Ólöf Helga taldist ekki hafa umboð sem trúnaðarmaður – Uppsögnin ekki ólögleg

Félags­dómur hefur komist að þeirri niður­stöðu að Icelandair hafi ekki brotið gegn lögum með því að segja Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur upp störfum sem hlaðmanni á Reykja­víkur­flugvelli.

Ólöf Helga Adolfsdóttir var fyrrverandi trúnaðarmaður hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli er henni var sagt upp, að mati Félagsdóms.
Ólöf Helga Adolfs­dóttir var fyrr­ver­andi trún­að­ar­maður hlaðmanna á Reykja­vík­ur­flug­velli er henni var sagt upp, að mati Félags­dóms. Mynd: Efling stéttarfélag

Ekki er hægt að líta svo á að Ólöf Helga Adolfs­dóttir hafi í reynd haft umboð sem trúnaðar­maður hjá Icelandair er flug­félagið sagði henni upp störfum í ágúst í fyrra og ekki er heldur unnt að leggja til grund­vallar að henni hafi verið sagt upp sökum þess hvernig hún beitti sér sem öryggis­trúnaðar­maður á vinnu­staðnum.

Þetta eru megin niður­stöður Félags­dóms, sem kvað upp dóm í málinu sem varðar uppsögn Ólafar Helgu frá Icelandair í dag. Samtök atvinnu­lífsins fyrir hönd Samtaka ferða­þjónustunnar vegna Icelandair teljast því sýkn af kröfum Alþýðu­sambands Íslands, sem settar voru fram fyrir hönd Starfs­greina­sambandsins vegna Eflingar stéttar­félags sem rak málið áfram fyrir Ólöfu Helgu.

Engu breyti þótt samstarfsmenn hafi talið Ólöfu trúnaðarmann

Mál Ólafar Helgu vakti töluvert mikla athygli er það kom upp, en stéttar­félagið Efling fór fram á að uppsögn hennar yrði dregin til baka þar sem óheimilt væri fyrir Icelandair að segja upp starfandi trúnaðar­manni. Icelandair bar því hins vegar við að Ólöf Helga hefði ekki lengur haft umboð sem trúnaðar­maður, en hún var kjörin af samstarfs­fólki sínu til þess hlutverks í mars 2018 til tveggja ára.

Félags­dómur komst að þeirri niður­stöðu að ágreinings­laust væri að ekki hefði farið fram kosning á trúnaðar­manni á vinnu­staðnum eftir að því tímabili lauk, auk þess sem ekki væri séð að Ólöf Helga hefði verið tilnefnd af Eflingu stéttar­félagi án kosningar eða að upplýsingum um val hennar til áfram­haldandi starfa sem trúnaðar­maður starfs­manna hefði verið komið á framfæri við Icelandair.

„Í ljósi þeirra atvika sem rakin hafa verið að framan og hinna skýru ákvæða sem giltu um aðferð við val trúnaðar­manns samkvæmt kjara­samningi er ekki unnt að líta svo á að Ólöf Helga hafi haft stöðu trúnaðar­manns þegar henni var sagt upp störfum í ágúst 2021,“ segir í dómi Félags­dóms.

Einnig er því bætt við að það geti „ekki breytt þessari niður­stöðu þó að a.m.k. einhverjir samstarfs­menn Ólafar Helgu, sem og tilteknir stjórn­endur, kunni að hafa litið á hana sem trúnaðar­mann“. Vísað er til dóma­fordæmis úr Hæstarétti hvað þetta atriði varðar.

Ólöf Helga hafði einnig verið svokallaður öryggis­trúnaðar­maður hjá Air Iceland Connect áður en henni var sagt upp og taldi sig einnig eiga að njóta verndar vegna uppsagna á þeim grund­velli.

Félags­dómur segir óumdeilt að Ólöf Helga og annar starfs­maður Air Iceland Connect hafi verið kosin í febrúar 2020 til þess að gegna starfi öryggis­trúnaðar­manna í öryggis­nefnd fyrir­tækisins, þó að reyndar sé tiltekið í dómnum að það séu engin merki um að sú nefnd hafi nokkru sinni komið saman.

Dómurinn féllst hins vegar einnig á röksemdir Icelandair þess efnis að þegar starfsemi Air Iceland Connect var felld undir hatt Icelandair hafi umboð öryggis­nefndar þeirrar sem var á vegum Air Iceland Connect fallið niður – öryggis­nefndin hætt að vera til.

Þrátt fyrir það telur dómurinn að Ólöf Helga hafi áfram, eftir að Icelandair samtvinnaði rekstur innan­lands­flugsins við móður­félagið, átt að njóta þeirrar verndar gegn uppsögn sem staða hennar sem öryggis­trúnaðar­maður veitti henni.

Félags­dómur telur hins vegar ekki unnt að leggja til grund­vallar að það hafi verið fyrri störf Ólafar Helgu sem öryggis­trúnaðar­manns sem hafi verið ástæða uppsagnarinnar, jafnvel þótt ástæða uppsagnarinnar sé sögð „nokkuð á reiki“.

„Þegar upp kom ágrein­ingur um hvort starfs­menn hlað­deildar eða farþega­afgreiðslu skyldu annast flutning farþega um borð í flugvélar hafði Ólöf Helga ekki forgöngu um að málið yrði tekið upp á vettvangi öryggis­nefndar fyrir­tækisins. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að framganga hennar í málinu hafi aðallega byggst á stöðu hennar sem flokks­stjóra í hlaðdeild og að öðru leyti sem málsvari starfs­manna deildarinnar enda þótt hún hafi ekki gegnt stöðu trúnaðar­manns,“ segir um þetta atriði í dómi Félags­dóms.

Dómnum þótti rétt að láta máls­kostnað milli aðila falla niður í ljósi atvika málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár