Á skjön við lög um stöðu íslenskrar tungu og málstefnu Stjórnarráðsins

Forseti Alþingis segir Frosta Sig­ur­jóns­son hafa „fullar heim­ildir til að vinna sín verk með þeim hætti sem hann kýs“ - Skilaði skýrslu á ensku.

Á skjön við lög um stöðu íslenskrar tungu og málstefnu Stjórnarráðsins

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, gerir ekki athuga­semd við að skýrsla Frosta Sig­ur­jóns­sonar um stjórn pen­inga­mála sé á ensku og vísar til þess að skýrslan hafi verið skrifuð fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið en ekki Alþingi. Þetta kemur fram í frétt á vef Rík­is­út­varps­ins en haft er eftir Einari K. að þótt Frosti Sig­ur­jóns­son sé þing­maður hafi hann „fullar heim­ildir til að vinna sín verk með þeim hætti sem hann kýs“. 

Lög nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og tákn­máls kveða hins vegar á um að íslenska sé „mál Alþingis, dóm­stóla, stjórn­valda, jafnt ríkis sem sveit­ar­fé­laga, skóla á öllum skóla­stigum og ann­arra stofn­ana sem hafa með höndum fram­kvæmdir og veita almanna­þjón­ustu“. Þetta kemur fram í 8. grein lag­anna og í mál­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins er áréttað að íslenska sé „mál Stjórn­ar­ráðs Íslands og mál­notkun þar skal vera til fyr­ir­myndar“. Í sömu lögum er einnig kveðið á um að stjórn­völd skuli tryggja að unnt sé að nota íslensku á öllum sviðum íslensks þjóð­lífs. Bera ríki og sveit­ar­fé­lög ábyrgð á að varð­veita og efla íslenska tungu og skuli sjá til þess að hún sé notuð.

Samkvæmt mál­stefn­unni skal allt efni sem gefið er út á vegum ráðu­neyta vera á íslensku. „Þetta á meðal ann­ars við um skýrslur, greinar, fréttir og frétta­til­kynn­ingar sem varða mik­il­væga hags­muni Íslands, þar með taldar skýrslur íslenskra stjórn­valda til erlendra nefnda og stofn­ana,“ segir þar. Mál­stefn­una má lesa í heild á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár