Tímasetning frá bólusetningu að sýkingu gæti skipt sköpum

Ný rannsókn bendir til þess að lengri tími milli bólu­setningar og sýkingar af völdum kórónu­veirunnar sé betri en styttri.

Tíma­setning á bólu­setningu og smiti fólks af kórónu­veirunni gæti verið lykil­atriði þegar kemur að því að verjast ómíkron-bylgjunni. Rannsókn japanskra vísinda­manna bendir til að fólk sem smitast hefur af kórónu­veirunni nýju, SARS-CoV-2, nokkrum mánuðum eftir að hafa fengið bólu­setningu hafi betri vörn gegn ómíkron-afbrigði veirunnar en þeir sem styttra leið á milli bólu­setningar og sýkingar.

Í grein í vísinda­tímaritinu Nature um rann­sóknina segir að þetta gæti þýtt að lönd þar sem smit­bylgja annarra afbrigða en ómíkron gekk yfir á síðari hluta síðasta árs séu í betri stöðu nú í upphafi nýs árs en annars hefði verið.

Í mörgum löndum hefur hver smit­bylgjan á fætur annarri riðið yfir og ónæmi þar með að einhverju leyti myndast gegn alvarlegum sýkingum. En í Japan er staðan nokkuð önnur og ónæmi fyrst og fremst tilkomið með bólu­setningum með mRNA-bóluefnum.

Aðal­höfundur rann­sóknarinnar, smit­sjúkdóma­sérfræðingurinn Takeshi Arashiro, segir teymi hans hafa viljað vita hvort að þessi staða gerði það að verkum að japanska þjóðin væri sérstak­lega móttækileg fyrir ómíkron-afbrigðinu. Enn sem komið er hafa ekki margir bólu­settir sýkst af ómíkron í landinu.

Teymið safnaði mótefni frá Japönum sem höfðu fengið tvo skammta af bóluefni Pfizer en höfðu síðar sýkst annað hvort af alfa-afbrigði veirunnar eða delta. Þeir rann­sökuðu svo hæfni mótefnisins til að vernda ræktaðar frumur gegn sýkingu af veirunni. Niður­staðan var sú að sá tími sem hafði liðið frá bólu­setningu og til sýkingar fólks skipti sköpum þegar kom að því að verjast endur­sýkingu – sérstak­lega af völdum ómíkron-afbrigðisins.

Samræmist almennum skilningi vísindanna

Nature ræðir einnig við ónæmis­sérfræðinginn Jennu Guthmiller sem starfar við Háskólann í Chigago. Hún segir rannsókn japönsku vísinda­mannanna, sem ekki hefur enn verið ritrýnd, áhuga­verða og að hún samræmist almennum skilningi vísindanna á því hvernig mótefni virka og breytast með tímanum.

Guthmiller útskýrir að bólu­setning kalli fram mótefna­svar í líkamanum rétt eins og náttúruleg sýking. Ef manneskja sýkist fljótlega eftir bólu­setningu eru mótefnin líklega enn í blóð­rásinni þar sem þau bindast veirunni og útrýma henni.

Þegar manneskja hins vegar sýkist nokkrum mánuðum eftir bólu­setningu hefur hún myndað minnis­frumur sem þekkja sýkilinn (veiruna) er hann reynir inngöngu í líkamann og getur, fræðilega séð, varist sýkingu betur.

Þar sem náttúrulegt ónæmi er lítið í Japan eru miklar vonir bundnar við örvunar­skammta bólu­efnanna til að verjast ómíkron. Örvunar­skammtarnir gætu mögulega virkað eins og hin sviðsetta endur­sýking í japönsku rann­sókninni en það á hins vegar enn eftir að rannsaka sérstak­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár