Það sem Sigmundur Davíð gerði áður en hann hætti

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra byrj­aði dag­inn á yfir­lýs­ingum um að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið héngi ekki á blá­þræði, fór síðan á fund for­seta Íslands þar sem hann óskaði eftir heim­ild til að rjúfa þing en ákvað svo að hætta. Hér er tíma­lína yfir helstu atriði í þessum við­burð­ar­ríka degi for­sæt­is­ráð­herra.

Það sem Sigmundur Davíð gerði áður en hann hætti

Dagurinn hefur sann­ar­lega verið við­burð­ar­ríkur í lífi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Hans fyrsta verk í morgun var að mæta í útvarps­við­tal þar sem hann full­yrti að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið héngi ekki á blá­þræði vegna umræð­unnir um Wintris-málið. Rétt í þessu var svo til­kynnt að hann hyggð­ist hætta sem for­sæt­is­ráð­herra. Það var þó ekki Sig­mundur Davíð sjálfur sem til­kynnti það heldur Sigurður Ingi Jóhanns­son, flokks­bróðir hans, sem Sig­mundur Davíð vildi að tæki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Við skoðum hvað gerð­ist fram að því og hvað varð til þess að hann hætti. 

Tímalína yfir helstu atburði dagsins: 

08:00 - „Samstarfið hangir ekki á bláþræði“

Dagurinn hófst á því að Sig­mundur Davíð mætti í við­tal í Bítinu á Bylgj­unni, þar sem hann hélt því meðal ann­ars fram að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið héngi ekki á blá­þræði. 

„Nei, sam­starfið hangir ekki á blá­þræði vegna umræðu núna frekar en að umræðan áður, sem oft hefur verið hörð, hafi valdið því að sam­starfið hangi á blá­þræði. Sam­starfið hangir ein­göngu á blá­þræði ef menn vilja ekki starfa saman,“ sagði hann orð­rétt. 

Í gær fóru fram fjöl­mennstu mót­mæli sem lög­reglan man eftir hér á landi. Sig­mundur Davíð hafði gert lítið úr mót­mæl­unum fyrir fram þegar hann sagði í hádeg­is­fréttum í gær: „Það mætir
nú ekki allt fólkið á Aust­ur­völl.“ Síðar um kvöldið mætti hann öllu auð­mjúk­ari í við­tal við Ísland í dag. En í morgun hélt hann áfram að gera lítið úr mót­mælum gær­dags­ins. 

„Hafandi upp­lifað þetta svo oft, og jafn­vel mót­mæli þar sem hlutir fóru algjör­lega úr bönd­unum, þá, ég segi ekki að þetta sé komið upp í vana, en þetta er orðið miklu tíð­ara en var. Það liggur alveg ljóst fyrir að það styðja ekki allir mig eða mína rík­is­stjórn og mjög margir sem gera það ekki og alls ekki. Þannig er það í lýð­ræð­is­ríki og sjálf­sagt að menn noti slíkar leiðir til að sýna þá skoðun sína.“

Þá sagði hann við­talið sem birt­ist í frétta­skýr­inga­þætti Kast­ljóss og Reykja­vík Media á sunnu­dag hafa verið hannað til að rugla hann í rím­inu. Áður hafði hann beðist afsök­unar á frammi­stöðu sinni í við­tal­inu, en ekki því sem fram kom í þætt­inum. 

11:16 - Stillti Sjálfstæðisflokknum upp við vegg

 

Sig­mundur Davíð fór því næst á fund með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á leyni­stað stuttu eftir að við­tal­inu lauk. 

Óvíst er hvað fór fram á fund­inum en að honum loknum birti Sig­mundur Davíð færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann sagð­ist munu rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina til að ljúka verk­efnum hennar.

Í ljós kom að hann hafði birt færsl­una án sam­ráðs við þing­flokk­inn og án stuðn­ings hans.  

Þá sagði þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins að það væri „ekki hægt að berja þá til hlýðni.“

11:30 - „Bless, bless.“

Frá Bjarna virð­ist Sig­mundur Davíð hafa farið bein­ustu leið á fund Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta, á Bessa­stöðum. 

Áður höfðu þeir komið sér saman um að hitt­ast klukkan eitt en eftir fund­inn með Bjarna óskaði Sig­mundur Davíð eftir að því yrði flýtt. Hann fengi að koma strax. 

Ólafur Ragnar ákvað því að afboða fund sem hann átti með for­seta Kýpur til að taka á móti Sigmundi Davíð, sem mætti með emb­ætt­is­mönnum úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem höfðu með sér bréf sem þeir vildu að for­seti Íslands und­ir­rit­aði og veitti þar með Sigmundi Davíð heim­ild til að rjúfa þing. 

Fjöldi frétta­manna var á vett­vangi þegar Sig­mundur Davíð gekk út af fund­inum án þess að virða þá við­lits. Aðspurður hvort þing yrði rof­aði svar­aði hann því til að þeir hefðu bara verið að spjalla. „Við sjáum til með þetta allt saman. Bless, bless,“ var það eina sem Sig­mundur Davíð sagði við blaða­menn­ina á leið sinni út í bíl. 

Þegar Sig­mundur Davíð var far­inn ákvað Ólafur Ragnar hins vegar að breyta frá þeirri almennu reglu að ræða ekki við fjöl­miðla um efni fundar með for­sæt­is­ráð­herra. Þar sagð­ist hann ekki ætla að verða leiksoppur í valda­bar­áttu flokks­for­manna. 

„Eins og ég tjáði for­sæt­is­ráð­herra, í ljósi þess að hann gerði ykkur og almenn­ingi á Facebókarsíðu sinni, að ég held grein fyrir því að hann stefndi að þing­rofi og myndi beita því afli í við­ræðum sínum við sam­starfs­flokk­inn, að þá væri á vissan hátt verið að draga for­set­ann með ákveðnum hætti inn í deilur eða afl­raunir á milli stjórn­mála­flokk­anna á ákveðnum tíma­punkti og það er ekki við hæfi,“ sagði Ólafur Ragnar. 

Ólafur Ragnar
Ólafur Ragnar

Hann greindi frétta­mönnum frá því að Sig­mundur Davíð hefði óskað eftir heim­ild til að rjúfa þing en for­set­inn hefði hafnað því á þeim for­sendum að Sig­mundur Davíð gat ekki greint frá afstöðu for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins til þess að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu með þessum hætti. 

For­set­inn sagð­ist hafa rætt lengi við Sigmund Davíð og útskýrt fyrir honum að for­seti „leggur sjáf­stætt mat á það hvort hann sam­þykkir þá þegar, eða síðar, ósk for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof.

Það sem for­seti hlýtur að meta í slíku til­viki er í fyrsta lagi hvort stuðn­ingur sé við þá ósk hjá ríksi­stjórn­ar­flokk­unum og hvort lík­legt sé að þing­rof leiði til far­sællar nið­ur­stöðu.“ 

Þá er ljóst að Sig­mundur skorti ekki aðeins umboð frá sam­starfs­mönnum sínum í rík­is­stjórn­inni heldur hafði hann ekki heldur ráð­fært sig við þing­flokk Fram­sókn­ar­flokks­ins áður en hann bað for­seta um heim­ild til að rjúfa þing. 

13:30 - „Kíktu bara á Facebook“

Eftir fund­inn á Bessa­stöðum fór Sig­mundur Davíð í Stjórn­ar­ráðið þar sem hann var í um klukku­tíma. Frétta­maður Rík­is­út­varps­ins var á staðnum þegar hann gekk út úr Stjórn­ar­ráð­inu og reyndi að ná af honum tali, heldur hljóp á und­anum honum og inn í bíl.

Frétta­mað­ur­inn náði engu að síður að stinga míkra­fón­inum að Sigmundi Davíð til að spyrja hvort Bjarni hefði haft vit­neskju um fyr­ir­ætl­anir hans skaut Sig­mundur Davíð á for­set­ann með því að benda honum á að lesa Facebook. 

„Kíktu bara á Facebook það er jafn­vel betri heim­ild en það sem maður heyrir á blaða­manna­fundum,“ sagði hann við Ægi Þór Eysteins­son, frétta­mann á RÚV. 

13:45 - „Spjalla við ykkur síðar“

Nokkrum mín­útum síðar var Sig­mundur Davíð mættur í Alþing­is­húsið, þar sem hann var enn á hlaupum undan frétta­mönnum. 

Þing­flokk­ur­inn hafði þá fundað án hans í um klukku­stund, á meðan hann var einn í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. 

Hann var mættur í Alþing­is­húsið rétt fyrir klukkan tvö og þegar frétta­maður kall­aði á eftir honum hvort hann ætl­aði af segja sér. Sig­mundur Davíð sneri sér þá skyndi­lega við, benti valds­manns­lega á blaða­menn­ina og brosti: 

„Ég væri til í að spjalla við ykkur síðar en ég verð að fara á fund,“ var það eina sem Sig­mundur Davíð sagði áður en hann hljóp inn á fund­inn.

15:15 - Sigmundur Davíð hættir sem forsætisráðherra

Þing­flokks­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins lauk rétt eftir klukkan þrjú. Sig­mundur Davíð neit­aði enn að veita frétta­mönnum við­tal en sagði: „Það er margt mjög skemmti­legt og áhuga­vert að ger­ast,“ áður en hann bætti því við að hann myndi ræða við blaða­menn fljót­lega. „Það er alveg til­efni fyrir því hvað þið eruð spennt,“ sagði hann að lokum og gekk í burtu. 

Skömmu síðar steig Sigurður Ingi fram og greindi frá því að á fund­inum hefði Sig­mundur Davíð lagt til að hann myndi sjálfur láta af störfum sem for­sæt­is­ráð­herra en Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, yrði for­sæt­is­ráð­herra.

Tillagan var sam­þykkt af þing­floknum en enn á eftir að koma í ljós hvort Sjálf­stæð­is­menn muni sætta sig við þessa lausn. 

16:38 - Sakaði forsetann um ósannindi

Þótt Sig­mundur Davíð hefði lagt til að hann myndi hverfa frá störfum for­sæt­is­ráð­herra er hann ekki enn hættur. Síðdegis birt­ist á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins frétta­tikynn­ing um fund­inn sem Sig­mundur Davíð átti við for­set­ann í morgun. Þar sagði að form­leg til­laga um þing­rof hafi hvorki verið borin upp á fund­inum né kynnt for­seta að fundi loknum. Á blaða­manna­fundi í hádeg­inu sagði for­set­inn að Sig­mundur Davíð hefði óskað eftir heim­ild til að rjúfa þing, ekki að hann hafi lagt það til.

Í til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sagði að á fund­inum hefði for­sæt­is­ráð­herra upp­lýst for­seta um stöðu mála í stjórn­málum hér á landi og greint frá áformum sínum um að leggja til við for­seta að þing yrði rofið og boðað til amennra alþing­is­kosn­inga ef í ljós kæmi að meiri­hluta stuðnignur við rík­is­stjórn­ina væri brost­inn. 

Þá var for­set­inn sak­aður um að hafa farið með ósann­indi á blaða­manna­fund­inum: „Formleg til­laga um þing­rof var hvorki borin upp á fund­inum né kynnt for­seta eins og skilja mátti af ummælum for­seta Íslands að fundi loknum. For­sæt­is­ráð­herra tjáði for­seta að hann hyggð­ist bera þing­rof­s­til­lögu form­lega upp við for­seta ef nið­ur­staða um fram­an­greint lægi fyrir.“

 

Nokkrum vikum eftir að Sig­mundur Davíð tók við völdum sem for­sæt­is­ráð­herra birti hann pistil á heima­síðu sinni sem hét Fyrsti mán­uður loft­árása, þar sem hann kvart­aði undan umræð­unni og frétta­flutn­ingi fjöl­miðla, eins og hann hefur ítrekað gert síðan. Þetta var árið 2013 en nú tæpum þremur árum síðar má segja að síð­asti dagur loft­árása hafi runnið upp, þegar hann til­kynnti um afsögn sína sem for­sæt­is­ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár