Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin

Uppgjör sérstaks saksóknara

Ólafur Þór Hauksson talar um starfið sem eng­inn vildi, lær­dómana, dómana, málin sem hann sleppti og hvers vegna dæmdir menn í efna­hags­brotum vegna hruns­ins sýna ekki iðrun.

 „Þetta er búið að vera heil­mikið ferða­lag,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sem tók að sér það verk­efni að stýra rann­sóknum á mögu­legum efna­hags­brotum í íslenska banka­hrun­inu þegar eng­inn annar vildi það. 

Um ára­mótin lauk form­lega starfi Embættis sér­staks sak­sókn­ara. Á þeim árum sem eru liðin hefur hann fengið á sig harða gagn­rýni, en eins og staðan er við enda­lok emb­ætt­is­ins hafa starfs­menn sér­staks sak­sókn­ara náð fram sak­fell­ingu yfir 90% sak­born­inga fyrir Hæsta­rétti. Málsvörn dæmdra banka­manna, sem voru áður þjóð­hetjur á Íslandi en sitja nú í fang­elsi, heldur hins vegar áfram úti í sam­fé­lag­inu og í fjöl­miðlum.

IÐRUNIN

Dæmdir en iðrast ekki

Munurinn á Embætti sér­staks sak­sókn­ara og þeirra sem emb­ættið sak­sækir krist­all­ast strax í skorti á glæsi­bif­reiðum á bíla­stæð­inu utan við skrif­stofur sak­sókn­ara. Tekju­mögu­leik­arnir hjá sak­sókn­ara­emb­ætt­inu eru ekki við­líka og hjá bönk­unum sem þeir hafa rann­sakað. Það kann að vera ein ástæðan fyrir því að erfitt var að ráða í starfið sem Ólafur Þór tók að sér árið 2009.

Þar sem Ólafur lýsir aðdrag­and­anum að stofnun Embættis sér­staks sak­sókn­ara hringir sím­inn. Hann hlustar á þann sem hringir. „Yes sir,“ segir hann og fljót­lega heyr­ist áhyggju­tónn í rödd­inni. Þetta er bif­véla­virki að hringja með fréttir af bil­ana­grein­ingu á Subaru-bif­reið Ólafs frá hru­nár­inu 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár