Formaður þingnefndar ver kaup vogunarsjóða á Arion banka - konan hans yfirmaður í bankanum

Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, segir að eign­ar­hald í skatta­skjóli sé ekki lög­brot og biður Sigmund Davíð Gunn­laugs­son að vera jákvæður yfir kaupum vog­un­ar­sjóða á Arion banka. Eig­in­kona Óla Björns er hins vegar í fram­kvæmda­stjórn bank­ans og einn æðsti stjórn­andi hans.

Formaður þingnefndar ver kaup vogunarsjóða á Arion banka - konan hans yfirmaður í bankanum
Óli Björn Kárason Stýrir þeirri þing­nefnd lög­gjaf­ar­sam­kom­unnar sem hefur með mál­efni bank­anna að gera. Mynd: xd.is

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, hefur ítrekað komið til varnar kaupum vog­un­ar­sjóða á þriðj­ungs­hlut í Arion banka. Óli Björn er hins vegar tengdur Arion banka hags­muna­böndum í gegnum fjöl­skyldu sína, þar sem eig­in­kona hans er einn af æðstu yfir­mönnum bank­ans.

Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis, sem Óli Björn veitir for­mennsku, er sá vett­vangur lög­gjaf­ar­valds Alþingis sem fjallar sér­stak­lega um banka­mál. 

Í siða­reglum Alþing­is­manna segir að þeim beri að forð­ast hags­muna­á­rekstra milli sín og fjöl­skyldu sinnar, ann­ars vegar, og starfa sinna. 

Ræddi við bankastjórann vegna málsins

Óli Björn hefur meðal ann­ars rætt við Höskuld Ólafsson, banka­stjóra Arion banka, vegna máls­ins, og boðið honum á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar. Hann greindi frá því í umræðu­þætti í fréttum Stöðvar 2 á mánu­dag, þar sem hann mætti Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni í umræðum undir stjórn Þor­björns Þórð­ar­sonar. Í þætt­inum biðl­aði hann til Sig­mundar um að vera jákvæð­ari vegna máls­ins. Ekki kom hins vegar fram þar að einn af æðstu stjórn­endum Arion banka er eig­in­kona Óla Björns og þar með náin sam­starfs­kona banka­stjór­ans sem Óli Björn boðar á fund. Eig­in­kona hans, Margrét Sveins­dóttir, er fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ing­ar­sviðs Arion banka og situr í fram­kvæmda­stjórn bank­ans ásamt Höskuldi Ólafs­syni.

Óli Björn svar­aði því til í þætt­inum á mánu­dag að hann hefði boðað banka­stjór­ann, sam­starfs­mann og yfir­mann eig­in­konu sinnar, á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis. 

„Það er nú þannig að ég var búinn að ræða við Höskuld Ólafsson áður en sú beiðni kom, Hösk­uldur  Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, mun koma á fund nefnd­ar­innar næst­kom­andi mið­viku­dag, og líka sér­fræð­ingar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þannig að við munum fá örugg­lega ítar­legri og betri upp­lýs­ingar um þetta og von­andi minnka áhyggj­urnar eitt­hvað.“ 

Jákvæður á kaup vogunarsjóðanna

Óli Björn varði einnig í sam­tali við Rík­is­út­varpið að bank­inn skyldu nú vera kom­inn í ógegn­sætt eign­ar­hald í gegnum skatta­skjól, þótt hann hafi einnig lagt áherslu á gegn­sætt eign­ar­hald til lengri tíma. „Auðvitað er það nú kannski ekki það jákvæð­asta sem maður heyrir en menn verða þó að hafa í huga að það er í sjálfu sér ekki ólög­legt að tengj­ast Cayman-eyjum eða öðrum slíkum svæðum,“ sagði hann.

Í umræð­unum með Sigmundi Davíð á Stöð 2 lýsti hann við­skipt­unum sem jákvæðum tíð­indum. 

„Ég held að þetta séu nú fremur jákvæð tíð­indi heldur en hitt. Auðvitað geta menn velt sér fyrir sér hvort þessir aðilar séu heppi­leg­ustu eig­endur til fram­tíðar að banka. En ég held að það sem skiptir máli er að við erum þó að minnsta kosti að hluta til að fá beint eign­ar­hald í Arion banka og það er verið að und­ir­búa jarð­veg­inn að skrán­ingu bank­ans á almennum hluta­bréfa­mark­aði, og það held ég að sé gríð­ar­lega mik­il­vægt.

„Ég held líka að vinur minn Sig­mundur eigi að vera pínu­lítið kátur líka“

Og ég held líka að vinur minn Sig­mundur eigi að vera pínu­lítið kátur líka, vegna þess að það var auð­vitað rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, með Sigmund Davíð sem for­sæt­is­ráð­herra, sem lagði grunn­inn að því að við gátum náð þeim árangri að taka stór skref í því að afnema fjár­magns­höftin, og aflétta þeim að mestu núna í sein­ustu viku og síðan núna að taka þetta skref, sem ég von­ast til að verði okkur til gæfu. En ég held að hann eigi líka að leyfa sér það að fagna þessum áfanga vegna þess að hann á svo stóran þátt í því að við erum að ná þeim áfanga sem við erum búin að ná.“

Óli Björn var spurður í þætt­inum á Stöð 2 hvort honum þætti ekki óeðli­legt að kaup­end­urnir skyldu haga því þannig að þeir væru með 9,99 pró­sent hlut og slyppu þar með undan náinni skoðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á bak­grunni félag­anna.

„Ég held að svarið sé aug­ljóst. Það er auð­vitað vegna þess að það hefur sjálf­sagt ekki gef­ist tími hjá þeim til þess að fara í gegnum þetta nál­ar­auga Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og að minnsta kosti annar þessa aðila er þegar búinn að óska eftir því að fara í gegnum þetta nál­ar­auga, hæfn­is­mat hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, sem byggir auð­vitað á því, ann­ars vegar, orð­spor við­kom­andi sé óflekkað, þannig að hann geti haldið utan um hlut í fjár­mála­stofn­unum, að við­kom­andi sé fjár­hags­lega stæður þannig að hann geti haldið utan um eign­ar­hlut­inn, við­kom­andi teng­ist ekki ein­hverjum ólög­legum við­skiptum, pen­inga­þvætti eða ein­hverju slíku, og aðeign­ar­haldið sé skýrt.“ 

Vanhæfi vegna fjölskyldutengsla

Í siða­reglum Alþing­is­manna er fjallað um að þing­menn eigi að forð­ast hags­muna­á­rekstra. Er regl­unum ætlað að koma í veg fyrir að þing­menn beiti sér í þágu ann­ars en almanna­hags­muna þegar þeir taka afstöðu.

„Þingmenn skulu við störf sín forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar. Takist þing­manni ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá,“ segir í 8. grein siða­regl­anna. Þá segir í 9. grein að þeir eigi að vekja athygli á tengslum sínum. „Þingmenn skulu, þar sem við á, vekja athygli á per­sónu­legum hags­munum sínum sem máli skipta við með­ferð þing­mála.“ 

Ekki náð­ist í Óla Björn vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár