Hin eina sanna Tobba Marinósdóttir er ein þriggja kvenna sem halda úti síðunni EatRVK þar sem birtar eru gómsætar uppskriftir og viðtöl við matgæðinga auk þess sem þar er sérstakt viðburðadagatal svo enginn missi af matartengdum viðburðum.
Tobba hefur mikið unnið með sykurlausar uppskriftir að undanförnu og deilir hér uppskrift að því sem hún kallar „Nicecream“ eða sykurlausum bananaís. „Uppistaðan hjá mér er yfirleitt frosnir bananar þó vissulega megi nota aðra ávexti með banönunum,“ segir hún.
Athugasemdir