Vígdís vill „grípa til aðgerða núna strax“ á RÚV

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, seg­ist slegin vegna skýrslu Eyþórs Arnalds um rekstur RÚV. Hún vill að rík­is­stjórnin standi við áform sín um lækkun útvarps­gjalds.

Vígdís vill „grípa til aðgerða núna strax“ á RÚV
Vill aðgerðir strax Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, seg­ist slegin yfir nið­ur­stöðun nefndar um starf­semi og rekstur RÚV. Mynd: Pressphotos

„Mín fyrstu við­brögð eru þau að ég er slegin yfir því sem kemur fram í skýrsl­unni,“ segir Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, um skýrslu nefndar Eyþórs Arnalds um starf­semi og rekstur RÚV. Stundin náði tali af Vigdísi eftir fund fjár­laga­nefndar með nefnd Eyþórs. Nefnir hún sem dæmi skort á eft­ir­lits­heim­ildum með RÚV ohf., bæði hjá fjöl­miðla­nefnd og Rík­is­end­ur­skoðun, og til­komu Vodafone samn­ings­ins frá 2013. „Það hefur verið hamrað mjög á því að RÚV sé mjög skuld­sett en þarna kemur fram að það er ein­ungis sex pró­sent skulda­hlut­fall sem er á pari við stjórn­un­ar­kostn­að­inn hjá RÚV. Þannig það hafa verið mjög miklar blekk­ingar í þessu öllu saman. Þessi skýrsla varpar mjög góðu ljósi á allar stað­reyndir,“ segir Vigdís. 

„Þannig það hafa verið mjög miklar blekk­ingar í þessu öllu saman.“

Gripið sé strax til aðgerða

En hver eru næstu skref að mati Vigdísar? „Í fyrsta lagi þarf að athuga hvort það þurfi ekki að breyta rek­star­formi RÚV,“ segir hún. „Eins og staðan er í dag er þetta algjör­lega ógagn­sætt og ríkið hefur raun­veru­lega enga aðkomu að þessu. Það er póli­tískt kosin stjórn en samt er þetta ohf, hluta­bréf rík­is­ins liggur í mennta­mála­ráðu­neyt­inu en samt heyrir þetta undir fjár­mála­ráðu­neytið hvað varðar fjár­heim­ild­irnar,“ segir Vigdís. 

Stundin sagði frá því fyrr í dag að Illugi Gunn­ars­son hyggð­ist setja á fót

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár