Utanríkisráðherra Grænlands mætir ekki til Noregs á ráðstefnu vegna rannsóknar lögreglu á hvarfi Birnu

Vittus Qujaukitsoq, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, mun ekki mæta á hina árlegu norð­ur­slóða­ráð­stefnu Arctic Frontier sem hefst á sunnu­dag­inn í Tromsø í Noregi. Ástæðan er sögð hand­takan á græn­lenskum skip­verjum af tog­ar­anum Polar Nanoq.

Utanríkisráðherra Grænlands mætir ekki til Noregs á ráðstefnu vegna rannsóknar lögreglu á hvarfi Birnu
Vittus Qujaukitsoq Utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands mun ekki sitja ráð­stefnu í Noregi. Hann vill vera til taks vegna rann­sóknar lög­reglu á bæði hvarfi Birnu Brjáns­dóttur og vegna rann­sóknar á miklu magni af hassi sem fannst um borð í græn­lenska tog­ar­anum. Mynd: KNR.gl

Utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, Vittus Qujaukitsoq, mun ekki mæta á norð­ur­slóða­ráð­stefn­una Arctic Frontier sem hefst á sunnu­dag­inn í Tromsø. Ástæðan er sögð hand­taka þriggja manna í tengslum við bæði hvarf Birnu Brjáns­dóttur og mikið magn af hassi sem fannst um borð í tog­ar­anum Polar Nanoq.

Frá þessu greinir græn­lenska úvarpið KNR.

Af 28 áhafn­ar­með­limum Polar Nanoq eru 19 þeirra frá Græn­landi og er haft eftir utan­rík­is­ráðu­neyti Græn­lands að ætt­ingjar þeirra hafi miklar áhyggjur af ást­vinum sínum sem staddir eru hér á landi. Í ljósi stöð­unnar hafa græn­lensk yfir­völd opnað fyrir sér­stök síma­númer. Þangað geta áhyggju­fullir ætt­ingjar leitað og komið á fram­færi fyr­ir­spurnum og fengið upp­lýs­ingar, en eitt síma­númer er fyrir dönsku og annað fyrir græn­lensku.

Líkt og áður hefur komið fram hefur lög­reglan stað­fest að þeir hand­teknu séu frá Græn­landi.

Í frétt KNR, sem vísar í utan­rík­is­ráðu­neyti Græn­lands, að þeir sem í haldi eru eiga rétt á að hitta diplómata frá heima­landi sínu. Í þessu til­felli væri það ein­hver frá sendi­ráði Dan­merkur á Íslandi. Þá eiga þeir hand­teknu einnig rétt á túlk en fram kom í fréttum að yfir­heyrslur hafi farið fram á bæði dönsku og ensku. 

Þá segir einnig að utan­rík­is­ráðu­neyti Græn­lands eigi í nánu sam­starfi við íslensk stjórn­völd, danska sendi­ráðið á Íslandi og Polar Seafood, útgerð­ina sem á græn­lenska togar­ann Polar Nanoq.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár