Stendur þú uppi sem uppistandari?

Hver sem er getur fengið tækifæri til að gerast uppi­standari fyrir framan fullan sal af fólki á tilrauna­uppistands­kvöldum sem Rökkvi Vésteinsson, 37 ára vefforritari og grínisti, hefur staðið fyrir undan­farin tvö ár.

Hver sem er getur fengið tækifæri til að gerast uppi­standari fyrir framan fullan sal af fólki á tilrauna­uppistands­kvöldum sem Rökkvi Vésteinsson, 37 ára vefforritari og grínisti, hefur staðið fyrir undan­farin tvö ár.

„Ísland vantaði alltaf þetta byrjunar­stig fyrir uppi­standara. Það vantaði alltaf þetta grunnstig þar sem þú þarft ekki að vera frægur fyrir. Það er það sem ég hef reynt að byggja upp á seinustu tveimur árum sem ég hef verið með tilrauna­uppistandið og núna er þetta til. Hver sem er getur byrjað á frekar auðveldan hátt að koma fram. Það sem byrjaði smátt fer nú fram fyrir eiginlega alltaf fullum sal og 30-40 manns hafa komið fram og eru að koma fram,“ segir Rökkvi á kaffihúsi í Hafnar­firði, þangað sem blaða­maður dró hann því hann nennti ekki á kaffihús niður í bæ.

„Ef allir sem vilja fá tækifæri fáum við meiri hæfileika. Nú þegar eru nokkrir mjög …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár