Þjóðmenningarstjórn hunsar málstefnu Stjórnarráðsins

Skýrsla, sem unnin var að beiðni sam­ráðs­hóps ráðu­neyta, er skrifuð og gefin út á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á ensku. Þetta gengur í ber­högg við mál­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins og sam­ræm­ist illa lögum um stöðu íslenskrar tungu og fyr­ir­heitum sem gefin voru í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar.

Skýrsla sem unnin var að beiðni sam­ráðs­hóps stjórn­valda og hags­muna­sam­taka á Rúss­lands­mark­aði og birt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er skrifuð á ensku. 

Vinnu­brögðin ganga í ber­högg við mál­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins sem gerir kröfu um að allt efni sem gefið er út á vegum ráðu­neyta, svo sem skýrslur um mik­il­væga hags­muni Íslands, sé á íslensku. Að sama skapi kveða lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks tákn­máls á um að íslenska sé „mál Alþingis, dóm­stóla, stjórn­valda, jafnt ríkis sem sveit­ar­fé­laga, skóla á öllum skóla­stigum og ann­arra stofn­ana sem hafa með höndum fram­kvæmdir og veita almanna­þjón­ustu“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár