„Það er verið að blekkja fólk og auka skerðingar“

Hart var tek­ist á um auknar skerð­ingar í almanna­trygg­inga­kerf­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma.

„Það er verið að blekkja fólk og auka skerðingar“

„Ann­að­hvort hefur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn látið Sjálf­stæð­is­flokk­inn plata sig eða þá að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn styður stefnu sam­starfs­flokks­ins um auk­inn ójöfnuð á Íslandi.“

Þetta sagði Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, þegar rætt var um breyt­ing­ar­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar við almanna­trygg­inga­frum­varp félags­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun. 

„Með breyt­ing­ar­til­lögum meiri hlut­ans við almanna­trygg­inga­frum­varpið er verið að auka mun­inn á greiðslum til ein­hleypra líf­eyr­is­þega og líf­eyr­is­þega sem eru í sam­búð,“ sagði Sigríður í fyr­ir­spurn til Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, og bætti við: „Til að ná mark­mið­inu um 280.000 kr. fyrir þá sem búa einir árið 2017 eru skerð­ingar á eldri borg­ara og öryrkja auknar frá því sem nú er. Þessi munur og skerð­ing­arnar munu aukast enn frekar árið 2018 nái til­lögur meiri hlut­ans fram að ganga. Mér leikur hugur á að vita hvers vegna hæst­virtur félags­mála­ráð­herra er til­búin að snuða líf­eyr­is­þega í sam­búð um eðli­lega hækkun og hvers vegna hún er til­búin að auka skerð­ingar hlut­falls­lega á þá sem búa einir.“

Eygló Harð­ar­dóttir svar­aði ekki spurn­ingum Sigríðar Ingi­bjargar efn­is­lega en sagð­ist hafa „lagt mjög mikla áherslu á, að tryggja að líf­eyr­is­þegar fái sam­bæri­legar kjara­bætur og búið var að semja um á almennum vinnu­mark­aði þannig að þeir sem minnst hafa í kerf­inu okkar, alveg eins og á vinnu­mark­aðnum, mundu fá sam­bæri­legar kjara­bætur“.

Í fram­hald­inu benti Sigríður Ingi­björg á að spurn­ingum hennar hefði ekki verið svarað. „Hæst­virtur ráð­herra leggur til að fólk sem er í sam­búð, líf­eyr­is­þegar, fái minni hækkun hlut­falls­lega en þeir sem búa einir. Hún er líka að taka ákvörðun um að auka hlut­falls­lega skerð­ingar á þá sem búa einir. Hún talar um að þetta sé kjara­bót,“ sagði hún og bætti við: 

„Sann­ar­lega er verið að hækka greiðsl­urnar en það er gert með nánasar­legum hætti, það er verið að blekkja fólk, það er verið að auka skerð­ingar og auka mun eftir sam­búð­ar­formi. Ég óska eftir því að ráð­herra svari spurn­ingum mínum. Þær eru tvær. Í fyrsta lagi: Af hverju er verið að auka hlut­falls­legan mun á milli ein­hleypra og fólks í sam­búð? Í öðru lagi: Af hverju er verið að auka hlut­falls­legar skerð­ingar á þá sem búa einir?“

Eygló Harð­ar­dóttir sagði þá að það væri „ein­fald­lega rangt sem þing­mað­ur­inn heldur hér fram“ enda væri verið að „bæta veru­lega í hvað snertir líf­eyr­is­þega“. Hún útskýrði ekki í hverju rang­færslan fælist, en sagði að sam­kvæmt félags­vísum væri staða fólks sem býr eitt verri en þess sem byggi með öðrum.

„Það eru mjög fáir — við erum að kalla eftir upp­lýs­ingum um það — sem eru í þeirri stöðu að vera í sam­búð með öðrum sem munu ekki njóta góðs af þeim breyt­ingum sem við erum að tala um,“ sagði Eygló og bætti við: „Við erum líka að fara í veru­legar hækk­anir á bótum á grund­velli 69. gr. þannig að allir munu koma betur út á grund­velli styrkrar efna­hags­stjórn­unar hjá þess­ari rík­is­stjórn.“ Þegar Eygló gekk úr pontu kall­aði Sigríður Ingi­björg: „Þú svaraðir ekki spurn­ing­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár