Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar Bak­grunnur, reynsla og menntun ráð­herra Íslands væru með öðrum hætti en í dag ef stöður ráð­herra væru aug­lýstar í fag­legu ráðn­ing­ar­ferli. Mynd: Pressphotos.biz

Yrðu þau ráðin sem ráðherrar?

Fjórir af fimm ráð­herrum Fram­sókn­ar­flokks­ins fengju lík­lega ekki atvinnu­við­tal fyrir stöð­una ef ráðið væri fag­lega í ráð­herra­emb­ætti. Stundin fékk hjálp ráðn­ing­ar­stofa til að meta óform­lega hæfni ráð­herra út frá tak­mörk­uðum for­sendum.

Flokkur Pírata, sem hefur mælst stærsti flokkur lands­ins með allt að 30% fylgi í skoð­ana­könn­unum, hefur vakið máls á því að ráð­herrar verði ekki valdir úr hópi Alþing­is­manna, eins og nú er óform­leg regla. Tillögur stjórn­laga­ráðs að nýrri stjórn­ar­skrá, sem rík­is­stjórnin hefur ekki sam­þykkt, gera ráð fyrir því að ráð­herrar séu ekki þing­menn.

Til­gang­ur­inn er að auka aðskilnað fram­kvæmda- og lög­gjaf­ar­valds­ins, minnka völd ein­stakra flokka og stuðla að fag­legri ráðn­ingum og störfum ráð­herra. 
Faglegt val á stjórn­endum og öðrum starfs­mönnum er talið afar mik­il­vægt þegar kemur að öðrum stöðum en þessum æðstu ábyrgð­ar­stöðum sam­fé­lags­ins.

Stundin fékk ráðn­inga­stofur til að meta gróf­lega hvort núver­andi ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar væru lík­legir til að fá ráðn­ingu ef þeir sóttu um stöð­una með opin­berum fer­il­skrám sínum. Sam­hljóða nið­ur­staða var að tveir ráð­herrar fengju ekki starfsvið­tal ef stöður þeirra væru aug­lýstar, þau Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra og Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis og auð­linda­ráð­herra. Sigrún gegndi stöðu borg­ar­full­trúa í áraraðir, en Gunnar Bragi stýrði veit­inga­söl­unni við bens­ín­stöð N1 á Sauð­ár­króki áður en hann komst á þing og varð þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þá var vafi á því hvort Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fengi við­tal í stöð­una sem hann gegnir og metið afar ólík­legt að hann yrði ráð­inn út frá starfs­reynslu og menntun. „Menntun ófull­nægj­andi og starfs­reynsla mjög tak­mörkuð,“ segir meðal ann­ars í rök­stuðn­ingi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár