Stjórnarliðar vilja aukna aðkomu einkaaðila að vegagerð og kanna einkavæðingu flugvallarins

Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis lýsir yfir stuðn­ingi við hug­myndir Jóns Gunn­ars­sonar, sam­göngu­ráð­herra, um sam­starfs­fjár­mögnun ríkis og einka­að­ila þegar ráð­ist verður í vega­bætur til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill kanna sölu á eignum rík­is­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Stjórnarliðar vilja aukna aðkomu einkaaðila að vegagerð og kanna einkavæðingu flugvallarins
Formenn nefnda Val­gerður Gunn­ars­dóttir er for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar en meiri hluti hennar vilja skoða sam­starfs­fjár­mögnun ríkis og einka­að­ila í vega­fram­kvæmdum. Haraldur Bene­dikts­son er for­maður fjár­laga­nefndar en meiri hluti hennar leggur til að skoðað verði að selja eignir hins opin­bera á Kefla­vík­ur­flug­velli. Mynd: Alþingi

Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis lýsir yfir stuðn­ingi við hug­myndir Jóns Gunn­ars­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, um sam­starfs­fjár­mögnun ríkis og einka­að­ila þegar ráð­ist verður í vega­bætur á aðal­um­ferð­ar­æðum til og frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ráð­herr­ann hefur kallað eftir veg­tollum til að fjár­magna slíkar fram­kvæmdir. 

Stjórn­ar­liðar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd vilja að almennt verði hugað að öðrum mögu­leikum til fjár­mögn­unar sam­göngu­mann­virkja en með beinum fram­lögum úr rík­is­sjóði. Þetta kemur fram í umsögn þeirra um fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra. Undir umsögn nefnd­ar­innar rita Val­gerður Gunn­ars­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, Ásmundur Frið­riks­son, Bryndís Har­alds­dóttir og Teitur Björn Ein­ars­son úr Sjálf­stæð­is­flokki og Pawel Bartoszek úr Viðreisn. 

Áhugi á einkavæðingu flugvallarins

 

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar í nefnd­inni hafa skilað sér­á­litum þar sem fjársvelti þeirra mál­efna­sviða sem heyra undir nefnd­ina er gagn­rýnt. Meiri­hluti nefnd­ar­innar lýsir hins vegar yfir stuðn­ingi við meg­in­línur tekju- og gjald­ara­mma fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar. 

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur einnig lokið við gerð álits um fjár­mála­á­ætl­un­ina, en það mun birt­ast á vef Alþingis seinna í dag. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er lagt til í áliti meiri­hlut­ans að skoðað verði að selja eignir hins opin­bera á Kefla­vík­ur­flug­velli og nýta sölu­and­virðið til átaks í sam­göngu­málum. 

Hagkvæmt þegar framkvæmd er háð áhættu

Sam­starfs­fjár­mögnun ríkis og einka­að­ila (e. pri­vate-public partners­hip) – oft þýtt sem einka­fjár­mögnun eða einka­fram­kvæmd – felst í því að verk­taki tekur að sér að hanna, fjár­magna, byggja og reka mann­virki í til­tek­inn tíma fyrir hið opin­bera, en í til­viki vega­gerðar og sam­göngu­mann­virkja er stofn­kostn­aður oft­ast greiddur upp með veggjöldum af ein­hverju tagi. 

Eins og rakið er í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun vann um Hval­fjarð­ar­göngin og Sunda­braut árið 2006 er einka­fram­kvæmd helst álitin hag­kvæmur kostur þegar fram­kvæmd er háð veru­legri áhættu sem einka­að­ili er til­bú­inn að taka á sig en 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár