Tekjur ríkisins af sykurskattinum hærri en gert var ráð fyrir

Syk­ur­skatt­ur­inn hafði lítil áhrif á kaup­hegðun Íslend­inga sam­kvæmt nið­ur­stöðum Rann­sókna­set­urs versl­un­ar­innar. Bjarni Bene­dikts­son segir gott að skatt­ur­inn heyri nú sög­unni til. Á tveimur ára­tugum hefði óbreyttur syk­ur­skattur getað greitt fyrir nýjan Land­spít­ala.

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að syk­ur­skatt­ur­inn svo­kall­aði hafði engin veru­leg áhrif á neyslu Íslend­inga þann stutta tíma sem skatt­heimtan stóð. Syk­ur­skatt­ur­inn var í gildi skemur en tvö ár og stóran hluta þess tíma gengu fram­leið­endur og inn­flytj­endur á miklar birgðir sem safnað hafði verið áður en skatt­heimtan hófst. Inn­flytj­endur hömstr­uðu sykur á mán­uð­unum fyrir gild­is­töku lag­anna en „syk­ur­fjallið“ svo­kall­aða dugði í eitt ár. Þá hefur heims­mark­aðs­verð á sykri, mælt í íslenskum króum, lækkað um 40% frá vori 2012 og á sama tíma styrkt­ist gengi krón­unnar. Áhrif syk­ur­skatts­ins á verð­lag vara voru þannig of lítil fyrir neyt­endur til að taka eftir þeim í flestum til­vikum og urðu neyslu­á­hrifin því lítil. Vegna tak­mark­aðra neyslu­á­hrifa voru tekjur rík­is­ins af skatt­heimt­unni hins vegar hærri en til var stofnað, þrátt fyrir birgða­söfnun fram­leið­enda.

Átti að draga úr sykurneyslu og afla ríkinu tekna

Í lok nóv­em­ber 2012 lagði Katrín Júl­í­us­dóttir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fyrir Alþingi frum­varp um breyt­ingu á lögum um vöru­gjöld og tolla­lögum þar sem auknar álögur á sæta mat­vöru gengdu miklu hlut­verki. Lögin voru sam­þykkt mán­uði síðar, tóku gildi 1. mars 2013 og tóku til inn­flutn­ings flestra sætra mat­væla, hvort sem þau voru sætt með sykri eða með gervi­sætu­efnum. Til­gangur lag­anna var að draga úr neyslu á sæt­indum og um leið að afla rík­inu auk­inna tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár