Sjálfsögð krafa almennings að fá upplýsingar um kröfuhafa fjölmiðla sem hafa áhrif

Fjöl­miðla­nefnd hefur nokkrum sinnum kallað eftir hlut­hafa­sam­komu­lögum og lána­samn­ingum fjöl­miðla til að kanna hvort aðrir en skráðir eig­endur hafi raun­veru­leg yfir­ráð yfir þeim. Slík gögn hafa aldrei verið afhent.

Lilja Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ef kröfu­hafar fjöl­miðla geta haft áhrif á rit­stjórn mið­ils­ins og efn­is­tök þá má telja það sjálf­sagða kröfu almenn­ings, sem notar efni fjöl­mið­ils­ins, að fá upp­lýs­ingar þar að lút­andi. Þetta kemur fram í svari Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Smára McCarthy, þing­manns Pírata, um eign­ar­hald fjöl­miðla sem birt var í dag.

Smári spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars að því hvort hún teldi nauð­syn­legt að fjöl­miðlar upp­lýstu um helstu kröfu­hafa sína, eða um raun­veru­leg yfir­ráð yfir fjöl­miðli og hvort að það sam­rýmd­ist anda fjöl­miðla­laga að ekki væri upp­lýst um helstu kröfu­hafa miðla.

Smári spurði Lilju einnig hvort fjöl­miðla­nefnd hefði ein­hvern tím­ann kallað eftir gögnum frá for­svars­mönnum fjöl­mið­ils sem sýndu fram á hver færi með raun­veru­leg yfir­ráð hans. Í svari Lilju segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem aflað hafi verið hjá fjöl­miðla­nefnd hafi nefndin kallað eftir gögnum frá for­svars­mönnum fjöl­miðla, til dæmis hlut­hafa­sam­komu­lögum og lána­samn­ingum sem gætu haft áhrif á yfir­ráð fjöl­mið­ils. „Í þeim til­vikum sem slíkra gagna hefur verið óskað hafa fjöl­miðla­veitur upp­lýst að samn­ingar feli ekki í sér nein frá­vik frá þeim reglum sem gildi almennt um stjórnun fyr­ir­tækj­anna sam­kvæmt hluta­fé­laga­lög­gjöf.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fjöl­miðla­nefnd hafa þeir fjöl­miðlar sem kallað hefur verið eftir upp­lýs­ingum um hlut­hafa­sam­komu­lög eða lána­samn­inga aldrei afhent nefnd­inni eða starfs­mönnum hennar slík. Hún telur sig ekki hafa vald­heim­ildir til að þess að grípa til aðgerða til að knýja fram afhend­ingum á slíkum gögnum.

Huldulán til fjölmiðlafyrirtækis

Áhrif kröfu­hafa fjöl­miðla á þá var til umfjöll­unar í fjöl­miðlum lands­ins í fyrra­haust vegna fyr­ir­tæk­is­ins Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Það keypti síðla árs 2017 DV, DV.is, Eyj­una, Press­una, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og sjón­­­varps­­­stöð­ina ÍNN. ÍNN hefur síðan verið sett í þrot.

Eig­andi Frjálsrar fjöl­miðl­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sig­urður G. Guð­jóns­son lög­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svars­maður Frjálsrar fjöl­miðl­unar hjá Fjöl­miðla­nefnd.

Skuldir Frjálsrar fjöl­miðl­unar voru 542 millj­ónir króna í lok árs 2017. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dals­dal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­laus, á að greið­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­ónir króna á ári. Ekki kom fram í árs­reikn­ingi Dals­dals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur ætti að greiða þeim aðila alla upp­hæð­ina til baka á síð­ara ári, þ.e. 2018.

Stundin greindi frá því 4. októ­ber síð­ast­lið­inn að Sigurður G. vildi ekki greina frá því hver hefði veitt 425 millj­óna króna lánið til Dalsdals. Þar sagði hann enn fremur að það skiptu „akkúrat engu máli“ að gera upp­lýs­ingar um end­an­lega eign á fjöl­miðlum og hags­muna­tengsl opin­berar.

Hlutafé Frjálsrar fjöl­miðl­unar var aukið tví­vegis á árinu 2018, sam­tals um 120 millj­ónir króna. Félag Sigurðar G., Dals­dalur, er enn skráð sem eig­andi að öllu hlutafé Frjálsrar fjöl­miðl­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár