Ekki vanhæf: „Ég vann aldrei náið með þeim“

Theódóra Þor­steins­dóttir, for­maður bæj­ar­ráðs Kópavogs, segir fyrri störf sín hjá sölu­að­ilum Norð­ur­turns ekki hafa áhrif á hæfi sitt til að fjalla um kaup í honum. Bæj­ar­stjóri segir póli­tíska and­stæð­inga spinna upp sam­sær­is­kenn­ingar.

Ekki vanhæf: „Ég vann aldrei náið með þeim“

Theódóra Þor­steins­dóttir, odd­viti Bjartrar fram­tíðar í Kópavogi og for­maður bæj­ar­ráðs, er hlynnt því að bæj­ar­skrif­stofur Kópa­vogs­bæjar flytji í Norð­ur­turn Smára­lindar. Óeining er um málið í bæj­ar­stjórn­inni þar sem Sjálf­stæð­is­flokkur og Björt fram­tíð mynda meiri­hluta. Er for­seti bæj­ar­stjórnar, Margrét Frið­riks­dóttir úr Sjálf­stæð­is­flokki, á móti flutn­ing­unum og telur Sverrir Ósk­ars­son úr Bjartri fram­tíð að skoða eigi fleiri mögu­leika áður en kaupin á hús­næð­inu í Norð­ur­turni ganga í gegn. 

Stundin ræddi við Theódóru um málið. Hún vísar til stjórn­sýslu­út­tektar frá 2011 þar sem bent er á óhag­ræði í núver­andi hús­næði. Efla megi starf­sem­ina með því að koma henni allri undir eitt þak. „Skrif­stofan er í þremur húsum á átta hæðum, með sjö kaffi­stofur og í 1000 fer­metrum of stóru hús­næði. Þetta segir mér að hægt sé að gera betur,“ segir hún og bætir því við að ljóst sé að ef skrif­stof­urnar yrðu áfram að Fannborg þyrfti að gera end­ur­bætur á hús­næð­inu. Slíkt gæti kostað hátt í 500 millj­ónir króna. „Þá stöndum við frammi fyrir þeirri spurn­ingu: á að laga húsið fyrir hálfan millj­arð án þess að ráða bót á óhag­ræð­inu eða eigum við að skoða eitt­hvert annað hús­næði?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitastjórnarmál

Úttekt

Sveit­ar­stjórn­ar­menn og hættan á hags­muna­á­rekstrum í íslensku lax­eldi

Fjögur dæmi eru um það að íslenskir sveit­ar­stjórn­ar­menn hafi verið starf­andi hjá lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Vest­fjörðum og Aust­ur­landi á sama tíma og þeir voru kjörnir full­trúar. Fjögur slík dæmi er hægt að finna frá síð­asta kjör­tíma­bili sveit­ar­stjórna en í dag er aðeins einn starfs­maður lax­eld­is­fyr­ir­tækis starf­andi í sveit­ar­stjórn. Þetta fólk segir að ekki sé rétt­læt­an­legt að skerða atvinnu­mögu­leika fólks í litlum bæjum þar sem ekki sé mikið um fjöl­breytta atvinnu.

11 mín. lestur

FréttirSveitastjórnarmál

Eyþór Arnalds í dul­búnu hverf­is­blaði Sjálf­stæð­is­manna: „Ég myndi vilja snúa til baka og rýmka vega­kerfið“

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill „rýmka vega­kerfið“ á helstu umferð­ar­götum borg­ar­innar og draga úr þétt­ingu byggðar, þvert á stefnu flokks­ins í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Þetta kemur fram í nýju hverf­is­blaði sem er rit­stýrt af félagi Sjálf­stæð­is­manna, en ekk­ert stendur um tengslin á vef­síðu þess.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár