Læknir á Selfossi ákærður fyrir alvarlega árás

Emma Caroline Fernandez hefur verið ákærð fyrir árás í Ung­verja­landi. Hún er sökuð um að hafa eitrað fyrir konu og barið í höf­uðið með hamri. Emma starfar sem læknir á lyf­lækn­inga­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands en hún hefur ekki tekið sér leyfi frá störfum.

Læknir á Selfossi ákærður fyrir alvarlega árás

Emma Caroline Fernandez er konan sem bíður dóms í Ung­verja­landi fyrir alvar­lega árás. Greint var frá mál­inu í kvöld­fréttum RÚV í gær.

Emma, sem fékk almennt lækn­inga­leyfi í febr­úar í fyrra, starfar við lyf­lækn­inga­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands. Stundin ræddi við Hjört Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóra lækn­inga við HSU, sem sagð­ist hafa vitað af mál­inu frá því í vor en vildi ekki tjá sig efn­is­lega um það. Ekki verður betur séð en að Emma muni starfa áfram á stofn­un­inni, en ekki virð­ist hafa verið farið fram á að hún tæki sér tíma­bundið leyfi frá störfum vegna máls­ins.

Uppfært: Samkvæmt til­kynn­ingu sem Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands sendi frá sér eftir umfjöllun um málið í dag hefur konan verið send í leyfi vegna máls­ins. Fram kemur að stofn­un­inni hafi ekki verið kunn­ugt um alvar­leika máls­ins.

Lögmaður ósáttur við málsmeðferðina

Í stuttu sam­tali við Stundina vildi Emma ekk­ert tjá sig um málið og benti á lög­mann sinn, Ingi­björgu Ólöfu Vil­hjálms­dóttur. Ingi­björg leggur áherslu á að Emma lýsi sig sak­lausa af ákæru. Hennar málsvörn snú­ist meðal ann­ars um að atburða­rásin hafi verið svið­sett af meintu fórn­ar­lambi.

Í frétt RÚV var haft eftir lög­manni hennar að ákæra sé ekki í sam­ræmi við lýs­ingu Emmu á máls­at­vikum. Hún gagn­rýndi sömu­leiðis máls­með­ferð.

„Já, máls­með­ferðin hefur verið frekar und­ar­leg. Hún lýsir sér helst í því að það virð­ast ein­hver sönn­un­ar­gögn hafa týnst í mál­inu. Síðan hafa ung­versk yfir­völd ákveðið að fresta dóms­upp­kvaðn­ingu vegna þess að þau hafa kom­ist á snoðir um að íslensk stjórn­völd væru að fylgj­ast með mál­inu. Það eitt og sér er mjög und­ar­legt,“ segir Ingi­björg Ólöf Vil­hjálms­dóttir, verj­andi Emmu, í sam­tali við Stundina.

Hún segir að Emma hafi ekki flúið frá lög­reglu líkt og haldið er fram í frétt Dehir. „Nei, hún gerði það ekki og var mjög sam­vinnu­þýð á þeim tíma og hefur verið alla tíð síðan. Hún heldur fram allt öðrum máls­at­vikum heldur en ung­versk yfir­völd hafa viljað láta. Sá munur lýsir sér í algjörri and­stöðu við það sem kemur fram í ákæru. Það lýsir sér í því að hún segir að þetta hafi verið svið­sett af meintum brota­þola,“ segir Ingi­björg Ólöf. 

Sagðar vinkonur

Ung­verskir fjöl­miðlar fjöll­uðu fyrst um málið í síð­ast­liðnum maí­mán­uði. Í fjöl­miðl­inum Dehir kemur fram meg­in­efni ákærunnar gegn Emmu. Emma og meint fórn­ar­lamb, kona frá Nígeríu, eru sagðar hafa verið góðar vin­konur og báðar á sein­asta ári í lækn­is­fræði við Háskól­ann í Debrecen, þar sem fjöl­margir Íslend­ingar hafa stundað lækn­is­nám. Í frétt Dehir kemur fram að Emma sé sökuð um að hafa eitrað fyrir kon­unni og síðar barið hana í tvígang í höf­uðið með hamri.

Með svefnlyf í blóði

Atvikið sem Emma er ákærð fyrir átti sér stað sum­arið 2012. Samkvæmt ung­verskum fjöl­miðlum bauð Emma meintu fórn­ar­lambi í kvöld­verð heima hjá sér. Emma á að hafa sett svefn­töflur út í mat­inn sem varð til þess að meintur þol­andi sofn­aði fljót­lega eftir að hafa borðað. Daginn eftir er hún sögð hafa rankað við sér í íbúð­inni og verið mjög slöpp. Þá á Emma að hafa ráð­ist á meint fórn­ar­lamb með hamri og barið hana í tvígang í höf­uðið. Meint fórn­ar­lamb er sagt hafa náð hamr­inum úr höndum Emmu og því næst reynt að flýja. Þá á Emma að hafa rifið í hár fórn­ar­lambs­ins sem náði þó að koma sér út úr íbúð­inni.

Á leið sinni úr hús­inu á fórn­ar­lambið að hafa reynt að kalla eftir aðstoð nágranna en án árang­urs. Samkvæmt þess­ari atvika­lýs­ingu á hún að hafa komið sér út úr hús­inu að lokum þegar íbúi í öðru húsi veitti henni aðstoð og í kjöl­farið færð undir lækn­is­hendur á spít­ala. Konan er sögð hafa skilið eftir sig blóðslóð á göngum íbúð­ar­húss­ins.

Samkvæmt ung­verskum fjöl­miðlum fund­ust svefn­lyf í blóði níger­ísku kon­unnar og hafði hún áverka. Þrátt fyrir þetta var búist við því að hún myndi ná sér að fullu. Í frétt Dehir kemur fram að lög­regla hafi farið í íbúð­ina og fundið umræddan hamar, en Emma hafi ekki verið á vett­vangi.

Líkt og fram kemur hér að ofan segir Emma að þessar ásak­anir eigi ekki við rök að styðj­ast og atvikið hafi verið svið­sett. 

Athuga­semd: Í fyrri útgáfu þess­arar fréttar kom fram að meintur þol­andi hafi verið höf­uð­kúpu­brotin. Vísað var til fréttar ung­verska fjöl­mið­ils­ins Dehir. Emma Caroline Fernandez and­mælir því hins vegar að meintur þol­andi hafi hlotið höf­uð­kúpu­brot. „Ég hef aldrei heyrt af höf­uð­kúpu­broti fyrr en í þess­ari frétt og ég ætti að vita betur þar sem þetta hefur verið á herðum mínum síð­ast­liðin þrjú ár,“ skrifar Emma í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. Stundin hefur ekki aðgang að lækna­skýrslum og hefur ekki for­sendur til að meta áverk­ana aðrar en þær sem byggja á fjöl­miðlaum­fjöllun erlendis. Því hefur orða­lagi frétt­ar­innar verið breytt að beiðni Emmu Caroline.

Uppfært: Emma Caroline var á end­anum dæmd fyrir alvar­lega lík­ams­árás. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár