2,3 milljónum varið til auglýsingakaupa

Auglýst er í dag­blöðum, viku­blöðum og á vef­miðl­inum Eyjunni í nafni „rík­is­stjórnar Íslands“. Upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar hefur hæðst að frétta­flutn­ingi af mál­inu.

2,3 milljónum varið til auglýsingakaupa

Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, svarar ekki fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar og ann­arra fjöl­miðla um kaup for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á aug­lýs­inga­plássum í fjöl­miðlum þar sem áherslu­mál stjórn­ar­meiri­hlut­ans eru aug­lýst í nafni „rík­is­stjórnar Íslands“.

Stundin sendi upp­lýs­inga­full­trú­anum fyr­ir­spurn um málið fyrir tæp­lega tveimur vikum. Annars vegar var spurt um heild­ar­kostnað við aug­lýs­inga­her­ferð rík­is­stjórn­ar­innar og hins vegar af hvaða fjár­laga­lið útgjöldin væru. Enn hefur ekk­ert svar borist þrátt fyrir að upp­lýs­inga­lög kveði á um að ef upp­lýs­inga­beiðni hafi ekki verið afgreidd innan sjö daga frá mót­töku hennar skuli skýra aðila frá ástæðum taf­anna og hvenær ákvörð­unar sé að vænta. 

Vísir.is greindi frá því í dag að fyr­ir­spurnum um aug­lýs­inga­her­ferð­ina, sem beint var til Sigurðar Más, hefði ekki verið svarað. Í kjöl­farið hædd­ist upp­lýs­inga­full­trú­inn að frétta­flutn­ingnum á Facebook. Hann skrif­aði: 

„Er eig­in­lega hálf svekktur að félagi minn Jakob Bjarnar Grét­ars­son [sá blaða­maður sem skrif­aði frétt Vísis, innsk. höf.] skuli ekki birta fleiri myndir af mér með þess­ari stór­frétt. En er þó á 40% mynda í þessu mynda­safni. Nú gæti ein­hver sagt að hverjum þyki sinn fugl fagur og það ráði vali á myndum en amk. ákvað Jakob að hlífa les­endum við mynd af helstu heim­ild sinni, vara­for­manni VG. Og ekki verður Jakob sak­aður um að hlífa sjálfum sér, birtir óhikað ábend­ingu mína um að hann hefði ekki tekið eftir aug­lýs­ing­unni í eigin blaði. Aug­lýs­ing­arnar standa hins vegar fyrir sínu og hvet ég áhuga­sama um að kynna sér efni þeirra.“

Eins og Stundin hefur áður greint frá hann­aði aug­lýs­inga­stofan Hvíta húsið aug­lýs­ing­arnar. Auglýst er í dag­blöðum og viku­blöðum í nafni „rík­is­stjórnar Íslands“, en jafn­framt hefur verið aug­lýst á Eyjunni.is, vef­miðli sem heyrir undir fjöl­miðla­sam­steypu Björns Inga Hrafns­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins og góð­vinar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra.

Hag­fræð­ingar hafa gagn­rýnt fram­setn­ingu talna í þeirri aug­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem laut að útgjalda­liðum hins opin­bera. Í dag beindi Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra þar sem spurt er um aug­lýs­inga­her­ferð­ina og kostnað við hana. 

Uppfært 26. jan­úar kl. 16:00:
Stund­inni hefur nú borist svar frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þar segir: „Tvær aug­lýs­ingar hafa nýverið verið birtar í fjöl­miðlum í nafni rík­is­stjórnar Íslands, skv. ákvörðun hennar og voru aug­lýs­ing­arnar kost­aðar af fjár­laga­lið 09-990 í fjár­lögum fyrir árið 2016, svo­nefndu ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar. Kostn­aður vegna aug­lýs­ing­anna nam 2,3 millj. kr. Birting frek­ari aug­lýs­inga er ekki fyr­ir­huguð.“ Fyr­ir­sögn þess­arar fréttar hefur verið breytt í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar sem eru fram komnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár