Stundin komin út: Íslenska byltingin

Í dag var fimmta tölu­blaði Stund­ar­innar dreift um landið. For­síðu­efnið fjallar um bylt­ing­una sem hefur orðið í afstöðu fólks til stjórn­mála­flokka. Stundin greindi hvaða fólk Íslend­ingar myndu missa úr sinni þjón­ustu, hvaða fólk kæmi í stað­inn og hverju það vill breyta.

Stundin komin út: Íslenska byltingin

Fimmta tölu­blað Stund­ar­innar kom út í dag. For­síðu­efnið er úttekt á bylt­ing­unni sem hefur orðið í afstöðu fólks til stjórn­mála­flokka frá því að Alþing­is­kosn­ingar voru haldnar fyrir tveimur árum þegar Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur náðu tæpum meiri­hluta. Það varð gríð­ar­legt hrun í póli­tísku trausti við hrunið og þar með fór þetta fasta flokks­fylgi mjög mikið á flakk og afar margir hafa ekki fundið sér aftur neinn heima­flokk,“ segir lektor við stjórn­mála­fræði­deild. Kannanir mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tæk­is­ins MMR hafa und­an­farið sýnt að hinn nýi flokkur Pírata myndi fá þriðj­ungs­fylgi. Í kosn­ing­unum núna færu 20 nýir píratar inn á Alþingi. Stundin greindi hvaða fólk Íslend­ingar myndu missa úr sinni þjón­ustu, hvaða fólk kæmi í stað­inn og hverju það vill breyta.

AA er félags­skapur karla og kvenna sem sam­hæfa reynslu sína, styrk og vonir svo þau megi leysa sam­eig­in­legt vanda­mál sitt, áfeng­is­bölið. Þar er ekk­ert yfir­vald, engar reglur eða úrræði til að taka á málum. Stemn­ing­unni á sumum fundum er lýst sem kjöt­mark­aði þar sem eldri menn leita í nýliða­stelpur. Dæmi eru um að konur mæti ofbeld­is­mönnum í AA og sú krafa gerð til þeirra að þær fyr­ir­gefi ofbeldið á þeim for­sendum að þeir séu edrú. Það hefur endað illa. Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir ræddi við hátt í fimmtán konur um reynslu þeirra af AA sam­tök­unum.

Ítarleg umfjöllun er um þá stærstu í ferða­manna­þjón­ust­unni, túrista­kóng­ana sem græða millj­arða á því að selja flug, gist­ingu, ferðir, lax­veiði og lunda­bangsa. Mik­il­vægt er að styrkja inn­viði ferða­þjón­ust­unnar svo Ísland geti tekið á móti fleiri ferða­mönnum, auk þess sem for­maður Samtaka kaup­manna og fast­eigna­eig­enda við Laugaveg segir umhverfið í mið­bænum orðið fjand­sam­legt orðum rekstri. Þá fjalla rit­höf­und­arnir Jón Kalman, Auður Jóns­dóttir, Guð­mundur Andri Thorsson, Hermann Stef­áns­son og Kristján Sig­ur­jóns­son.

Ljós­mynda­þátt­ur­inn fjallar um dag í lífi þeirra Trausta Breið­fjörð og Huldu Jóns­dóttur sem hafa lifað hátt í hund­rað ár. Þau eru Stranda­menn, sem tóku við Sauða­vita og end­uðu í Reykja­vík. Jón Bjarki Magn­ús­son skrifar um líf ömmu sinnar og afa. Kristinn Magn­ús­son tók mynd­irnar.

Níels Ársæls­son varð skip­stjóri á tog­ara rúm­lega tví­tugur. Skip­herra varð­skips lét manna fall­byssu og beindi að skipi hans. Síðan hefur hann barist við kerfið. Sviðsett brott­kast vakti lands­at­hygli. Sjö árum eftir gjald­þrot var enga vægð að fá og hann settur í fang­elsi vegna vörslu­gjalda.

Helga Aðal­steins­dóttir kenn­ari er með góð­kynja heila­æxli sem þarf að fjar­lægja og veldur því að hún er óvinnu­fær vegna síþreytu. Hún átti að fara í aðgerð í apríl þegar verk­fall skall á. Helga kæm­ist til vinnu fljót­lega eftir aðgerð en allt stendur fast.

Ósk Gunn­laugs­dóttir hefur glímt við áfallastreituröskun frá því að henni var nauðgað, þegar hún var sautján ára, af þjóð­þekktum manni. Hún fann fyrir miklum létti þegar hún sagði sögu sína í tengslum við nether­ferð­ina #þöggun og #kon­ur­tala á Beauty tips.

Þetta er brot af því sem birt­ist í blað­inu. Þar eru fleiri fréttir, úttektir, upp­skriftir, inn­lit og við­töl. Fjallað er um ferðir, íslenska staði sem þú verður að sjá áður en þú deyrð og Ólaf Jónasson leik­mynda­hönnuð sem er einn eig­enda vita­jarð­ar­innar Kefla­víkur á Vest­fjörðum þar sem Galt­ar­viti stendur. Hann eyðir flestum sínum fríum í ein­angr­un­inni í Keflavík þar sem hann hlustar á álfa og huldu­fólk. Lista­fólkið streymir í kyrrð­ina til hans rétt eins og göngu­menn sem þreyttir fá að hvíla lúin bein.

Á meðal pistla­höf­unda eru Jón Ólafsson heim­spek­ingur, Jóhannes Björn sam­fé­lags­rýnir, Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, Sigrún Dan­í­els­dóttir sál­fræð­ingur, Stefán Snævar, Sigurður Sig­urðs­son, Sölvi Tryggva­son, Óttar Guð­munds­son geð­læknir, Þórunn Hrefna og Börkur Gunn­ars­son borg­ar­full­trúi.

Blaðið er 80 síður og fæst í flestum versl­unum. Hægt er að kaupa áskrift hér: https://stundin.is/askrift/

Áskrif­endur geta lesið blaðið í heild sinni hér: http://stundin.is/utgafa/2015/05/

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár