Forsætisráðherra telur stóreignafólk sæta óþægilegri umræðu

For­sæt­is­ráð­herra svarar því ekki hvort sett verði af stað vinna í stjórn­sýsl­unni til að skoða aðkomu og meinta inn­herja­stöðu Sig­mundar Davíðs í samn­ingum við kröfu­hafa.

Forsætisráðherra telur stóreignafólk sæta óþægilegri umræðu

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að á Íslandi þyki það gagn­rýni­vert að eiga fjár­muni. Eigna­fólk sé iðu­lega á milli tann­anna á fólki og að það geti verið erfitt. Þetta kom fram í svari hans við fyr­ir­spurn Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar, sem bað for­sæt­is­ráð­herra um að útskýra hvað hann hefði átt við þegar hann sagði nýverið í við­tali að það væri greini­lega erfitt að eiga pen­inga á Íslandi. 

Að sögn Sigurðar verður að skoða ummæli hans í því ljósi að þau voru látin falla þegar hann „gekk niður stjórn­ar­ráð­s­tröpp­urnar sam­hliða blaða­manni sem spurði spurn­inga án þess að við værum í form­legu við­tali“. Hann útskýrði ummæli sín með eft­ir­far­andi hætti: „Þar var ég að tala um sam­fé­lagið. Vegna þess að það hefur alltaf, í mjög langan tíma, verið mjög á milli tann­anna á fólki þeir sem eiga fjár­muni. Það getur stundum verið erfitt, það er oft gagn­rýni­vert á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár