Obrador lýsir yfir sigri – Nýr forseti í Mexíkó

Eftir 100 ára valdasetu tveggja hægri-flokka í Mexíkó vinnur vinstri­maðurinn Andrés Manuel López Obrador í kosningum sem haldnar voru í gær. Hann segist ætla að taka á „djöfullegri“ spillingu í landinu.

Andres Manuel Lopez Obrador fagnar sigri í kosningum.
Andres Manuel Lopez Obrador fagnar sigri í kosn­ingum. Mynd: EPA

Andres Manuel Lopez Obrador verður næsti forseti Mexíkóa, samkvæmt útgöngu­spám. Mexíkóar gengu til kosninga í gær til að velja sér nýjan forseta, þing og sveita­stjórnir. Kjósendur biðu í löngum röðum fyrir utan skóla og félags­heimili víða um landið en um 88 milljónir manns eru á kjörskrá. Þetta kemur fram í frétt RÚV um málið.

Vinstri­maðurinn Obrador fær rúm 53 prósent atkvæða, samkvæmt síðustu útgöngu­spám, en íhalds­maðurinn Ricardo Anaya 23 prósent.

Hann hét því fyrir kosningar að taka á „djöfullegri“ spillingu og samkvæmt BBC segir hann að hún hafi orsakað ójöfnuð og ofbeldi í landinu. Hann lofaði að tvöfalda elli­lífeyri og að sækjast eftir vinsam­legu sambandi við nágranna­ríkið, Banda­ríkin. 

Í frétt RÚV kemur fram að tveir flokkar hafi verið við völd í Mexíkó í næstum hundrað ár en í dag sé útlit fyrir að svo verði ekki lengur. Andres Manuel Lopez Obrador, sem er oft einfald­lega kallaður Amló eftir skamm­stöfun sinni, sé fyrr­verandi borgar­stjóri Mexíkó­borgar og fram­bjóðandi vinstri manna.

„Obrador er ýmist lýst sem vinstri­manni, popúlista eða þjóðernis­sinna, segir í umfjöllun Reuters. Andstæðingar hans hafa líkt honum við Hugo Chavez og sagt að hann sé einfari sem ekki beri að treysta með efnahag landsins. Kjósendur virðast hins vegar ekki hafa tekið mark á þeim skila­boðum. Mikillar reiði gætir í garð Enrique Pena Nieto, sitjandi forseta, sem og efnahags­ástands landsins, víðtækrar spillingar og glæpa, segir skýrandi breska ríkis­útvarpsins. Obrador hefur sagt að flokkur Nietos, PRI, og hinn flokkurinn sem verið hefur verið við völd, PAN, séu ein og sama valda­mafían. Hann teflir fram vinstri­samsteypu í forystu eigin flokks, Morena,“ segir í frétt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár