Vilja setja skilyrði við ráðningar í íþrótta- og æskulýðsstarf

Samkvæmt nýjum drögum að frum­varpi að lögum verður óheim­ilt að ráða til starfa hjá aðilum sem sinna íþrótta­starfi ein­stak­linga sem hlotið hafa refsi­dóm vegna brota á sér­stökum ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga.

Börn æfa fótbolta
Börn æfa fót­bolta Mynd: Pexels

Óheimilt verður að ráða til starfa hjá aðilum sem sinna íþrótta­starfi ein­stak­linga sem hlotið hafa refsi­dóm vegna brota á sér­stökum ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga. Sama gildi um þá sem hlotið hafa refsi­dóm fyrir brot gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkni­efni á síð­ast­liðnum fimm árum.

Ákvæðið mun einnig ná til þeirra sem falin er umsjón með íþrótta­starfi á grund­velli sjálf­boða­liða­starfs.

Þetta kemur fram í nýjum drögum að frum­varpi til laga um sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs. Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra setur drögin fram og eru þau nú komið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Umsagn­ar­frestur er til 29. októ­ber næst­kom­andi.

Við ráðn­ingu til starfa hjá þeim aðilum sem falla undir lög skal ávallt liggja fyrir saka­vott­orð og upp­lýs­ingar úr saka­skrá um það hvort umsækj­andi hafi hlotið refsi­dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegn­ing­ar­laga. Á þetta við hvort sem ein­stak­lingur hyggst taka að sér launað starf eða sjálf­boða­liða­starf, eins og fyrr segir.

Íþrótta- og æskulýðsstarf skuli fara fram í öruggu umhverfi

Starfs­svið sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs nær til skipu­lagðrar starf­semi á vegum Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands­ins, Ung­menna­fé­lags Íslands, æsku­lýðs­sam­taka sem starfa á grund­velli æsku­lýðslaga og aðila sem gera samn­ing við það ráðu­neyti sem fer með íþrótta- og æsku­lýðs­mál um rekstr­ar­fram­lag vegna sam­bæri­legrar starf­semi.

Í drög­unum kemur fram að mark­mið lag­anna sé að íþrótta- og æsku­lýðs­starf fari fram í öruggu umhverfi þar sem börn, ung­lingar og full­orðnir, óháð kyn­ferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æsku­lýðs­starf og leitað sér aðstoðar eða réttar síns vegna atvika og mis­gerða sem þar koma upp án ótta við afleið­ing­arnar.

Setja á fót starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs

Ráðherra setur á fót starf sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs til fimm ára í senn. Eftir 1. jan­úar 2023 getur ráð­herra lagt niður starf­sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs að feng­inni umsögn hags­muna­að­ila. Sam­skipta­ráð­gjafi íþrótta- og æsku­lýðs­starfs skal hafa háskóla­menntun og þekk­ingu sem nýt­ist í starfi.

Frum­varpið er unnið í mennta- og menn­ing­ar­ráðu­neyti á grund­velli vinnu starfs­hóps sem skip­aður var þann 19. mars síð­ast­lið­inn í kjöl­far yfir­lýs­inga íþrótta­kvenna undir myllu­merk­inu #metoo ásamt frá­sögnum þeirra.

Brýnt að starfinu verði komið á fót með lögum

Starfs­hóp­inn skip­uðu Óskar Þór Ármanns­son, sem var jafn­framt for­maður, Val­gerður Þórunn Bjarna­dóttir, Elísabet Pét­urs­dóttir, Jóna Páls­dóttir og Guðni Olgeirs­son frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu, Ása Ólafs­dóttir frá Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bandi Íslands, Auður Inga Þor­steins­dóttir frá Ung­menna­fé­lagi Íslands, Heiðrún Janus­ar­dóttir frá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og Hafdís Inga Helgu­dóttir Hin­riks­dóttir frá #metoo-hreyf­ingu íþrótta­kvenna.

Starfs­hópnum var ætlað að gera til­lögur um aðgerðir, meðal ann­ars með því að skoða þá verk­ferla sem gilda og gera til­lögur til úrbóta þar sem þess er þörf. Með frum­varp­inu er lagt til að stofnað verði til starfs sér­staks sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs sem skal hafa það meg­in­hlut­verk að bæta umgjörð til að tryggja öryggi þeirra sem taka þátt í starfi þeirra sam­taka og félaga sem frum­varp þetta nær til.

Að mati starfs­hóps­ins er afar brýnt að starf­inu verði komið á fót með lögum en það er for­senda þess að meg­in­mark­miði frum­varps­ins verði náð. Í þessu sam­hengi ber að nefna að frum­varpið veitir sam­skipta­full­trú­anum heim­ild til krefja þá sem skipu­leggja eða bera ábyrgð á íþrótta- og æsku­lýðs­starfi um allar þær upp­lýs­ingar sem hann metur nauð­syn­legar til að sinna hlut­verki sínu og er við­kom­andi aðilum þá skylt að afhenda honum umbeðnar upp­lýs­ingar, óháð þagn­ar­skyldu við­kom­andi aðila.

Hundruð kvenna skrifuðu undir #metoo-yfirlýsingu

Íþrótta­konur sendu frá sér yfir­lýs­ingu í jan­úar síð­ast­liðnum vegna #metoo þar sem kom fram að þær sættu sig ekki við þá mis­munun, ofbeldi og áreitni sem hefur við­geng­ist á vett­vangi íþrótta fram til þessa. Meðal þess sem fram kom í yfir­lýs­ing­unni var að konum yrði gert kleift að segja frá ofbeldi án þess að það kæmi niður á fram­tíð­ar­mögu­leikum þeirra innan íþrótt­ar­innar og að á þær yrði hlustað, staðið með þeim og þeim trúað.

Undir yfir­lýs­ing­una skrif­uðu 462 íþrótta­konur. Samhliða yfir­lýs­ing­unni og und­ir­skriftum sendu íþrótta­kon­urnar frá sér 62 frá­sagnir sem lýstu margs­konar ofbeldi, áreitni, mis­munum, nið­ur­læg­ingum og ann­ars­konar mis­rétti sem þær höfðu orðið fyrir innan íþrótta. Frá­sagn­irnar vöktu upp mikil við­brögð í sam­fé­lag­inu þar sem að alvar­leiki frá­sagn­anna var í mörgum til­vikum mik­ill. Mörg atvikin áttu sér stað þegar kon­urnar voru undir 18 ára aldri ásamt því sem í sumum til­vikum var um brot að ræða sem eru refsi­verð sam­kvæmt ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár