Útgefandi DV tapaði 43,6 milljónum – Skuldar eigandanum hundruð milljóna

Frjáls fjöl­miðlum tók til starfa í sept­em­ber í fyrra og tap­aði rúm­lega tíu millj­ónum krónum á mán­uði að með­al­tali fram að ára­mótum. Félagið skuldar eig­anda sínum 425 millj­ónir króna og hann skuldar ótil­greindum aðila sömu upp­hæð.

Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem á rekur DV og fleiri fjöl­miðla, tap­aði 43,6 millj­ónum króna á þeim tæpu fjórum mán­uðum sem félagið var starf­andi á árinu 2017. Tekjur þess voru 81,4 millj­ónir króna frá því að félagið hóf starf­semi í sept­em­ber 2017 og fram að ára­mótum. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem nýverið var skilað inn til árs­reikn­inga­skráar.

Frjáls fjöl­miðlun keypti í fyrra­haust fjöl­mið­l­anna Pressu­­sam­­stæð­unn­­ar: DV, DV.is, Eyj­una, Press­una, Bleikt, Birtu, Doktor.is, 433.is og sjón­­varps­­stöð­ina ÍNN. ÍNN hefur síðan verið sett í þrot. Hluti skulda Pressunnar voru skildir eftir í henni og félagið svo sett í þrot. Alls var kröfum upp á 315 millj­ónir króna lýst í þrotabú Pressunn­ar. Skipta­stjóri bús­ins við­ur­kenndi kröfur upp á 110 millj­ónir króna en hafn­aði öðr­um.

Eigandi Frjálsrar fjöl­miðl­unar er félagið Dals­dalur ehf. Eini skráði eig­andi þess er Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður sem er einnig skráður fyr­ir­svars­maður Frjálsrar fjöl­miðl­unar hjá Fjöl­miðla­nefnd.

Eigið fé neikvætt og há skuld við eiganda

Frjáls fjöl­miðlun hóf starf­semi í sept­em­ber 2017. Heild­ar­tap fyrir skatta var 54,5 millj­ónir króna en skatt­inn­eign skil­aði félag­inu 10,9 milljón króna í tekjur sem töldu á móti.

Alls eru eignir Frjálsrar fjöl­miðl­unar metnar á 529 millj­ónir króna. Þar af eru óefn­is­legar eignir bók­færðar á 470 millj­ónir króna.

Skuldir félags­ins, sem er ein stærsta einka­rekna fjöl­miðla­sam­steypa lands­ins, voru 542 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og var stofnað til þeirra á síð­asta ári. Þar munar mest um 425 milljón króna skuld við eig­and­ann, Dalsdal ehf. Sú skuld, sem virð­ist vaxta­laus, á að greið­ast til baka á árunum 2018 til 2022, 85 millj­ónir króna á ári. Ekki kemur fram í árs­reikn­ingi Dalsdals ehf. hver lán­aði því félagi fjár­magn til að lána Frjálsri fjöl­miðlun en þar segir að Dals­dalur eigi að greiða þeim aðila alla upp­hæð­ina til baka í ár, 2018.

Þá kemur fram í árs­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðl­unar að ógreitt kaup­verð eigna væri 53 millj­ónir króna í árs­lok 2017. Eigið fé félags­ins var nei­kvætt um 13,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót, inn­greitt hlutafé var 30 millj­ónir króna og félagið átti 14,6 millj­ónir króna í hand­bæru fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár