Tóku um 350 milljóna arð út úr tæknifrjóvgunarfyrirtækinu

Eigendur Art Medica unnu á tækni­frjóvgunar­deild Land­spítalans en sögðu upp til að stofna einka­fyrirtæki á sviði tækni­frjóvgana árið 2004. Þeir tóku mikinn arð út úr fyrir­tækinu og hafa nú selt það til sænsks tækni­frjóvgunar­fyrirtækis fyrir verð sem getur ekki numið lægri upphæð en nokkur hundruð milljónum. Fyrir­tækið hefur verið gagnrýnt fyrir okur en fyrri eigandi segir verð á þjónustunni lægra en á Norður­löndunum.

Ósátt við þjónustuna
Ósátt við þjón­ust­una Valborg Rut Geirs­dóttir var ósátt við þjón­ustu Art Medica og greindi frá því í haust. Hún segir að 265 millj­óna arð­greiðsla fyr­ir­tæk­is­ins komi sér á óvart.

Eigendur tækni­frjóvgunar­fyrir­tækisins Art Medica tóku samtals um 350 milljónir króna í arð út úr fyrir­tækinu frá hruninu 2008 og þar til fyrir­tækið var selt fyrir skömmu. Hæsta arðgreiðslan var í fyrra en þá var nánast allt lausafé félagsins, samtals 265 milljónir króna, tekið út úr fyrir­tækinu og greitt til hlut­hafanna Guðmundar Arasonar og Þórðar Óskars­sonar. Hagnaður félagsins í fyrra nam rúmum 56 milljónum króna. Þessi arðgreiðsla bætist við 44 milljóna króna árið 2013 og ríflega 34 milljóna króna arð 2012.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár