Stundin komin út: Þau fá auðlindina okkar

Í dag var fjórða tölu­blaði Stund­ar­innar dreift um landið. For­síðu­út­tektin er rann­sókn á hlut­deild ein­stak­linga í fisk­veiði­kvóta Íslend­inga og hvernig mak­ríl­kvót­inn verður afhentur fáum aðilum. Verði frum­varp fjár­mála­ráð­herra að lögum mun einn ein­stak­lingur fá afhenta tíu millj­arða af mak­ríl­kvóta.

Stundin komin út: Þau fá auðlindina okkar

Fjórða tölu­blað Stund­ar­innar kom út í dag. For­síðu­efnið er rann­sókn á því hvaða ein­stak­lingar eiga stærsta hluteild í fisk­veiði­kvóta Íslend­inga og hvernig mak­ríl­kvóti að and­virði 35 millj­arða verður afhentur tíu ein­stak­lingum verði frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra að lögum. „Hér er um gíf­ur­lega háar fjár­hæðir að ræða, sem aug­ljóst er að mikil þörf er fyrir í þjóð­ar­bú­inu, og því óskilj­an­legt að verið sé að gefa nokkrum útgerðum,“ segir Gauti B. Egg­erts­son, aðstoð­ar­pró­fessor við Brown-háskól­ann í Banda­ríkj­unum. Einn ein­stak­lingur mun fá mak­ríl­kvóta að and­virði tíu millj­arða. Við segjum sögur þessa fólks.

Kristinn Hrafns­son skrifar einnig um auð­linda­mál, það hvernig orku­auð­lind­inni er stungið í vasa álrisanna. Þau græða á tá og fingri en borga lít­inn sem engan tekju­skatt til íslensks sam­fé­lags­ins.

Í blað­inu er einnig nær­mynd af áróð­urs­meist­ara Sig­mundar Davíðs. Hann er lítt þekktur, en er einn helsti áhrifa­valdur sam­tímaum­ræðu á Íslandi. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra og ræðu­höf­undur hans, var grunn­skóla­kenn­ari þegar kallið barst úr Stjórn­ar­ráð­inu. Hann hafði áður verið sig­ur­sæll þjálf­ari í ræðu­keppni fram­halds­skóla­nema, Morfís, og þró­aði sér­stakan áróð­urs­stíl sem var kenndur við það að „ein­falda og marg­falda“ og „trekta“. Hann hefur lagt sér­staka áherslu á þjóð­ern­is­hyggju.

„Við vorum skytt­urnar þrjár, gegn líf­inu og með líf­inu,“ segir íslensk móðir sem missti tengslin við fimmtán ára gamla dóttur sína eftir ólýs­an­lega lífs­reynslu sem braut niður sam­band þeirra. Dóttir hennar segir einnig sína hlið á mál­inu. Fimmtán ára gömul blind­að­ist hún af hatri og heift gagn­vart móður sinni eftir atburði sem engin börn ættu að upp­lifa. „Ég barð­ist gegn því að fara frá henni,“ segir hún, en gat það ekki.

María Lilja Þrast­ar­dóttir var áreitt kyn­ferð­is­lega þegar hún starf­aði fjórtán ára gömul á veit­inga­stað í Reykja­vík, bæði af sam­starfs­mönnum sínum og yfir­manni. Hún skrifar um eigin reynslu, en saga hennar er ekk­ert eins­dæmi. Fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu segir að til þeirra leiti fjöldi kvenna á ári hverju vegna áreitni á vinnu­stöðum.

Það er sárt að hugsa til þess að fólk sé hungrað í landi allsnægta. Á sama tíma og miklu magni af mat er hent í ruslið eru mat­ar­lausar fjöl­skyldur að leita leiða til að lifa af mán­uð­inn. Benjamin Julian sótti mat sem átti að henda og gaf fátækum.

Rætt er við fleiri sem hafa köllun til þess að hjálpa öðrum. Kristján Sverr­is­son lét af störfum hjá Lands­bank­anum til að fylgja köllun um kristni­boð í Afríku. Hann hélt til Eþíópíu ásamt eig­in­konu sinni, Helgu Vilborgu Sig­ur­jóns­dóttur, þar sem þau bjuggu með fjögur börn í fimm ár við frum­stæðar aðstæður. Sonur hans varð alvar­lega veikur af ormum og kastaði upp blóði. Kristján segir frá líf­inu á meðal frum­byggja í eyði­mörk­inni, þar sem hann segir að óvel­komnum börnum sé jafn­vel kastað niður af klettum.

 

Þetta er brot af því sem birt­ist í blað­inu. Þar eru fleiri fréttir, úttektir, upp­skriftir, inn­lit og við­töl. Fjallað er um ferðir, Múmínálfa og mann­inn sem hætti að borga af hús­inu sínu fyrir sex árum en býr enn í því og und­ir­býr stofnun nýs sam­fé­lags í Lauga­nesi. 

Á meðal pistla­höf­unda eru Hall­grímur Helgason rit­höf­undur, Jón Ólafsson heim­spek­ingur, Jóhannes Björn sam­fé­lags­rýnir, Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, Sigrún Dan­í­els­dóttir sál­fræð­ingur, Sigurður Sig­urðs­son, Sölvi Tryggva­son, Óttar Guð­munds­son geð­læknir, Þórunn Hrefna og Börkur Gunn­ars­son borg­ar­full­trúi.

Blaðið er 80 síður og fæst í flestum versl­unum. Hægt er að kaupa áskrift hér. 

Áskrif­endur geta lesið blaðið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár