Mótmæli í Reykjanesbæ vegna áforma umdeildra viðskiptamanna

Mikil óánægja er í Reykja­nesbæ vegna áforma Hrífutanga ehf. um að byggja þriggja hæða íbúða­blokk með 77 íbúðum við Hafn­ar­götu 12. Eigendur fyr­ir­tæk­is­ins, Helgi Guð­munds­son og Sigurður H. Garð­ars­son, hafa verið til umfjöll­unar vegna við­skipta­hátta sinna.

Mótmæli í Reykjanesbæ vegna áforma umdeildra viðskiptamanna
Hlölla­bátar Á þess­ari lóð vilja þeir Helgi og Sigurður byggja 77 íbúða fjöl­býl­is­hús en á mynd­inni má sjá Sigurð. Nágrannar þeirra eru síður en svo sáttir við áformin / Samsett mynd

Yfir 350 íbúar í Reykja­nesbæ hafa und­ir­ritað áskorun til bæj­ar­yf­ir­valda þar sem þess er kraf­ist að fallið verði frá breyt­ingu deiliskipu­lags á aðal­götu bæj­ar­ins, Hafn­ar­göt­unni. Breyt­ing­ar­til­lagan er nú í hefð­bundnu ferli en í henni kemur fram að eig­endur lóð­ar­innar á Hafn­ar­götu 12 vilja rífa allt sem þar stendur til þess að byggja þriggja hæða íbúða­blokk með 77 íbúðum.

Skyndi­bita­stað­ur­inn Hlölla­bátar er nú til húsa að Hafn­ar­götu 12 en sömu eig­endur eru að lóð­inni og skyndi­bita­staðnum. Íbúar telja að mið­bæj­ar­mynd­inni í Reykja­nesbæ stafi ógn af áformunum. Eig­end­urnir eru þeir Helgi Guð­munds­son og Sigurður H. Garð­ars­son.

Samkvæmt gögnum sem Stundin hefur undir höndum tengj­ast þeir Helgi og Sigurður, með einum eða öðrum hætti, gjald­þroti nítján fyr­ir­tækja. Þeir hafa áður verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum vegna þessa. Fyrsta félagið fór í þrot árið 1990, en það var fyr­ir­tækið G. Hilmars sem áður hét Ilma hf. Félagið gekk fjórum sinnum í gegnum nafna­breyt­ingar á þeim tæpu þremur árum sem það var í rekstri. Þar sat Sigurður í stjórn ásamt eig­in­konu sinni. Aðeins sex dögum eftir gjald­þrot þess fór annað félag sem Sigurður tengd­ist í þrot. Það var félagið Frjálst útvarp hf. Eftir því sem árin liðu fjölg­aði gjald­þrot­unum.

Vafasöm viðskiptasaga vekur athygli

Fyrsta gjald­þrotið sem Helgi tengd­ist var sum­arið 2006 en þá fór félagið Jósalir ehf. á haus­inn. Helgi var skráður eig­andi félags­ins. Á þessum tíma, árið 2006, hafði Sigurður hins vegar komið að tíu fyr­ir­tækjum, með einum eða öðrum hætti, sem seinna voru öll úrskurðuð gjald­þrota.

Fyrsta fyr­ir­tækið sem þeir tengd­ust báðir og var úrskurðað gjald­þrota var V.Þ. eign­ar­halds­fé­lag ehf., sem var úrskurðað gjald­þrota þann 18. sept­em­ber árið 2013. Saman áttu þeir einnig félagið Vöru­þjón­ustan ehf., sem fór í þrot í apríl 2015. Rétt áður en kom til gjald­þrots félags­ins urðu eig­anda­skipti á félag­inu sem fékk einnig nýtt nafn. Þann 10. nóv­em­ber fór félagið Naustir Invest ehf. í þrot, en sam­kvæmt skrán­ingu var Helgi end­ur­skoð­andi félags­ins þar til það varð gjald­þrota. 

Vafasöm við­skipta­saga þeirra félaga hefur áður vakið athygli, en sjón­varps­þátt­ur­inn Brestir á Stöð 2 og Vísir hafa fjallað um þá Helga og Sigurð, og þær aðferðir sem þeir beita til þess að losa sig undan gjald­þrota fyr­ir­tækjum til þess að halda óflekk­uðu mann­orði. Þar kom meðal ann­ars fram að þeir félagar nýta sér þjón­ustu þeirra sem ganga undir við­ur­nefn­inu útfar­ar­stjórar en það eru ein­stak­lingar sem leppa einka­hluta­fé­lög sem eru á leið í þrot. Þannig hafa Helgi og Sigurður gert samn­inga við meðal ann­ars dæmda kyn­ferð­is­brota­menn sem taka það að sér að skrá sig fyrir félög­unum aðeins örfáum mán­uðum áður en þau fara í þrot.

Segja teikninguna út í hött
Segja teikn­ing­una út í hött Samkvæmt teikn­ing­unni þá þyrfti að rífa að minnsta kosti einn bíl­skúr í nágrenn­inu. Eigandi hans er furðu lost­inn og skilur ekk­ert í teikn­ing­unni, sem fer inn á eign­ar­lóðir ann­arra á svæð­inu.

Síbrotamaður tekur á sig gjaldþrot

Einn þeirra er Sigurður Dalmann, sem nýverið breytti nafni sínu í Sigurður Aron Snorri Gunn­ars­son. Sigurður Aron hefur frá alda­mótum hlotið sex refsi­dóma, meðal ann­ars fyrir rán og fíki­efna­laga­brot. Þá var Sigurður Aron einnig dæmdur fyrir að brjóta gegn barni með því að sýna því klám­efni og hafa uppi ann­ars konar ósið­lega heðgun gagn­vart því. Árið 2013 var hann dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn ung­lingi sem Sigurður Aron hafði tælt með því að gefa honum áfengi, fíkni­efni, tvo bíla, skó, föt, skart­gripi og tvo síma.

Á aðeins tveimur árum hefur Sigurður Aron verið pró­kúru­hafi og stjórn­ar­maður í átta fyr­ir­tækjum sem hafa farið í þrot. Eitt af þessum félögum var A.S. Gunn­ars­son. Nýjasta gjald­þrot Sigurðar Arons varð fyrir aðeins nokkrum vikum eða 12. jan­úar árið 2017.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá ASÍ hefur íslenskt sam­fé­lag á und­an­förnum árum tapað mörg hund­ruð millj­örðum króna á kenni­tölu­flakki sem oft er sagt þjóðar­í­þrótt Íslend­inga.

En það er ekki aðeins vafasöm við­skipta­saga þeirra félaga sem veldur áhyggjum íbúa í Reykja­nesbæ heldur líka verk­efnið sjálft, teikn­ingar sem hafa verið lagðar fram og sú stað­reynd að á einni lóð á að koma fyrir 77 íbúðum á þremur hæðum. Líkt og áður kom fram er lóðin á Hafn­ar­götu 12, aðeins nokkrum metrum frá elsta hluta bæj­ar­ins sem oft­ast er ein­fald­lega kall­aður „gamli bær­inn“. Á meðal þeirra sem hafa gert athug­semd við þessar fyr­ir­ætl­anir er Eydís Hentze Pét­urs­dóttir en hún býr einmitt í gamla bænum, skammt frá fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum.

Hryllir við ferlíkinu

„Það er yfir­lýst mark­mið fram­kvæmd­ar­að­ila að blokk­irnar verði eins ódýrar í bygg­ingu og mögu­legt er. Það sést ber­sýni­lega á hönn­un­inni, þriggja hæða steypuklumpa með ein­halla þaki, sem er algert stíl­brot á þessu svæði þar sem byggð þró­að­ist að mestu frá lokum 19. aldar og fram á fjórða ára­tug 20. aldar,“ segir Eydís sem hryllir við hug­mynd­inni um þetta „fer­líki“ svo nálægt gamla bænum.

Ósáttur íbúi
Ósáttur íbúi Eydís Hentze Pét­urs­dóttir býr í gamla bænum í Reykja­nesbæ, aðeins nokkrum metrum frá fyr­ir­hug­aðri bygg­ingu þriggja hæða fjöl­býl­is­húss. Hún segir bygg­ing­una algjört stíl­brot og í engum takti við nærum­hverfi sitt.

„Fram­kvæmdin er á svæði eða í bæj­ar­hluta sem nýtur mik­illar sér­stöðu. Í gamla bænum eru, ef mig mis­minnir ekki, öll frið­lýst mann­virki Kefla­víkur. Skamm­sýn­is­sjón­ar­mið und­an­farna ára­tugi hafa orðið til þess að harka­lega hefur verið þjar­mað að sögu- og menn­ing­arminjum í gamla bænum og gamla svip­mótið hefur vikið fyrir fjöl­býl­is­húsum. Á und­an­förnum árum hefur sveit­ar­fé­lagið hins vegar, sem og íbúar, unnið ötul­lega að því að sporna við þeirri þróun, bæði með öfl­ugri upp­bygg­ingu og við­haldi svæð­is­ins. Þá er mik­il­vægt að taka það fram að þetta svæði nýtur hverf­is­verndar en skil­málar hennar eru meðal ann­ars þeir að ný mann­virki skuli styðja við það svip­mót sem fyrir er. Það gerðu fram­kvæmd­ar­að­il­arnir ekki.“

Þetta segir Eydís vera hald­bær rök og þá sé ekki einu sinni verið að taka allt inn í mynd­ina eins og til dæmis bíla­stæða­skort sem yrði við­var­andi vanda­mál ef af fram­kvæmd­inni yrði. Hún segir gert ráð fyrir um það bil 0,7 bíla­stæðum fyrir hverja af þeim 77 íbúðum.

Miklar menningarminjar í gamla bænum

„En inn í þessar stað­reyndir bland­ast að sjálf­sögðu til­finn­ingar. Hérna í gamla bænum eru hús sem hafa ekki bara númer, heldur nöfn. Strít, Stapakot, Efri Náströnd, húsið hans Gauja, Sjóbúð, Klampen­borg, Lækn­is­húsið, Fischershús, Gamla búð, Eldhúsið, Pakk­húsið, Litlibær, Þor­varð­ar­hús, Möll­ers­hús og svo mætti lengi telja. Íbúar í gamla bænum eru vel með­vit­aðir um sög­una og að þeim beri að við­halda heim­ilum sínum sem menn­ing­arminjum og það gerum við líka með stolti. Ég þori að full­yrða að sá stað­blær sem hér er í hverf­inu er vand­fund­inn í stærri bæjum lands­ins. Hér búa ætt­liðir nán­ast hlið við hlið. Á laug­ar­dags­kvöldum má oft sjá nágranna rölta milli húsa með vín­glas í hendi. Við hitt­umst yfir kaffi­bollum, sláum upp tón­leikum í heima­húsum á Ljósa­nótt, yljum okkar saman við eld­stæði og grípum í gítar á sum­ar­kvöldum í still­unni sem oft­ast er alger, bjóðum nágrönnum okkar í mat og grill og eldri börnin passa þau yngri. Við hjálp­umst að í fram­kvæmdum og við­haldi hús­anna, hlaupum á milli húsa með sláttu­vélar, skóflur, hefla eða hvað það nú er sem ein­hvern vantar. Við heilsumst, við spjöllum, við skipu­leggjum saman, hlæjum saman og erum auð­mjúk gagn­vart hlut­verki okkar sem hús­eig­endur og íbúar á sögu­legu svæði,“ segir Eydís.

Umrædd til­laga er aðgengi­leg á heima­síðu Reykja­nes­bæjar en hún er einnig til sýnis á skrif­stofu bæj­ar­fé­lags­ins ásamt fylgi­gögnum til 2. febr­úar. Íbúum var gef­inn kostur á að gera athuga­semdir við til­lög­una og rennur sá frestur út 2. febr­úar. Eftir því sem Stundin kemst næst er um að ræða eina umdeild­ustu breyt­ingu á deiliskipu­lagi innan bæj­ar­fé­lags­ins í mörg ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár