„Vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag“

Hafþór Sæv­ars­son segir að bar­átta föður síns hafi loks­ins borið ávöxt: „Faðir okkar barð­ist alla ævi fyrir sann­leik­anum í þessum málum og að sak­leysi hans yrði við­ur­kennt.“

„Vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag“

„Við vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag en svo er því miður ekki,“ skrifar Hafþór Sæv­ars­son, sonur Sævars Marínós Ciesielski, vegna nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar sem kynnt var í dag.

Nefndin hefur fall­ist á end­ur­upp­töku á dómi Hæsta­réttar yfir þeim Krist­jáni Viðari Júl­í­us­syni, Sævari Ciesielski og Tryggva Rúnari Leifs­syni sem voru sak­felldir fyrir að hafa orðið Guðmundi Ein­ars­syni að bana árið 1974. Þá er fall­ist á end­ur­upp­töku dóms­ins yfir Sævari, Krist­jáni og Guðjóni Skarp­héð­ins­yni vegna hvarfs Geir­finns Ein­ars­sonar og end­ur­upp­töku á dóm­inum yfir Alberti Klahn Skafta­syni, sem var sak­felldur fyrir hlut­deild í mál­inu.

Sævar Ciesielski barð­ist alla ævi fyrir því að málin yrðu tekin upp að nýju. Eftir að hann lést árið 2011 hafa börnin hans haldið bar­átt­unni áfram, meðal ann­ars Hafþór Sæv­ars­son sem birtir mynd af föður sínum á Facebook í dag og skrifar:

Pabbi, loks­ins er komið að því! <3

Við systk­inin getum loks­ins fagnað því að mann­orð þitt verður hreinsað.

Faðir okkar barð­ist alla ævi fyrir sann­leik­anum í þessum málum og að sak­leysi hans yrði við­ur­kennt. Manns­hvörf tveggja manna voru mis­notuð af rann­sókn­ar­að­ilum.

Við vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag en svo er því miður ekki.

Allt frá því að við munum eftir okkur hafa þessi mál litað til­veru okkar. Það er ekki hægt að útskýra með orðum þá upp­lifun að hafa fæðst inn í þetta rang­læti.

End­ur­upp­töku­nefnd fellst á að Guð­mundar- og Geir­finns­mál, sem aldrei voru dómtæk mál, verða tekin upp að nýju. Þá fellst nefndin ekki á að taka upp rangar sak­ar­giftir á þessum tíma­punkti; þær falla um sig sjálfar með sýknu­dómi.

Kærar þakkir, þið öll sem hafið stutt okkur allan þennan tíma.

Til ham­ingju pabbi, bar­átta þín og seigla hefur loks­ins skilað sér í end­ur­upp­töku. 

Rétt­lætið sigrar að lokum.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár