Moderna sakað um að geyma hagnaðinn sinn í skattaskjólum

Hollenska hugveitan SOMO hefur sakað Moderna, sem hefur fengið háar fjárhæðir í styrkjum frá hinu opinbera til að þróa bóluefni gegn COVID-19, um að rukka háar fjárhæðir fyrir bóluefnið sitt og geyma svo hagnaðinn á lágskatta­svæðum..

Höfuðstöðvar Moderna í Massachusetts í Bandaríkjunum
Höf­uð­stöðvar Moderna í Massachusetts í Banda­ríkj­unum Mynd: EPA

Bóluefna­fram­leiðandinn Moderna hefur opnað skrif­stofur í Sviss og í Delaware í Banda­ríkjunum. Báðir staðirnir eru á meðal „verstu skatta­skjóla heims“ samkvæmt nýrri úttekt frá hollensku hugveitunni SOMO, sem vefsíðan Politico fjallaði um.

Í úttektinni segir að þrátt fyrir að höfuð­stöðvar fyrir­tækisins séu í Massachusetts í Banda­ríkjunum sé móður­fyrirtæki þess skráð í Delaware, þar sem fyrirtækja­skattur er lágur og enginn skattur er á hugverka­leyfum. Alls er ein og hálf milljón fyrir­tækja skráð í ríkinu, þótt aðeins 973 þúsund manns búi þar.

Samkvæmt frétt Politico um málið hefur Moderna fengið einn milljarð Bandaríkja­dala í styrki frá Bandaríkja­stjórn fyrir þróun bólu­efnisins í gegnum aðgerðina Operation Warp Speed í fyrra. Til viðbótar við það greiddi Bandaríkja­stjórn um sjö og hálfan milljarð Bandaríkja­dala fyrir bóluefnis­skammta á vegum fyrir­tækisins.

Evrópu­sambandið hefur einnig pantað bóluefnis­skammta að andvirði tíu milljarða Bandaríkja­dala, en náði afslátt af þeim með því að greiða fyrir­tækinu strax 360 milljónir Bandaríkja­dala í fyrra­sumar.

Samkvæmt samningi Evrópu­sambandsins og Moderna sem SOMO birti í umfjölluninni sinni, fór þessi fjárhæð til útibús Moderna í Basel í Sviss, en hugveitan segir borgina vera eitt af helstu skatta­skjólum heimsins. Svissneska útibú Moderna var búið til í fyrra og hefur ekki, samkvæmt umfjöllun SOMO, unnið við þróun eða fram­leiðslu bólu­efnisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár