Vond staða Boeing versnar

Framkvæmda­stjóri verk­fræðis­viðs Boeing hefur verið látinn fara. Mikill titringur er innan fyrir­tækisins vegna rann­sóknar á flug­slysum í Indónesíu í október og Kenía fyrr í mánuðinum.

John Hamilton, framkvæmda­stjóri verkfræðisviðs Boeing, er hættur störfum og má rekja það til rann­sóknar á tveimur flug­slysum, í Indónesíu í október og Kenía fyrr í mánuðinum, sem leiddi til þess að allir um borð létust í báðum tilvikum, samtals 346.

Eins og greint hefur verið frá þá hefur flug verið bannað á Boeing 737 Max vélunum á meðan það er rannsakað hvað olli því að vélarar hröpuðu skömmu eftir flugtak. Það létust 189 í slysinu í Indónesíu en 157 í Kenía.

Spjótin beinast að hugbúnaði í vélunum, svokölluðu MCAS-kerfi, sem á að koma í veg fyrir ofris. Samkvæmt skrifum Seattle Times hefur uppfærsla á kerfinu miðað að því að gera það öruggara, meðal annars með því að hafa dýpri gagna­grunna að baki skynjara­kerfinu, svo að það geti ekki farið í gang upp úr þurru og valdið slysum. Mikið er undir í þessari vinnu, eins og gefur að skilja.

Seattle Times hefur fjallað ítarlega um stöðu mála hjá Boeing frá því fyrir slysin bæði, og meðal annars sagt frá mikilli framleiðslu­pressu svo félagið geti staðið við afhendingar á nýjum vélum til viðskipta­vina. Ljóst er að það verður mikið vandamál hjá félaginu á meðan ekki hefur fengist botn í það hvað nákvæmlega olli slysunum.

Í slysinu í Indónesíu náði auka­flugmaður á frívakt að koma í veg fyrir slys, samkvæmt umfjöllun Bloomberg í dag, degi áður en sama vél hrapaði með fyrr­greindum afleiðingum, með því að slökkva á kerfi vélarinnar og taka sjálfur stjórnina og lenda vélinni. Hann greindi flugmála­yfirvöldum frá því að það væri eitthvað að vélinni og að það þyrfti að skoða skynjara sem tengjast fyrr­nefndu MCAS-kerfi.

Í umfjöllun Seattle Times hefur komið fram, að blaðið sendi fyrir­spurnir til Boeing og flugmála­yfirvalda í Banda­ríkjunum, varðandi uppfærslu á kerfinu og hvort Boeing hefði fengið að hafa eftirlit með eigin vinnu, til að geta staðið við framleiðslu­áætlun. Blaðið sagðist hafa heimildir fyrir því. Þetta var ellefu dögum fyrir seinna slysið.

Í dag greindi það frá því að varnarmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna, Pentagon, væri farið af stað með sjálf­stæða rannsókn á því hvort vanda­málunum hjá Boeing hefði verið sópað undir teppið hjá bandarískum flugmála­yfirvöldum.

Bandarísk flugmála­yfirvöld neituðu fyrst að banna flug á fyrr­nefndum vélum frá Boeing, en eftir að flest ríki og alþjóða­stofnanir gerðu það, þá létu bæði Boeing og bandarísk yfirvöld undan. Evrópu­sambandið ítrekaði í dag að bannið yrði í gildi þar til öllum spurningum hefði verið svarað.

Boeing er stærsti vinnu­veitandinn á Seattle svæðinu með um 80 þúsund starfs­menn, en í fullum afköstum hefur fyrir­tækið verið að koma frá sér yfir 50 vélum á mánuði til viðskipta­vina, undan­farin misseri.

Í umfjöllun Reuters hefur komið fram að vanda­málin hjá Boeing, og bannið við notkun á 737 Max vélunum, hafi leitt til mikilla vandamála hjá mörgum flug­félögum sem eigi erfitt með að halda áætlunum sínum, þar sem erfitt er að fá nýjar vélar.

Airbus, samkeppnis­aðili Boeing, getur ekki annað eftispurn, og því hafa skapast aðstæður, þar sem flugfélög hafa einfald­lega þurft að fella niður ferðir eða endur­skipuleggja áætlanir sínar mikið, með tilheyrandi erfið­leikum fyrir viðskipta­vini og kostnaðar­aukningu í rekstri.

Icelandair tók þrjár vélar úr notkun, en segist hafa svigrúm til skamms tíma til að mæta því með notkun á öðrum vélum í flota sínum. Til langs tíma miða hins vegar áætlanir að því að fá nýjar 737 Max vélar frá Boeing.

Uppfært: 20:26. Bandaríska alríkis­lögreglan FBI hefur einnig hafið rannsókn á Boeing og sambandi þess við bandarísk flugmála­yfirvöld, að því er Seattle Times greindi frá í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár