„Ég hef margoft sagt það að ég hef ekki grænan grun um á hvaða vegferð Rio Tinto er. Það getur ekki snúist um launakjör lægstlaunuðustu starfsmanna í fyrirtækinu“ segir Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík, aðspurður um hvernig samningaviðræður gangi við eiganda álversins í Straumsvík. Samningafundur hófst í Karphúsinu klukkan eitt og verður fundað næstu daga áfram ef ekki semst en verkfall á að hefjast í álverinu á miðvikudaginn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.










































Athugasemdir