Villimenn á meltunni

Írski mynd­list­artví­ær­ing­ur­inn Eva var hald­inn í Limerick í sumar undir stjórn Senegal-búans Koyo Kuouh. Hún slær því blákalt fram að Írland hafi verið fyrsta nýlenda Breta og í raun verið til­rauna­land fyrir kom­andi heims­veldi. Mynd­list­ar­konan Hulda Rós Guðna­dóttir heim­sótti tví­ær­ing­inn.

Villimenn á meltunni
Önnur sýn á heim­inn Veggverk rúm­enska lista­mannateym­is­ins Mona Vatamanu og Florian Tudor Le monde et les choses frá 2014 sem útleggst Jörðin og hlutir og sýnir hvaðan hlut­irnir koma á lit­ríkan hátt. Ísland á það sam­eig­in­legt með löndum í Afríku og Suður-Ameríku að aðal­út­flutn­ings­varan er mat­ar­hrá­efni. Mynd: Hulda Rós Guðnadóttir

Ísland er í hópi fjöl­margra landa sem liggja á melt­unni. Þessi melta er við­var­andi ástand og birt­ist í ýmiss konar ein­kennum, trufl­unum og „venjum“ sem koma fram á mis­mun­andi hátt eftir stað­bundnum háttum. Við stöndum frammi fyrir fyrir því að bráð­lega verður öld liðin frá því að Ísland hlaut full­veldi og vert er að velta fyrir sér hvernig sé upp­byggi­legt að halda upp á það. Það hlýtur að hafa haft áhrif á sam­fé­lags­gerð­ina að hafa verið nýlenda í mörg hund­ruð ár. Við ásamt fjöl­mörgum öðrum fyrr­ver­andi nýlendum og nýlendu­veldum erum enn að melta nýlend­u­r­eynsl­una og erum mis­langt á veg komin. 

Skuldir
Skuldir Veggverk rúm­enska lista­mannateym­is­ins Mona Vatamanu og Florian Tudor Le monde et la dette frá 2016. Tit­ill­inn þýðir Jörðin og skuldir og má sjá á verk­inu að Ísland og flest lönd Afríku eiga það sam­eig­in­legt að skuldir þess eru óþekkt stærð. Verkið sýnir mjög vel hvernig valda­ó­jafn­vægi hefur verið við­haldið í heim­inum.

Stutt á veg komin frá nýlendunni

Það er álit margra sér­fróðra að rýni í nýlendu­sam­bönd innan hins evr­ópska og sér­stak­lega vest-nor­ræna sam­hengis sé mun skemur á veg komin en rýni í nýlendu­sam­band Evrópu og ann­arra heims­álfa en hið síð­ar­nefnda hefur verið í for­grunni í fræð­unum í nokkurn tíma. Því er haldið fram að ekki sé endi­lega fyrr­ver­andi nýlendum til fram­dráttar að forð­ast að horfast í augu 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár