Jón Gnarr segir heiftina hafa farið út fyrir allan þjófabálk: Við erum ekki svona fólk

Þingmaður Viðreisnar segir kosninga­baráttuna hafa verið sorglega á köflum og hótanir gagnvart formanni Viðreisnar hafi verið fyrir neðan allar hellur.

Jón Gnarr

Þingmaður Viðreisnar, Jón Gnarr, segir umræðuna í kringum kosninga­baráttuna fyrir þjóðar­atkvæða­greiðsluna hafa verið sorglega á köflum. „Ég er að mestu leyti sáttur, kannski að heiftin hefur farið út fyrir allan þjófabálk, og mér sýnist það mjög sorglegt,“ segir Jón. Heimildin ræddi við Jón í gærkvöldi í Hafnar­húsinu, áður en niður­staða kosninganna var ljós.

Spurður hvort það sé lærdómur falinn í barátt­unni svarar Jón, „já, alveg fullt,“ og springur svo út hlátri.

Formaður Viðreisnar upplýsti um það fyrir helgi að henni hefðu borist alvarlegar hótanir sem hafa beinst að henni og fjöl­skyldu hennar.

„Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur og þetta er ekki það fólk sem við erum. Við erum ekki svona fólk. Og við eigum ekki að líða svona dónaskap og ógnanir, það er bara algjör­lega óásættanlegt,“ segir Jón.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Shouldn't the result of the referendum be challenged given the way the campaign went?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár