Svona fræði eiga ekki heima innan veggja skólans

Skóla­meistari FB segist einu sinni hafa áminnt Júlíus Júlíusson fyrir að tala um yfir­náttúrulega hluti í skóla­stofu

Ein kvörtun borist
Ein kvörtun borist Guðrún Hrefna Guð­munds­dóttir, skóla­meist­ari FB, segir eina kvörtun hafa borist vegna kennslu­hátta Júlíusar Júl­í­us­sonar. Mynd: fb.is

„Ég hef einu sinni fengið kvörtun. Þá talaði ég við hann um þessa hluti og ég talaði um það að svona fræði mættu alls ekki vera hér innan veggja skólans,“ segir Guðrún Hrefna Guðmunds­dóttir skóla­meistari Fjölbrauta­skólans í Breið­holti í samtali við Stundina en Júlíus Júlíusson kennir rafmagns­tæknifræði við skólann. Júlíus hefur verið til umfjöllunar í fjöl­miðlum undan­farna daga eftir að Kastljós birti myndband af honum þar sem hann reyndi meðal annars að selja MND-sjúkling jónað vatn og jarðtengingaról. Frétta­vefurinn Vísir birti í kjölfarið myndband úr kennslu­stund Júlíusar þar sem hann ræðir meðal annars við nemendur sína um geimskip, „reptila“ sem búa í neðan­jarðar­byrgjum og um „fimmtu víddina“. Að sögn Guðrúnar Hrefnu mun það hafa verið í kjölfar myndbands­birtingarinnar, fyrir um tveimur árum síðan, sem kvartað var undan Júlíusi. „Þetta var ekki við hæfi og hann á að halda sig innan marka sinnar greinar og sýna fagmennsku,“ segir Guðrún Hrefna. Eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár