LÍN-frumvarp Illuga gæti bitnað harkalega á doktorsnemum, einstæðum foreldrum og fátæku fólki

Fjórar stúd­enta­hreyf­ingar kalla eftir því að náms­lána­frum­varp mennta­mála­ráð­herra verði keyrt í gegnum þingið. Frum­varpið felur í sér að tekju­teng­ing afborg­ana er afnumin, vextir allt að þre­fald­aðir og náms­styrkur veittur öllum, óháð efna­hag og þörf. Stjórn­ar­and­staðan telur frum­varpið grafa undan lífs­kjörum stúd­enta, stuðla að ójöfn­uði og lægra mennt­un­ar­stigi í land­inu.

LÍN-frumvarp Illuga gæti bitnað harkalega á doktorsnemum, einstæðum foreldrum og fátæku fólki

Fjórar stúd­enta­hreyf­ingar skora á þing­menn að afgreiða hið umdeilda LÍN-frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, strax á þessu þingi. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem for­menn Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands (SHÍ), Félags stúd­enta við Háskól­ann á Akureyri (FSHA), Stúd­enta­fé­lags Háskól­ans í Reykja­vík (SFHR) og Nem­enda­sam­bands Tækni­skól­ans (NST) sendu fjöl­miðlum í gær­kvöldi. 

Þinginu lýkur í dag sam­kvæmt starfs­á­ætlun þess og er frum­varp mennta­mála­ráð­herra til laga um náms­lán og náms­styrki ekki á dag­skránni. Frum­varpið á bæði eftir að fara í gegnum aðra og þriðju umræðu en fjöldi sam­taka og fag­að­ila hafa gagn­rýnt efn­is­at­riði frum­varps­ins harð­lega.

Í nefnd­ar­á­liti og frá­vís­un­ar­til­lögu minni­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis kemur fram að LÍN-frum­varpið hygli hinum efna­meiri á kostnað hinna efna­minni. Þá er full­yrt að frum­varpið stuðli að ójöfn­uði og lægra mennt­un­ar­stigi í land­inu með því að tak­marka mögu­leika fólks til að afla sér yfir­grips­mik­illar mennt­unar. Bent er á að hjá miklum meiri­hluta þeirra náms­manna sem full­nýta láns­rétt sinn muni afborg­un­ar­byrði af náms­lánum aukast ef frum­varpið verður að lögum.

Vilja að stjórnarandstaðan leggi
„kosningaslaginn til hliðar“

Frumvarp Illuga var afgreitt út úr alls­herjar- og mennta­mála­nefnd á mánu­dag með breyt­ing­ar­til­lögu frá meiri­hluta nefnd­ar­innar, meðal ann­ars þess efnis að náms­menn geti sótt um mán­að­ar­lega fyr­ir­fram­greiðslu náms­að­stoðar fyrir allt að 22 ECTS ein­ingum á hverju miss­eri og að vextir verði breyti­legir en að hámarki 2,5% að við­bættu 0,5% álagi. Þá er lagt til að náms­menn sem hafa full­nýtt rétt­inn til náms­að­stoðar sam­kvæmt frum­varp­inu geti sótt um und­an­þágu til LÍN fyrir allt að 60 ECTS ein­ingum til við­bótar. Þannig er brugð­ist við hluta af þeirri gagn­rýni sem frum­varpið hefur sætt. 

Formenn stúd­enta­hreyf­ing­anna eru jákvæðir gagn­vart breyt­ing­ar­til­lög­unum og vilja að málið verði klárað á þessu þingi. Jafn­framt skora þeir á þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar að „leggja kosn­inga­slag­inn til hliðar“. Þannig er gefið í skyn að and­staða þing­manna við frum­varp Illuga Gunn­ars­sonar stafi ekki af efn­is­at­riðum frum­varps­ins eða hug­mynda­fræði­legum ágrein­ingi heldur sé liður í vin­sælda­keppni stjórn­mála­flokka í aðdrag­anda þing­kosn­inga. 

„Að þessu sögðu skorum við á stjórn­ar­and­stöð­una að leggja kosn­inga­slag­inn til hliðar og hlusta á stúd­enta“

„Að þessu sögðu skorum við á stjórn­ar­and­stöð­una að leggja kosn­inga­slag­inn til hliðar og hlusta á stúd­enta, sem eru lang­þreyttir á því að vera not­aðir í póli­tískum leikjum á milli stjórn­mála­flokka. Við krefj­umst þess að málið fari á dag­skrá og verði tekið fyrir í 2. umræðu sem allra fyrst,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Stúd­entar munu ekki una því að bíða til næsta kjör­tíma­bils eftir end­ur­bótum á náms­að­stoð­ar­kerf­inu. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að þetta frum­varp er risa­stórt skref í átt að því náms­að­stoð­ar­kerfi sem við viljum sjá á Íslandi í fram­tíð­inni, en það hefur í för með sér þau atriði sem stúd­entar hafa lengi barist fyrir, til að mynda fyr­ir­fram­greiðslur, beina náms­styrki og 100% fram­færslu.“

Nefnd­ar­á­lit og frá­vís­un­ar­til­laga minni­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, sem birt­ist á vef Alþingis í gær, gefur nokkuð heild­stæða mynd af því hvers vegna stjórn­ar­and­staðan er mót­fallin frum­varp­inu. Þing­menn­irnir Guð­mundur Stein­gríms­son, Ásta Guðrún Helga­dóttir, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir og Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir standa að nefnd­ar­á­lit­inu en flest af þeim umkvört­un­ar­efnum sem þar er að finna hafa einnig komið fram í umsögnum aðila á borð við Háskóla Íslands, Bandalag háskóla­manna, Alþýðu­sam­band Íslands og Samtök náms­manna erlendis. 

Þreföldun vaxta og „námsstyrkur óháð þörf“

Í fyrsta lagi er full­yrt að frum­varpið stuðli að ójöfn­uði. Þetta er rök­stutt með eft­ir­far­andi hætti:

Frum­varpið er því marki brennt að það hyglir efna­meira fólki en gerir efna­m­inna fólki erf­ið­ara fyrir að fara í nám. Stærsta breyt­ingin á núver­andi náms­lána­kerfi, verði frum­varp þetta að lögum, fælist í því að vaxta­pró­senta náms­lána mundi allt að þre­fald­ast en á móti byð­ist öllum náms­mönnum náms­styrkur. Hafa ber í huga að stór hluti náms­manna þarf ekki á náms­lánum að halda, hefur ann­að­hvort efna­sterka bak­hjarla eða hefur af öðrum orsökum nóg milli hand­anna. Verði frum­varpið að lögum mun þessi hluti náms­manna hljóta náms­styrk óháð þörf. Fyrir þann hluta náms­manna sem býr við bág­ari kjör og þarf, t.d. vegna félags­legra aðstæðna, að reiða sig á náms­lán til fram­færslu mundi náms­styrk­ur­inn hins vegar duga skammt. Þessi hluti nem­enda mundi eftir sem áður þurfa að taka há náms­lán en greiða af þeim þre­falda vexti miðað við núver­andi kerfi. Með öðrum orðum mundi hærri vaxta­pró­senta lána, sam­hliða náms­styrkjum til allra, valda því að efna­minni ein­stak­lingar, sem þurfa að taka lán, mundu í reynd greiða fyrir styrki til efna­meiri ein­stak­linga sem kom­ast af án lána. Slíkt kerfi stuðlar að auknum ójöfn­uði. Minni hlut­inn styður þá hug­mynd að hluti náms­aðstoðar sé veittur í formi styrkja en þykir illa rök­stutt hvers vegna þeir sem hingað til hafa ekki þurft að taka náms­lán eigi að njóta náms­styrkja. Nær væri að öllum stæðu hag­stæð náms­lán til boða en styrkirnir færu til jöfn­unar félags­legrar stöðu og/eða til umb­unar fyrir góðan náms­ár­angur.

Annað dæmi um það hvernig frum­varpið hyglir efna­meiri nem­endum er að veru­legar tak­mark­anir eru sam­kvæmt frum­varp­inu settar á lán til greiðslu skóla­gjalda. Eðli máls­ins sam­kvæmt koma tak­mark­an­irnar verr niður á þeim sem hafa minna milli hand­anna og gera þar með efna­m­inna fólki erf­ið­ara fyrir að stunda nám. Hér­lendis þurfa nem­endur að greiða skóla­gjöld í ýmiss konar námi, t.d. list­námi. Sérstaða þess náms sem fer fram í Lista­há­skól­anum er mikil og það gefur auga leið að meiri áhætta er fólgin í því að velja sér list­nám þar sem tekju­mögu­leikar að námi loknu telj­ast ekki vera öruggir miðað við aðrar náms­leiðir sem háskólar lands­ins bjóða. Minni hlut­inn tekur undir áhyggjur List­há­skóla Íslands um fram­tíð list­náms hér á landi verði frum­varp þetta að lögum þar sem greiðslu­byrði af náms­lán­unum yrði umtals­vert þyngri en verið hefur.

Telja að greiðslubyrði flestra nemenda þyngist

Þing­menn­irnir hafa einnig áhyggjur af auk­inni greiðslu­byrði náms­lána. Þeir benda á að í þeim útreikn­ingum sem liggja til grund­vallar frum­varp­inu er ekki gert ráð fyrir að lán­þegar full­nýti lán­töku­heim­ildir sínar heldur haldi sig innan fram­færslu­við­miða LÍN.

„Þannig eru bætur dregnar frá fram­færslu­við­mið­inu til þess að finna út hversu mikil útlána­þörf LÍN yrði í nýju kerfi og þar af eru 65 þús. kr. í nýja kerf­inu styrkur. Þetta skekkir mynd­ina af því hvernig afborg­un­ar­byrði lán­anna yrði í sam­an­burði við núver­andi kerfi,“ segir í áliti minni­hlut­ans sem bendir á að sam­kvæmt útreikn­ing­unum sé gert ráð fyrir að ein­stætt tveggja barna for­eldri sætti sig við 200 þús­und krónum minna ráð­stöf­un­arfé á mán­uði í nýja kerf­inu heldur en áður. „Sé for­eldri hins vegar ekki reiðu­búið að taka á sig slíka kjara­skerð­ingu mun það þurfa að standa undir um­tals­vert hærri afborg­unum af náms­lánum sam­kvæmt nýja kerf­inu en því gamla. Barn­lausir ein­stæð­ingar í góðri félags­legri stöðu sem útskrif­ast snemma og þurfa lítil lán eru sá hópur sem kemur best út úr sam­an­burði milli gamla og nýja kerf­is­ins og verða ekki fyrir kjara­skerð­ingu meðan á námi stendur og á afborg­un­ar­tíma náms­lána.“

Hér að neðan má sjá saman­burð á heild­ar­lánum og afborg­un­ar­byrði náms­manna, ann­ars vegar í núver­andi kerfi og hins vegar í nýja kerf­inu, þar sem miðað er við að náms­maður stundi fullt nám í fimm ár, ljúki masters­prófi og gæti þess að taka ein­ungis lán upp að fram­færslu­við­miði:

Þarna er til dæmis reiknað með að ein­stætt for­eldri með tvö börn muni ein­ungis taka 50 þús­und króna í lán á mán­uði, enda muni 65 þús­und króna styrk­ur­inn fleyta við­kom­andi nærri fram­færslu­við­mið­inu ásamt öllum bótum. Þannig er gengið út frá því að ein­stætt for­eldri með tvö börn þurfi aðeins 115 þús­und króna tekjur á mán­uði vegna þess að bætur ann­ars staðar úr kerf­inu hljóti að nægja heim­il­inu.

Ef for­sendum útreikn­ing­anna er breytt og miðað við að stúd­entar nýti láns­rétt­inn sinn til fulls eins og algeng­ast er, kemur í ljós að allir nema ein­stak­lingar í for­eldra­húsum munu bera þyngri greiðslu­byrði af náms­lán­unum sínum í nýja kerf­inu heldur en í núver­andi kerfi:

Minni­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar bendir á að sam­kvæmt umsögn Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands telja ein­ungis um 18 pró­sent stúd­enta náms­lánin vera nægi­lega há til þess að fram­fleyta þeim. „Því telur minni hlut­inn þær for­sendur sem lagðar eru til grund­vallar útreikn­ingum á afborg­un­ar­byrði náms­lána ekki stand­ast skoðun og vera vill­andi fram­setn­ingu. Full­yrð­ing um að 90% náms­manna muni hafa minni afborg­un­ar­byrði í nýju lána­kerfi er því ekki raunæf. Eðli­legra væri að álykta að 90% stúd­enta sem taka full náms­lán muni hafa hærri afborg­un­ar­byrði að námi loknu,“ segir í álit­inu.

Bitni á doktorsnemum, fötluðum og metnaðarfullum

Einnig er gagn­rýnt að sett sé hámarks­lengd á náms­tíma:

Kemur það helst niður á þeim sem vilja sækja langt og viða­mikið nám, svo sem dokt­ors­nám. Þá er gagn­rýn­is­vert að ekki skuli gert ráð fyrir fullum náms­lánum til að ljúka til­skildum ein­ingum í dokt­ors­námi. Yrði frum­varpið að lögum væri hið opin­bera þannig með beinum hætti að letja metn­að­ar­fyllstu nem­end­urna og tak­marka mögu­leika þeirra til að afla sér yfir­grips­mik­illar mennt­unar. Um leið væri stuðlað að lægra mennt­un­ar­stigi í land­inu. Þá skal bent á að þessi breyt­ing kemur illa niður á fötl­uðum ein­stak­lingum og öðrum sem vegna stöðu sinnar geta þurft á meiri tíma að halda til að ljúka námi.

Í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar hefur lít­il­lega verið komið til móts við dokt­or­snema. Þar er lagt til að bætt verði inn grein um að hafi náms­maður full­nýtt rétt sinn til náms­að­stoðar geti við­kom­andi sótt um und­an­þágu til LÍN fyrir allt að 60 ECTS ein­ingum til við­bótar.

Aldurstenging í stað tekjutengingar

Minni­hluti nefnd­ar­innar athuga­semd við að í stað tekju­teng­ingar verði afborg­anir náms­lána ald­urstengdar:

Skv. 2. mgr. 17. gr. frum­varps­ins skal almennur end­ur­greiðslu­tími náms­láns vera 40 ár en þó skal end­ur­greiðslu náms­láns vera lokið þegar lán­þegi nær 67 ára aldri. Þetta þýðir að veru­legur munur verður á greiðslu­byrði afborg­ana ein­stak­lings sem útskrif­ast 37 ára og ein­stak­lings sem útskrif­ast 27 ára. Engar grein­ingar liggja fyrir um hvaða áhrif þetta komi til með að hafa en auð­sjá­an­lega er með þessu móti dregið úr mögu­leika fólks til að afla sér háskóla­mennt­unar eftir að það hefur náð til­teknum aldri. Óvíst er hvort efna­minni ein­stak­lingar muni yfir höfuð hafa fjár­hags­legt bol­magn til að sækja nám hafi þeir náð ákveðnum aldri. 

Minni hlut­inn telur þessa breyt­ingu ásamt öðrum þáttum frum­varps­ins stuðla að eins­leitni. Fólk er hvatt til að fara snemma í nám, mennta sig til arð­bærra starfa og láta grunn- og meist­ara­nám nægja. Þannig yrði náms­lána­byrðin hlut­falls­lega minnst. Með því að afnema tekju­teng­ingu afborg­ana náms­lána verður efna­m­inna fólki gert veru­lega erfitt um vik að sækja sér menntun sem ekki er tryggt að skapi háar tekjur, svo sem list­nám. Þá gerir þessi breyt­ing fólki sem verður fyrir áfalli eftir að það hefur náð ákveðnum aldri illa kleift að afla sér mennt­unar til að skapa sér nýtt lífs­við­ur­væri.

Íbúðakaupendum ívilnað, öðrum ekki

Í frum­varp­inu er fest í sessi fyr­ir­komu­lag þar sem ábyrgðir á náms­lánum erf­ast þrátt fyrir að lánin erf­ist ekki. Þingmenn minni­hlut­ans telja þetta var­huga­vert, ekki síst í ljósi þess að í nýja kerf­inu séu afborg­anir af náms­lánum lík­leg­astar til að hækka hjá þeim þjóð­fé­lags­hópi sem hefur minnst milli hand­anna og er lík­leg­astur til að lenda í greiðslu­erf­ið­leikum. Þá halli víða í frum­varp­inu á lán­tak­endur, til dæmis geti LÍN kraf­ist frest­unar rétt­ar­á­hrifa sem eru íviln­andi fyrir lán­þega í þágu stofn­un­ar­innar en eng­inn slíkur mögu­leiki standi lán­þegum til boða.

Loks er bent á að náms­styrk­ur­inn sem veittur verður sam­kvæmt frum­varp­inu kemur til skerð­ingar á örorku­bótum og að félags­legar íviln­anir sé ekki að finna í frum­varp­inu. Á þessu sé er þó ein und­an­tekn­ing: veitt er heim­ild til und­an­þágu á helm­ingi end­ur­greiðslu í allt að fimm ár þegar lán­þegi kaupir sína fyrstu íbúð. Hér er þannig um að ræða ívilnun í þágu þeirra sem eiga nægi­lega fjár­muni til að kaupa sér íbúð.   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menntamál

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár