl­skyldum.

Í fyrra lét­ust í það minnsta 29 ungir ein­stak­lingar, undir fer­tugu, vegna of stórs skammts fíkni­efna.

Þetta er hátt hlut­fall, í alþjóð­legum sam­an­burði og veru­legt áhyggju­efni að sama mynstur sést og víða má nú greina í Banda­ríkj­unum, þó þar sé um djúp­stæð­ari vanda að ræða.

Vanda­málin geta hins vegar magn­ast upp og reynslan hefur sýnt að þrátt fyrir vel skipu­lagt starf lög­reglu - og góðan vilja og lag­ara­mma sem er ætlað að sporna gegn vanda sem tengj­ast fíkni­efnum - þá tekst með engu móti að hindra að fíkni­efni kom­ist í umferð til þeirra sem eru háðir þeim, eða þeirra sem vilja neyta þeirra. 

Tölur á blaði

Síðan segja tölur um hald­lögð efni litla sögu. Nokkuð stöðugt hefur verið und­an­farin hversu mikið magn lög­regla og toll­gæsla ná að leggja halda á. Þetta stendur ekki í sam­hengi við miklar breyt­ingar sem orðið hafa á íslensku sam­fé­lagi á und­an­förnum árum.

Á sama tíma og ferða­mönnum fjölg­aði fimm­falt, úr 450 þús­und í 2,3 millj­ónir árlega, og mik­ill þróttur var í efna­hags­líf­inu, þá var ekki lagt hald á mun meira af efnum.

Til þess að sporna við fíkni­efna­vanda, ekki síst hjá ungum fíklum, hafa stjórn­völd heitið meiri heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir fíkla, meðal ann­ars með áherslu á að opna heil­brigð­is­kerfið meira fyrir fíklum, reyna að ná til þeirra með lækn­is­þjón­ustu, áður en það verður of seint.

Þetta er raunar sami boð­skapur og SÁÁ hefur talað fyrir um ára­bil, en oft hefur verið tog­streita milli SÁÁ og stjórn­valda, ekki síst þegar kemur að fjár­veit­ingum til með­ferð­ar­starfs.

Í fyrra fjölg­aði inn­lögnum á Vogi en þær voru 2.275 sam­tals. Það gerir á bil­inu 6 til 7 á degi hverjum. Á árinu 2017 voru inn­lagn­irnar 2.219. Í upp­lýs­ingum sem SÁÁ hefur sent frá sér, meðal ann­ars grein­ar­gerð um starf­sem­ina, má glögg­lega sjá að engin merki sjást um það að vanda­mál vegna fíkni­vanda í sam­fé­lag­inu séu að minnka.

Þvert á móti eru flestar tölur á þann veg, að vand­inn hefur frekar auk­ist og hin ógn­væn­lega þróun vegna ópíóða­fíknar og auk­innar neyslu á sterkum verkja­lyfum - sem hefur drepið meira en tutt­ugu ung­menni á innan við ári - bendir til þess að þörf sé á mun umfangs­meiri aðgerðum heldur en nú hefur verið gripið til. 

Þar helst er að efla heil­brigð­is­þjón­ustu við fíkni­sjúka. Reynslan af lækn­is­með­ferðum og lyfja­gjöf við fíkni­vanda -, er á heild­ina litið góð, þó oft séu brotala­mir og erf­ið­leikar hjá sjúk­lingum við að ná bata.

Í grein­ar­gerð SÁÁ um starf­sem­ina er sér­stak­lega vikið að þessu, og þá meðal ann­ars göngu­deildum, sem hafa verið hluti af starf­sem­inni síðan 1978. Ein­hverra hluta vegna hefur sá hluti með­ferð­ar­vinn­unnar með sjúk­lingum, sem er lyk­il­at­riði í bata­ferli sjúk­linga, ekki verið fjár­magn­aður af hinu opin­bera. Þess vegna lendir hann undir nið­ur­skurð­ar­hníf, þegar for­gangs­raða þarf of fáum krónum og aurum, líkt og gerð­ist á Akureyri á dögum, þegar göngu­deild var aflögð. 

130 einstaklingar eru á viðhaldsmeðferð

Eitt af því sem hefur reynst vel á Íslandi, við ópíóða­far­aldr­inum, er gagn­reynd lyfja­með­ferð við alvar­legri ópíóíða­fíkn. Það er tíma­frek með­ferð undir eft­ir­liti lækna. Um 130 ein­stak­lingar eru í því sem kallað er við­halds­með­ferð, sem hefst á Vogi, en lýkur á göngu­deild.

Hún fækkar dauðs­föllum, minnkar skaða og leiðir til bata vegna alvar­legrar fíknar í sterk verkja­lyf.

Flestir sjúk­linga hafa sprautað lyfj­unum í æð og/eða haft alvar­legar afleið­ingar af lyfja­neysl­unni. Lyfin sem notuð eru til við­halds­með­ferðar eru mixt met­hadone og t. bupren­orp­hine/naloxone, að því er kemur fram hjá SÁÁ.

Náin eft­ir­fylgd er með lyfja­töku og vímu­efna­neyslu.

Tekin er ákvörðun um þvagprufur, aðlögun að skammti eða nið­ur­tröppun í reglu­legum við­tölum við lækni, og því má segja að um sam­vinnu­verk­efni sjúk­lings og læknis sé að ræða.

Nákvæm taln­ing og skrá er yfir hverja töflu sem afhent er og mikil vinna vegna eft­ir­rit­un­ar­skyldu frá Lyfja­stofnun og upp­lýs­inga til Sjúkra­trygg­inga Íslands sem greiða lyfin.

Ráð­gjafar og hjúkr­un­ar­fólk taka sýnin eftir ákveðnum fyr­ir­myndum, hjúkr­un­ar­vakt vinnur rann­sókn­ina og les svörin, rit­arar skrá nið­ur­stöður í sjúkra­skrá, læknar bregð­ast við nið­ur­stöðum og ræða við ein­stak­ling­inn eftir því sem við á.

Innlögnum á Vog fjölgaði í fyrra. Mynd: Úr safni
Inn­lögnum á Vog fjölg­aði í fyrra. Mynd: Úr safni

Lækn­is­með­ferð og eft­ir­fylgd Inngrip er alla daga ef bregð­ast þarf við frá­vikum, falli í neyslu, veik­indum o.fl., oft­ast í við­tölum á göngu­deild Vogs.

Fyrir suma er með­ferðin ein­göngu skaða­minnk­andi, t.d. hjá fólki í sífelldri hættu­legri neyslu eða með vit­ræna skerð­ingu. Und­ir­búin við­töl við lækna eru á þriðju­dögum, önnur við­töl eru bókuð á lækna eftir atvikum. Lyf­seðlar fara raf­rænt í lyfja­gátt en leyst úr þeim ein­göngu á hjúkr­un­ar­vakt Vogs, lyfja­af­hend­ingar og sam­töl þar eru yfir 7000 á ári. Flett er upp í lyfja­gagna­grunni land­læknis varð­andi önnur lyf ein­stak­lings­ins, en almennt eru ekki gefin ávana­bind­andi lyf með við­halds­með­ferð.

Ein­stak­lingur á við­halds­með­ferð er í upp­hafi í annarri með­ferð við fíkni­sjúk­dómnum hjá SÁÁ og einnig á stundum hjá LSH en góð sam­vinna er á milli sjúkra­hús­anna um þessa sér­hæfðu með­ferð. Hluti karl­mann­anna hefja batann á með­ferð­ar­heim­il­inu Vin, sam­vinnu­verk­efni sem rekið er af SÁÁ. Þeir eru gjarnan þar í allt að átján mán­uði og fá mikla með­ferð á göngu­deild Vogs sam­hliða.

Áhrifin af neyslu hjá sjúk­lingi sem er á þessum stað, eru lang­vinn og stundum var­an­leg. En með mik­illi eft­ir­fylgni og nákvæmri vinnu lækna og heil­brigð­is­starfs­fólks, með sjúk­lingnum, þá er ljós við enda gang­anna og því betur mörg dæmi um að fíklar nái bata og haldi áfram með lífið, þrátt fyrir að sorg­ar­sög­urnar séu einnig margar.

Langhlaup

Í ítar­legri skýrslu UNODC, stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna sem vinnur gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, er fjallað um fíkni­efna­mark­að­inn. Í skýrsl­unni er byggt á frum­gögnum frá lög­reglu­emb­ættum aðild­ar­ríkja, og einnig öðrum stofn­unum sem búa yfir upp­lýs­ingum um fíkni­efna­mark­að­inn í hverju landi.

Í upp­hafi skýrsl­unni, fyrir árið 2017, segir að talið sé að um 250 millj­ónir manna - og um 5 pró­sent af öllum full­orðnum í heim­inum - hafi neytt fíkni­efna í það minnsta einu sinni á ári. Það sem veldur síðan miklum áhyggjum, að mati UNODC, er að meira en 30 millj­ónir manna glíma við mik­inn vanda vegna neyslu fíkni­efna. Þessi hópur er að stækka og umfang fíkni­efna­við­skipta - bæði svo­nefndra nátt­úru­lega efna (kanna­bis, kókaín), verk­smiðju­fram­leiddra (amfetamín, LSD, osvfrv.) og síðan verkja­lyfja - vex stöðugt.

Yuri Fedotov, fram­kvæmda­stjóri UNODC og rit­stjóri World Drug Report, segir í inn­gangi skýrsl­unnar að árlega sé áætlað að um 190 þús­und manns deyi vegna ópíóða og of stórs skammts. Hann ítrekar að miklu meira þurfi að gera til aðstoða fíkla og þar verði heil­brigð­is­starfs­fólk að vera í fram­varð­ar­sveit­inni. Það sé fólkið sem geti tekið á vanda­mál­unum, fremur en nokkur annar. Þá segir hann einnig að það sem mestu skipti sé að virða það, að um lang­hlaup sé að ræða sem krefj­ist alþjóð­legrar sam­vinnu og heil­inda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannlíf

Mest lesið undanfarið ár