Staðfestir frásögn fyrrum starfsmanns Reykjabúsins: „Hef aldrei getað gleymt þessu“

Fyrrum starfs­maður Reykja­bús­ins í Mos­fellsbæ segir frá því þegar fuglar voru drepnir með útblæstri úr bíl. Starfs­menn­irnir hafi borið grímur þegar hreinsað var til en það hafi engu bjargað, lyktin hafi smogið í gegn, sú við­bjóðs­leg­asta sem hann hefur nokkurn tím­ann fundið.

Staðfestir frásögn fyrrum starfsmanns Reykjabúsins: „Hef aldrei getað gleymt þessu“
Af kjúklinga­búi Tveir fyrrum starfs­menn Reykja­bús­ins lýsa ógeð­felldri aðferð við aflífun fugla. Mynd: Pixabay

Á dög­unum birti Stundin frá­sögn, þar sem fyrrum starfs­maður Reykja­bús­ins í Mos­fellsbæ, Björn Kol­beins­son, lýsti afar ógeð­felldri aðferð við að aflífa hátt í 3.000 fugla með útblæstri úr bíl. Sett hafi verið frauð fyrir alla glugga og op húss­ins, svo hafi barki úr púströri bíls verið tengdur við húsið og vélin látin ganga í 3 daga.

Hjalti Örn Jónsson raf­virki vann á Reykja­bú­inu í Mos­fellsbæ í eitt ár kringum alda­mót. Hann var einn þeirra sem við­staddur var þegar umrætt atvik átti sér stað. „Jú, ég man vel eftir þessu, hef aldrei getað gleymt þessu. Þetta er mesti við­bjóður sem ég hef nokkurn tím­ann kynnst,“ segir hann. Í lýs­ingu Björns kom fram vélin hafi verið látin ganga í þrjá daga. Hjalti Örn seg­ist ekki muna upp á hár hversu langur tími leið. Hins vegar muni hann eftir því að vélin hafi að minnsta kosti gengið í heilan dag og heila nótt. „Ástæðan fyrir því að þetta tók svona langan tíma var að þeir not­uðu dísil­bíl­inn við þetta, fyrir mis­tök. Það er eng­inn koltví­sýr­ingur í útblæstri frá dísil­vélum.“ Fugl­arnir hafi því fyrir rest drep­ist af dísi­leitrun. Koltví­sýr­ingur veldur hins vegar fyrst deyf­ingu og með­vit­und­ar­leysi og loks köfnun. „Þetta er mesti við­bjóður sem ég hef nokkurn tím­ann kynnst. Fugl­arnir voru gegn­sýrðir af dísi­leitrun. Um leið og maður kom við þá prump­uðu þeir út úr sér eitr­inu. Við vorum með grímur sem dugðu engan veg­inn til þess að koma í veg fyrir lykt­ina. Svo var þeim mokað upp í trakt­ors­gröfu og hljóðin sem þeir gáfu frá sér voru ógleym­an­leg. Ég hef aldrei upp­lifað annað eins og þó er ég ýmsu vanur, hefur til dæmis bæði unnið á refa- og minka­búi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár