Þórdís Elva stígur fram með nauðgara sínum: Vill taka ábyrgð á sársaukanum sem hann hefur valdið

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir var sextán ára þegar kærast­inn hennar, Tom Stranger, nauðg­aði henni. Í kjöl­farið skildu leiðir, þar til hún sendi honum bréf. Hann axl­aði strax ábyrgð á gjörðum sínum og á dög­unum stigu þau fram saman og sögðu sögu sína á Ted ráð­stefn­unni. Mynd­bandið er birt hér.

Þórdís Elva stígur fram með nauðgara sínum: Vill taka ábyrgð á sársaukanum sem hann hefur valdið

Árið 1996 eign­að­ist Þórdís Elva Þor­valds­dóttir fyrsta kærast­ann, Tom Stranger, skiptinema frá Ástralíu. Eftir skóla­ball nauðg­aði Tom Þórdísi og í kjöl­farið skildu leiðir í mörg ár, þar til hún ákvað 25 ára gömul að senda honum bréf. Við­brögðin komu henni væg­ast sagt á óvart en hann axl­aði ábyrgð á gjörðum sínum. Eftir margra ára bréfa­skiptir ákváðu þau að hitt­ast á miðri leið, í Suður Afríku og gera upp for­tíð­ina. Hún hefur nú skrifað bók um þetta ferli, Handan fyr­ir­gefn­ingar, en hér segja þau saman sögu sína.

„Þetta var eins og ævin­týri. Sterkir hand­leggir hans utan um mig er hann lagði mig niður í öryggi rúms­ins míns. En þakk­lætið sem ég fann til hans breytt­ist fljót­lega í hryll­ing. Hann tók mig úr föt­unum og fór ofan á mig,“ segir Þórdís um nauðg­un­ina, en hún segir lík­amann hafa verið of veikan til að streit­ast á móti. „Sárs­auk­inn var blind­andi. Ég hélt ég yrði klofin í tvennt.“

Þórdís seg­ist hafa talið sek­únd­urnar á vekjara­klukk­unni sinni í hljóði á meðan á verkn­að­inum stóð. „Og upp­frá þessu kvöldi hef ég vitað að það eru sjö þús­und og tvö hund­ruð sek­úndur í tveimur klukku­tímum.“ Hún segir að þrátt fyrir að hafa haltrað í marga daga og grátið í margar vikur hafi atvikið ekki passað við hennar hug­mynd um nauðgun, þeirri sem hún hafði séð í sjón­varp­inu. „Tom var ekki vopn­aður geð­sjúk­lingur, hann var kær­asti minn. Og þetta gerð­ist ekki í dimmu húsa­sundi, heldur í rúm­inu mínu,“ heldur hún áfram. 

Þegar hún hafi loks­ins við­ur­kennt fyrir sjálfri sér að það sem kom fyrir hana hafi verið nauðgun, var hann far­inn aftur til Ástralíu og henni hafi þótt til­gangs­laust að gera veður úr þessu. Þar að auki fannst henni nauðg­unin henni sjálfri að kenna. „Ég er alin upp í heimi þar sem konum er kennt að þeim er nauðgað af ástæðu. Pilsin þeirra voru of stutt, brosið þeirra of breitt, their bre­ath smelt of alchohol. Ég var sek um alla þessa hluti. Skömmin hlaut því að vera mín. 

Hún segir það hafa tekið hana mörg ár að átta sig á því að aðeins eitt hefði getað komið í veg fyrir að henni yrði nauðgað þetta kvöld, og það hafi ekki verið pilsið hennar, brosið eða barns­legt traustið. „Það eina sem hefði getað komið í veg fyrir að mér yrði nauðgað þetta kvöld er mað­ur­inn sem nauðg­aði mér, hefði hann stöðvað sjálfan sig.“ 

Tom seg­ist eiga óljósar minn­ingar um dag­inn eftir nauðg­un­ina. Hann muni eftir eft­ir­köstum drykkj­unnar og ákveðnum tóm­leika sem hann reyndi að hunsa. „Orðið nauðgun berg­mál­aði ekki í huga mér, eins og það hefði átt að gera,“ segir hann meðal ann­ars. „Skil­grein­ing mín á mínum eigin aðgerðum við­ur­kenndi á engan hátt áfallið sem ég olli Þórdísi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár