Rúmur hálfur milljarður í afslátt af námslánum frá því í fyrra

Frá því að ný lög um Mennta­sjóð námsmanna tóku gildi í fyrra hafa tæplega tvö þúsund manns fengið samtals rúman hálfan milljarð í afslátt frá ríkinu vegna uppgreiðslu námslána. Hægt er að fá allt að 15 prósent afslátt af uppgreiðslu eldri lána.

Frá því að lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi síðasta sumar hefur verið hægt að fá allt að 15 prósenta uppgreiðsluafslátt hjá sjóðnum. Það hafa margir nýtt sér.
Frá því að lög um Mennta­sjóð náms­manna tóku gildi síð­asta sumar hefur verið hægt að fá allt að 15 pró­senta upp­greiðslu­af­slátt hjá sjóðnum. Það hafa margir nýtt sér. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frá því að Mennta­sjóður námsmanna byrjaði að bjóða upp á allt að 15 prósenta uppgreiðsluafslátt vegna uppgreiðslu eldri lána og auka­innborgana á skulda­bréf hafa tæplega tvö þúsund manns fengið rúman hálfan milljarð í afslátt frá stofnuninni fyrir að greiða upp námslán sín, samkvæmt svari sjóðsins við fyrir­spurn Kjarnans.

Uppgreiðsluafslátturinn var hækkaður upp í allt að 15 prósent um mitt ár í fyrra með nýjum lögum um Mennta­sjóðinn, sem áður hét Lána­sjóður íslenskra námsmanna. Samkvæmt Hrafnhildi Ástu Þorvalds­dóttur framkvæmda­stjóra sjóðsins hafa auka­innborganir og uppgreiðslur til sjóðsins aukist frá því sem áður var, eftir að þessar breytingar voru gerðar.

Nánar tiltekið hafa alls 1.923 einstaklingar greitt upp námslán sín frá því að breyting á afsláttar­kjörunum tók gildi. Nemur veittur afsláttur vegna uppgreiðslna skulda­bréfa 480,3 milljónum króna en heildar­afsláttur vegna auka­innborgana á skulda­bréf 36,7 milljónum króna.

Hærri lán – meiri afsláttur

Það fer eftir því hversu mikið fólk skuldar í námslán hversu hár afslátturinn verður, en þeir sem skulda meira fá hærri afslátt.

Ef greiðandi skuldar eina milljón króna samanlagt af öllum skulda­bréfum sem eru komin í innheimtu nemur afslátturinn 5 prósentum og fer síðan hækkandi og er veittur hámarks­afsláttur, 15 prósent, ef greið­andinn skuldar 4,8 milljónir króna eða meira.

Sótt er um uppgreiðsluafsláttinn rafrænt á vef Mennta­sjóðsins og fá greið­endur í kjölfarið sendan greiðslu­seðil í heima­banka þar sem búið er að draga frá upphæðinni þann afslátt sem viðkomandi á rétt á.

Eingöngu hægt að fá afslátt vegna uppgreiðslu á eldri lánum og afslátt vegna auka­innborgana af námslánum samkvæmt eldri lögum. Ekki er hægt að fá uppgreiðsluafslátt af svokölluðum H-lánum, sem eru þau lán sem veitt eru í dag. Þau fela í reynd í sér styrkja­kerfi fyrir námsmenn, en þeir sem ljúka námi á tilsettum tíma eiga rétt á 30 prósent niður­fellingu höfuðstóls náms­lánsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár