Biden byggir brýr

Joe Biden hefur nú gegnt embætti forseta Banda­ríkjanna í tæpa tvo mánuði. Helstu línur í áherslum hans eru farnar að skýrast og gamlir bandamenn í Evrópu rétta fram sáttar­hönd eftir erfið samskipti við Trump-stjórnina síðustu fjögur ár. Hans bíða þó erfið verkefni heima fyrir þar sem Covid-faraldurinn geisar enn, hálf milljón manna hefur látið lífið af völdum sjúk­dómsins og hagkerfið er í sárum.

Bandarískir fjöl­miðlar hafa margir gripið til samlíkinga við stöðuna sem var uppi þegar Franklin Delano Roosevelt tók við embætti forseta árið 1933 í kreppunni miklu. Þá var fjórðungur Bandaríkja­manna án atvinnu og fyrstu 100 daga Roosevelts í embætti tókst honum að keyra í gegn 15 ný laga­frumvörp til að bregðast við neyðar­ástandinu. 

Útlitið er vissulega ekki eins svart núna, rúmlega sex prósent Bandaríkja­manna eru í dag á atvinnu­leysis­skrá, en fjöldi þeirra hefur tvöfaldast á einu ári og áætlað er að alls hafi tíu milljón störf glatast í Covid-faraldrinum. Eitt af fyrstu verkum Biden-stjórnarinnar var að vinna með Demó­krötum á þinginu til að leiða í gegn frumvarp um 1,9 trilljón dollara innspýtingu í hagkerfið. Forsetinn undir­ritaði lögin nú um miðja viku og þýðir það meðal annars að margir skatt­borgarar munu eiga rétt á allt að 180 þúsund króna eingreiðslu í næsta mánuði.

Á alþjóða­vettvangi lét Biden einnig strax til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár