Hamri kastað inn um rúðu Gunnars Waage

Eftir að Arnþrúður Karls­dóttir auglýsti heimilis­fang Gunnars Waage, ritstjóra Sand­kassans, á Facebook síðu sinni, hafa honum borist morð­hótanir og aðfara­nótt mánudags flaug svo hamar inn um glugga á heimili hans. Gunnar segir Arnþrúði beita fjölmiðli sínum á þann hátt að hún hvetji til uppátækja hjá almenningi sem ekki samræmist lögum.

Hamarinn
Hamarinn sem Gunnar telur að Arn­þrúður beri ábyrgð á með aug­lýs­ingu á heim­il­is­fangi sínu

Aðfarar­nótt mánudags var hamri kastað í rúðu í stofu­glugga á heimili Gunnars Waage, ritstjóra Sand­kassans, sem titlað er „vefsetur um fjöl­menningu, jafnréttismál, menningu og listir“. Hamarinn fór í gegn um tvöfalt gler og endaði inni í stofu. Smávægilegar skemmdir urðu á innan­stokksmunum.

Talsvert hefur verið um hótanir undan­farna mánuði í garð ritstjóra Sand­kassans í kjölfar þess að Arnþrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri á Útvarpi sögu, auglýsti heimilis­fang hans á Facebook síðu sinni.

Hamarinn
Hamarinn og Arnþrúður

Lögregla var fengin á vettvang og skýrsla tekin. Athygli vakti þó hjá heimilis­fólki að lögreglan tók ekki hamarinn með sér en á honum gætu fundist fingraför sem gætu nýst lögreglu við rannsókn þessa máls. Ekki er vitað hvað vakir fyrir lögreglu að taka ekki sönnunar­gögnin í málinu með sér af vettvangi, en lögmaður Gunnars, Leifur Runólfsson, segir „þessi vinnu­brögð hjá lögreglu óásættanleg“. 

Á vefnum Sand­kassinn.com, sem Gunnar ritstýrir, hefur ítrekað verið vakin athygli á fordómum sem þrífast bæði á Íslandi og víðar og helstu tals­mönnum þeirra. Fyrir vikið hefur vefurinn og Gunnar verið á milli tannana á fólki ákveðnum hópum, til dæmis hlustendum Útvarps Sögu og meðlimum Íslensku þjóð­fylkingarinnar.

Rúðan sem brotnaði
Rúðan sem brotnaði Hamarinn fór í gegnum tvöfalt gler og hafnaði inni í stofu

Þann þriðja ágúst síðastliðinn auglýsti til að mynda Arnþrúður Karls­dóttir, eigandi Útvarps Sögu, heimilis­fang Gunnars á spjall­síðunni Stjórnmála­spjallið, þar sem hlustendur útvars­stöðvarinnar, stuðnings­fólk Þjóð­fylkingarinnar og einstaklingar með svipaðar skoðanir ræða saman. Í kjölfarið barst Gunnari morðhótun í ummælum á síðu Arnþrúðar. „Senda bara nokkra vaska menn og þagga niður í honum í eitt skipti fyrir öll ;)“ 

Gunnar segir að sér hafi borist nokkrar morð­hótanir, en lögreglan hafi ekkert aðhafst þar sem orðalagið sé ekki nógu afgerandi. „Ég hef fengið talsvert af morð­hótunum á unda­förnum mánuðum. Það er alveg ljóst að hún beitir sínum fjölmiðli og sinni stöðu sem útvarps­stjóra með þeim hætti að hún beinlínis hvetur til uppátækja hjá almenningi sem ekki samræmast lögum.“

Auglýsing Arnþrúðar
Auglýsing Arnþrúðar Arnþrúðir Karls­dóttir auglýsti heimilis­fang hjá Gunnari Waage og honum barst hótun í kjölfarið.

Aðspurður segist Gunnar ekki sérstak­lega áhyggju­fullur yfir atvikinu með hamarinn. Hann hafi svo sem vitað við hverju væri að búast þegar að hann lagði ritstjórnarlegar línur Sand­kassans í upphafi, en að heimilsfólki sé talsvert brugðið, þar á meðal 10 ára gamalli dóttur hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár